Saksóknari krefst fimm til sex ára fangelsis yfir Írisi Helgu Jónatansdóttur, en verjandi hennar krefst sýknu af öllum ákæruliðum. Málflutningur fór fram í Héraðsdómi Reykjaness í dag og þar með lauk aðalmeðferð málsins.
Íris Helga er ákærð fyrir umsáturseinelti, ærumeiðandi aðdróttanir, rangar sakargiftir, skjalafals og brot gegn barnaverndarlögum. Ákæruliðirnir eru 68 og meint brot beinast gegn níu einstaklingum á árunum 2022 til 2025. Hún neitar sök í megindráttum.
Héraðsdómur Reykjaness: Íris Helga neitar nær öllum ákæruliðum og segist sjálf hafa verið áreitt
Dómur er ekki fallinn og krafa saksóknara er aðeins krafa. Eftir málflutning er málið dómtekið og hefur dómari þá fjórar vikur til að kveða upp dóm, samkvæmt RÚV.
„Hún er gjarnan bara eitthvað að bulla“
Saksóknari var ekki að skafa utan af því þegar hann fjallaði um framburð Írisar Helgu. „Eins og annað í þessu máli þá eru sönnunargögnin yfirgnæfandi,“ sagði hann samkvæmt mbl.is og bætti við að framburður ákærðu stæðist enga skoðun. „Hún er gjarnan bara eitthvað að bulla,“ sagði saksóknari.
Hann fór yfir rafræn gögn, meðal annars leitarsögu Írisar Helgu, þar sem leitað hafði verið að enskum hugtökum yfir ófrægingarherferð og umsáturseinelti. Íris Helga virtist ekki kippa sér mikið upp við málflutninginn, fékk sér Happy Hydrate og skrifaði á blað af miklum móð, að því er fram kemur á mbl.is.
Samkvæmt Vísi sagði sækjandi málið fordæmalaust að eðli, umfangi og alvarleika og að Íris Helga hefði gert sitt besta til að leggja líf fólks í rúst. Meðal brotaþola eru tvær unglingsstúlkur.
Saksóknari telur að líta beri til nýlegra nálgunarbanna sem Íris Helga hefur sætt eftir að aðalmeðferðin hófst, til refsiþyngingar.
Íris Helga komin í nýtt nálgunarbann eftir ásókn gegn brotaþolum í vikunni
Þá er krafist allt að þriggja mánaða fangelsis yfir manninum sem viðurkenndi að hafa makað saur á eigur brotaþola, en hann er einnig ákærður í málinu.
„Dómari má ekki gefa einhvern magnafslátt“
Helga Vala Helgadóttir, verjandi Írisar Helgu, krafðist sýknu af öllum ákæruliðum, til vara að henni yrði ekki gerð refsing og til þrautavara að refsingin yrði væg og að öllu leyti skilorðsbundin.
„Dómari má ekki gefa einhvern magnafslátt“ af sönnunarbyrðinni, sagði Helga Vala samkvæmt mbl.is. Sanna þyrfti hvern ákærulið fyrir sig. Hún benti einnig á að merki um fjaraðgangsforritið TeamViewer hefðu fundist á einni af þremur tölvum sem skoðaðar voru.
Verjandinn sagði lögreglu ekki hafa kannað nægilega hvort einhver annar hefði getað stýrt tækjum Írisar Helgu með fjaraðgangi. „Ákæruvaldið virðist hafa gleymt að spyrja,“ sagði hún samkvæmt Vísi.
Gengst við dekkjasparki og döðlugotti
Íris Helga gengst við tilteknum heimsóknum og samskiptum en telur þau ekki refsiverð. Samkvæmt mbl.is viðurkennir hún meðal annars að hafa sparkað í dekk á bíl manns árið 2022 og að hafa skilið eftir döðlugott í afmælisgjöf við heimili annars manns.
„Það verður að gera greinarmun á viðurkenningu á verki og því hvort um saknæmt athæfi sé að ræða. Viðurkenning á einu verki er ekki viðurkenning á öðru,“ sagði Helga Vala samkvæmt Vísi.
Hún sagði Írisi Helgu glíma við viðvarandi áfallastreitu vegna álagsins og að krafa ákæruvaldsins um óskilorðsbundið fangelsi væri órökstudd.
„Hún hefur viðurkennt breyskleika og reiði en ekki þá háttsemi sem hún er sökuð um.“