Málið var höfðað með ákæru sem gefin var út af héraðssaksóknara 26. febrúar síðastliðinn. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Austurlands 3. nóvember síðastliðinn.
Brotaþoli hlaut höfuðáverka og heilahristing, áverka og bólgur á vör, rýrnað tannhold og glerungsbrot á tönnum í árásinni. Hann lýsti því fyrir dómi að næst hefði hann munað eftir sér er hann vaknaði blóðugur morguninn eftir með bólgna vör. Krafðist hann þess að maðurinn greiddi sér rúmar tvær milljónir króna í skaða- og miskabætur.
Bæði vitni, brotaþoli og ákærðu segja að talsverð ölvun hafi átt sér stað umrætt kvöld. Lögreglumenn sem komu að slagsmálunum báru vitni fyrir dómi og sögðust hafa séð slagsmál myndast þegar fólk tíndist út af skemmtistað á bílaplan hans við lokun um klukkan þrjú um nótt.
„Þar hafi svo verið mikill æsingur, reiði og ölvun, brotaþoli legið í jörðinni og fólk stumrað yfir honum,“ segir í dómnum.
Upptakan lykilgagnið
Átökin náðust á upptöku eftirlitsmyndavélar á svæðinu og var hún meðal málsgagna sem og upptökur úr búkmyndavélum lögreglu og síma hins ákærða. Málið var að miklu leyti ráðið úr upptöku eftirlitsmyndavélarinnar þar sem þeir sem komu að því mundu takmarkað eftir atburðinum.
Ákærði neitaði sök og krafðist hann sýknu við aðalmeðferðina. Hann sagði að slagsmálunum hefði „einhvern veginn lokið með því að brotaþoli hafi sofnað“ en þó mundi hann það ekki fyrir víst og tók fram að mikil drykkja hefði átt sér stað umrætt kvöld. Hann hefði þó ekki átt þátt í því að brotaþoli sofnaði.
Annar maður var sömuleiðis ákærður fyrir að hafa sparkað ítrekað í líkama brotaþola þar sem hann lá meðvitundar- og bjargarlaus í jörðinni. Vegna þessa fékk brotaþoli heilahristing, áverka og bólgur á vör, rýrnað tannhold og brotnuðu tennur hans. Hann neitaði einnig sök og sagðist við aðalmeðferðina ekki muna eftir umræddri nótt.
Á áðurnefndu myndskeiði má sjá að brotaþoli og sá fyrri sem var ákærður eiga í slagsmálum á meðan sá síðari sparkar í andlit brotaþola þannig að hann fellur í malbikið.
Við mat sitt taldi dómarinn, með vitnisburð læknis til hliðsjónar, að brotaþola hefði verið búin allnokkur hætta af sparki þess fyrra ákærða. Það var meginorsök þess að hann missti meðvitund og skall í malbikið.
Sá fyrri var því dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi en sá seinni í 45 daga skilorðsbundið fangelsi. Skaðabótakrafa brotaþola var rúmar tvær milljónir króna en fékk hann að endingu tæpar 750 þúsund krónur.