Pete Hegseth varnarmálaráðherra Bandaríkjanna segir að tilraun flokksfélaga síns til að ákæra sig til embættismissis sé pólitísk sýndarmennska. Hún hafi ekkert með það að gera að láta hann sæta ábyrgð fyrir afglöp í starfi.
Hegseth hefur verið undir þrýstingi að láta af embætti eftir að bæði Donald Trump forseti Bandaríkjanna og JD Vance varaforseti gáfu til kynna að slæmt tap Repúblikana í þingkosningunum í síðustu viku mætti að stórum hluta skrifa á stríðið í Íran.
Thomas Massie, þingmaður Repúblíkana í Kentucky, hefur hafið undirbúning að tillögu um að Hegseth verði ákærður. Massie er mikill gagnrýnandi Trumps en er nú á leið út af þingi þar sem hann tapaði forvali Repúblikana í ríkinu fyrir frambjóðanda sem Trump studdi.
Sakaður um aftöku án dóms og laga
Stór hluti tillögunnar fjallar einmitt um stríðið í Íran. Þar er Hegseth sakaður um að hafa brotið lög um stríðsrekstur þar sem fram kemur að hafa þurfi þingið með í ráðum þegar stórar hernaðaraðgerðir eru undirbúnar. Það ætti líka við um aðgerðir gegn Hútum í Jemen í fyrra. Þær aðgerðir þóttu of harkalegar og Sameinuðu þjóðirnar töldu vafa leika á að þær stæðust mannréttindasáttmálann. Þá hafi umdeildar árásir á meinta smyglbáta með eiturlyf verið aftaka án dóms og laga.
Hegseth vísaði í þetta á blaðamannafundi sem hann hélt í dag til að svara þessum ásökunum.
„Þetta er farsi og sýndarmennska og það vita það allir. Tilraunir eins þingmanns sem er fúll og tapsár er hvorki eftirlit með störfum mínum né að láta mig sæta ábyrgð. Þetta er pólitísk sýndarmennska.“
Hegseth varði jafnframt aðgerðir hersins í Jemen, Íran og Venesúela.
„Ég stend við allar þessar aðgerðir. Ég var stoltur af því að hrinda þeim í framkvæmd og myndi gera það aftur á morgun.“
Donald Trump hefur lýst yfir stuðningi við Hegseth á samfélagsmiðlum og hrósað honum fyrir að verjast tilraunum til ákæru.