„Heimurinn að verða skrítnari“
Breski rithöfundurinn M. John Harrison hlaut Booker-verðlaunin fyrir skáldsögu um lífið eftir hamfarir.
Breski rithöfundurinn M. John Harrison, sem hefur eignast dyggan aðdáendahóp fyrir skáldsögur sínar sem fara á milli bókmenntagreina, sagði í samtali við AFP í dag, eftir að hann hlaut Booker-verðlaunin, að vestræni heimurinn væri „að verða skrítnari“.
Harrison hlaut bókmenntaverðlaunin í gær fyrir skáldsöguna Endalok alls, eða „The End of Everything“, sem gerist eftir heimsendi. Verðlaunin gætu opnað honum leið að viðurkenningu gagnrýnenda og vinsældum meðal almennings, en hingað til hefur hann einkum verið vinsæll meðal vísindaskáldsagnaunnenda.
„Samkvæmt viðteknum hugmyndum í útgáfuheiminum eru hverfandi líkur á að maður vinni Booker-verðlaunin. Þegar ég heyrði svo nafnið mitt var mér verulega brugðið,“ sagði Harrison.
Hann er 81 árs og elstur þeirra sem hafa hlotið verðlaunin. Að mati sumra gagnrýnenda er hann jafnframt fyrsti verðlaunahafinn úr heimi vísindaskáldsagna, þótt hann hafni mörkunum milli bókmenntagreina og fari yfir þau í verkum sínum.
Harrison viðurkenndi að sigurinn kynni að einhverju leyti …