Dómstóll götunnar hafi þegar sakfellt Írisi Helgu

Dómstóll götunnar hafi þegar sakfellt Írisi Helgu

Dómstóll götunnar hafi þegar sakfellt Írisi Helgu

Ákæruvaldið rannsakaði gögn í máli Írisar Helgu Jónatansdóttur ekki til þaula, að mati Helgu Völu Helgadóttir verjanda Írisar Helgu. Hún er sökuð um umfangsmikið umsáturseinelti gegn þremur mönnum og öðrum tengdum þeim. Aðalmeðferð lauk í Héraðsdómi Reykjaness í dag.

Helga Vala krefst þess að Íris Helga verði sýknuð í öllum ákæruliðum.

Má ekki gefa magnafslátt af sönnunarkröfu

Málflutningur ákæruvaldsins stóð í 90 mínútur. Verjandi fékk svipaðan tíma til að flytja sitt mál. Meðferð rafrænna gagna var áberandi í umfjöllun Helgu Völu, verjanda Írisar.

Helga Vala tók undir það sem saksóknari og réttargæslumenn hafa sagt við málflutning í morgun: málið sé umfangsmikið enda ákæruliðir tæplega 70 talsins og brotaþolar níu.

Hún lagði þó áherslu á að meta þyrfti hvern ákærulið fyrir sig og skoða hann með tilliti til sektar eða sýknu.

„Dómari má ekki gefa magnafslátt á sönnunarkröfu vegna fjölda ákæruliða. Það þarf að vera hafið yfir skynsamlegan vafa að hún hafi framið brotið.“

Íris Helga hefur viðurkennt tiltekin verk fyrir dómi.

Helga Vala hnaut að tímamörkum ákæruvaldsins og sagði sett fram loðin og víðfeðm tímamörk á brotunum.

„Í stað þess að styðja málið með gögnum hefur ákæruvaldið ákveðið að kasta út veðfeðmu neti.“

Það sé ekki í hlutverki Írisar Helgu að fylla upp í eyður ákæruvaldsins. „Sönnunarbyrðin hvílir á ákæruvaldinu.“

Segir ákæruvaldið ekki hafa rannsakað gögn til þaula

Verulegur hluti sakargiftanna gegn Írisi Helgu varðar rafræn gögn. Hún er sökuð um að hafa stofnað margvíslega reikninga á samfélagsmiðlum, undir eru einnig tölvupóstsamskipti og fjöldi rafrænna skjala.

Að mati Helgu Völu, verjanda Írisar, brást lögregla í frumrannsókn varðandi rafrænu gögnin. Hún sagði fleiri hafa haft aðgang að tækjum Írisar, tölvum og snjallsíma, en aðeins hún.

Íris Helga kannist ekki við þá aðganga sem fundust í tækjum hennar.

Helga Vala gagnrýndi rannsókn lögreglu, þá sérstaklega varðandi tækin. Hún gerði þá kröfu fyrir hönd Írisar Helgu að sími hennar og tæki yrðu borin saman við síma notenda. Auðvelt hefði verið að skoða hvort sími hennar hafi verið nálægt tækjunum í hvert sinn.

Í stað þess hafi lögreglan tekið nokkurs konar ljósrit af tækjunum en ekki kannað hvort einhver annar en hún hafi komist í þau. Eins hafi netbeinir (e. router) Írisar ekki verið kannaður.

„Þessar skyldur til rannsóknar vanrækti lögreglan á Suðurnesjum algjörlega.“

Sími Írisar Helgu var afritaður en ekki rannsakaður á sínum tíma með tilliti til fjaraðgangs, að sögn Helgu Völu. Síðar hafi verið skoðað hvort tækið hafi borið með sér ummerki fjaraðgangs.

Gögn í málinu, sem tengjast fyrsta ákærukafla ákærunnar, hafi ekki verið könnuð með tilliti til fjaraðgangs. Til dæmis hafi lögregla ekki rannsakað tæki þeirra einstaklinga sem héldu til á heimili Írisar Helgu, meðal annars barnsföður hennar. Hún krafðist þess að dómari meti hvort það standist rannsóknarskyldu ákæruvaldsins.

