„Sandra á stóran þátt í að þjappa saman árgöngum með því að vinna með þeim stór samvinnuverkefni sem allir eru stoltir af og hafa þar með gífurlega jákvæð áhrif á skólabrag. Henni tekst að virkja alla nemendur hvernig sem námsleg og félagsleg staða þeirra er,“ segir í umsögn sem fylgdi tillögu um tilnefningu Söndru.
Íslensku menntaverðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gær. Verðlaunin eru veitt í fimm flokkum: fyrir framúrskarandi skóla- eða menningarumbótastarf, kennslu, þróunarverkefni, iðn- og verkmenntun, auk sérstakra hvatningarverðlauna.
Starfsbraut Fjölbrautarskólans í Breiðholti hlaut verðlaun fyrir framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur. Forsvarsmenn brautarinnar hafa þróað einstaklingsmiðað nám sem hafa það að markmiði að þroska með nemendum hæfni sem gerir þeim kleift að takast á við fjölbreytt viðfangsefni daglegs lífs.
Verkefnið Söngvavor hlaut verðlaun fyrir að vera framúrskarandi þróunarverkefni en verkefnið á rætur að rekja til samvinnu Tónskóla Sigursveins við leikskóla í Reykjavík. Síðasta vor náði verkefnið til ríflega þrjú þúsund barna.
Verkmenntaskólinn á Akureyri hlaut verðlaun fyrir framúrskarandi iðn- eða verkmenntun fyrir sjálfbæra kennslustofu sína. Í skólanum hefur verið sett upp sólarorkuvel og aðstaða sköpuð fyrir nemendur til að fást við margs konar verkefni sem tengjast sjálfbærri orkunotkun.
Loks var það Opni leikskólinn MEMMM sem fékk Hvatningarverðlaun íslensku menntaverðlaunanna. Opni leikskólinn býður barnafjölskyldum aðstöðu til að hittast en hann er rekinn af óhagnaðardrifnum félagasamtökum. Þar er í boði fjölbreytt dagskrá.