Jarðskjálftavirkni á svæðinu er lítil en líklegasta sviðsmyndin er áfram sú að kvika hlaupi frá Svartsengi yfir í Sundhnúksgígaröðina, sem gæti leitt til eldgoss.
Ekki er hægt að segja til um hvenær næstu umbrot verða og fyrirvari gæti orðið mjög stuttur. Veðurstofan hefur jafnframt bent á að eftir því sem lengra líður frá síðasta kvikuhlaupi aukist óvissan um tímasetningu þess næsta.
Rúmir fimmtán mánuðir eru liðnir frá síðasta eldgosi á Sundhnúksgígaröðinni, sem lauk 5. ágúst í fyrra.
Goshrinur geta staðið í áratugi
Núverandi eldvirknitímabil á Reykjanesskaga hófst árið 2021 og goshrinan á Sundhnúksgígaröðinni í desember 2023. Síðan hafa orðið níu eldgos á gígaröðinni.
Veðurstofan hefur bent á að eldvirknitímabil á Reykjanesskaga geti staðið í áratugi eða jafnvel aldir, með mislöngum hléum milli eldgosa. Langt hlé sé því ekki vísbending um að eldvirkninni sé lokið.
Eldstöðin Reykjanes–Svartsengi er áfram á viðvörunarstigi tvö, sem merkir töluvert aukna virkni.