„Ákæruvaldið rannsakaði ekki gögnin til þaula, það er, það gat einhver annar nýtt sér aðgang að tölvu hennar með fjaraðgangi, næraðgangi eða netbeini.“

Helga Vala benti á að það liggi ekki fyrir hver hafi staðið að sendingu sumra skilaboðanna, né hver hafi tekið á móti sumum sendingum.

„Ef það liggur ekki fyrir í gögnum sem ákæruvaldið leggur fyrir dóm þá er það einfaldlega ósannað.“

Hún benti á að huglæg afstaða vitnis sanni ekki hver sendi skilaboð og að það sé ekki móttakandans að skilgreina hver sendi þau heldur ákæruvaldsins að sanna það.

Vitni og brotaþolar ræði öll við hvort annað og auk þess blandist fjölmiðlaumfjöllun inn í málið. Fréttastofa hefur fjallað um þá miklu athygli sem málið hefur fengið.

„Íris Helga kannast við að hafa átt í samskiptum við hluta hópsins. Dómari stendur frammi fyrir því að fletta í gegnum 2000 blaðsíður af gögnum og fletta í gegnum myndir og skjöl sem liggja fyrir og dómari þarf að meta hvort fram sé komin sönnun um að öll umrædd skilaboð komi frá ákærðu.“

Helga Vala sagðist telja að ákæruvaldið hefði misst sjónar af því að leiða hið sanna og rétta í ljós.

Linnulaus opinber umræða

Hún bendir á að linnulaus opinber umræða hafi fylgt málinu og leggur áherslu á að horft sé á málið heildstætt og þá heift sem hefur verið í umræðunni. Dómari eigi eftir að lesa í það með gagnrýnni augum hvað hvert og eitt vitni hefur lagt til málsins.

Eins og fram kom ofar fer hún fram á að Íris Helga verði sýknuð í öllum ákæruliðum. Sú krafa sé byggð á því að hún hafi verið samvinnuþýð og meðal annars stöðug í sínum framburði frá fyrstu skýrslu.

Hún segir ómennskt álag hafa verið á Írisi Helgu og það sé staðfest af geðlækni. Hún hafi verið lasin og illa sofin í skýrslutöku „en samt greint frá með bestu getu.“

Það fyrsta sem ákæruvaldið bar undir Írisi Helgu var atvik sem á að hafa gerst 2022. Þá var hún sökuð um að hafa farið að heimili eins brotaþola með krukku sem hún sagði að innihéldi fóstur sem hún hefði misst eftir að hafa gengist undir þungunarrof. Við aðalmeðferðina neitaði Íris Helga þessu.

Helga Vala benti á það við málflutning í dag að engin gögn finnist sem sýni að umrædd krukka hafi borist brotaþolanum.

„Hann man það heldur ekki við skýrslutökur. Það eru engar myndir sem styðja móttöku krukkunnar.“

Hún sagði nú þegar búið að sakfella Írisi Helgu.

„Það er búið að sakfella ákærðu fyrir utan þennan dómstól, það eru allir með á hreinu að hún hafi gert þetta.“

Íhuga eigi að gera henni ekki upp refsingu verði hún sakfelld

Fölsk dánartilkynning birtist í Morgunblaðinu í apríl um einn mannanna sem Íris Helga er sökuð um að hafa stundað umsáturseinelti gegn.

Helga Vala benti á að lögregla hefði ekki sýnt fram á hver hefði keypt og borgað fyrir birtingu dánartilkynningarinnar.

Helga Vala sagði það ekki vera skilyrði að hver einstök athöfn sé metin refsiverð sjálfstætt. Lögin heimili heldur ekki óstaðfestar ásakanir eða óstaðfest gögn.

„Krafa um sýknu er vegna þess að ákæruvaldinu tókst ekki að sanna sakarefni í 63 ákæruliðum.“

Hún sagði refsingu verða að miðast við sannaða sök, ekki viðbrögð almennings og þá gríðarlegu athygli sem málið hafi fengið. Málið hafi ekki haft góð áhrif á Írisi Helgu. Meðal annars hafi verið hrópað á hana úti á götu og Helga Vala sagði geðræna heilsu hennar ekki góða.

Það kom einnig fram í máli hennar að Íris Helga væri sakhæf. Matsmaður hafi metið hana sakhæfa fyrir dómi á föstudag en þá var þinghald lokað. Sálfræðingur sem Íris Helga hafi verið hjá lengi hafi sagt hana með viðvarandi áfallastreituröskun.

„Íhuga eigi alvarlega að gera ákærðu ekki upp refsingu verði hún fundin sek.“

Helga Vala krafðist þess fyrir hönd Írisar Helgu að refsing verði að öllu leyti skilorðsbundin, verði hún sakfelld.

Aðalmeðferð í málinu er þar með lokið. Miðað er við að dómar séu kveðnir upp innan fjögurra vikna, en þó eru dæmi um að það taki 6 til 8 vikur.

#dómstóll #götunnar #hafi #sakfellt #þegar


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-11-10-domstoll-gotunnar-hafi-thegar-sakfellt-irisi-helgu-492280

📰 Aðrar fréttir

Davíðstíminn: Það hjálpaði okkur að vera svona ættlitlir
📅 11.11.2026 👁️ 1
Davíðstíminn: Það hjálpaði okkur að vera svona ættlitlir
Íslenskt samfélag er svo lítið og tengt að það getur verið erfiðleikum háð að fjalla um menn eða málefni án þess að stíga á einhverjar tær. Feðgarnir ...
Flughálka fram undan á suð­vestur­horninu - Vísir
📅 11.11.2026 👁️ 1
Flughálka fram undan á suð­vestur­horninu - Vísir
Þetta kemur fram á vefsíðu Vegagerðarinnar, umferðin.is. Þar segir að í fyrramálið fari að snjóa í fremur hægri og suðlægri átt sunnan- og vestanlands...
Leggur til 15 ára aldurstakmark á samfélagsmiðla
📅 11.11.2026 👁️ 1
Leggur til 15 ára aldurstakmark á samfélagsmiðla
Börn yngri en 15 ára mega ekki hafa sjálfstæðan aðgang að samfélagsmiðlum gangi frumvarp sem Inga Sæland barna- og menntamálaráðherra mælti fyrir í da...
ESB vill banna duldar auglýsingar og ávanabindandi efni á netinu
📅 11.11.2026 👁️ 1
ESB vill banna duldar auglýsingar og ávanabindandi efni á netinu
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hyggst setja ný lög innan aðildarríkja sem tryggja eiga vernd neytenda gegn ávanabindandi efni á netinu og netversl...
Mátti færa staðgengil sinn til í starfi
📅 11.11.2026 👁️ 2
Mátti færa staðgengil sinn til í starfi
Ríkisendurskoðun hefur verið sýknuð af kröfum staðgengils ríkisendurskoðanda sem krafðist þess að ákvörðun um tilfærslu hennar í starfi yrði felld úr ...
Fresta gildis­töku laga um brottfarastöð - Vísir
📅 11.11.2026 👁️ 1
Fresta gildis­töku laga um brottfarastöð - Vísir
Til stóð að lögin myndu taka gildi þann 1. desember 2027 en með frumvarpinu sem lagt verður fyrir þingið á næstu dögum mun það taka gildi þann 1. dese...
Morðingi bíður í of­væni eftir Brand - Vísir
📅 11.11.2026 👁️ 1
Morðingi bíður í of­væni eftir Brand - Vísir
Ásakanir í garð Russells Brand vörðuðu sex konur og náðu yfir tímabilið 1999 til 2009. Hann var ákærður fyrir þrjár nauðganir, þrjú kynferðisbrot og f...
Önnur hver ný í­búð selst undir á­settu verði - Vísir
📅 11.11.2026 👁️ 1
Önnur hver ný í­búð selst undir á­settu verði - Vísir
Þetta kemur fram í nýjum tölum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) sem birtar voru í dag. Þær sýna að sífellt stærri hluti íbúða selst undir auglýs...
Margir minnast Marðar Árnasonar af mikilli hlýju - „Það var aldrei lognmolla í kringum Mörð!“
📅 11.11.2026 👁️ 1
Margir minnast Marðar Árnasonar af mikilli hlýju - „Það var aldrei lognmolla í kringum Mörð!“
Mörður Árnason, fyrrum þingmaður, lést í gærmorgun, 73 ára að aldri, á líknardeild Landspítalans í Kópavogi eftir erfið veikindi síðustu tvo mánuði, e...
Lögreglan trúði vart eigin augum þegar rafhlaupahjólið var prófað
📅 11.11.2026 👁️ 1
Lögreglan trúði vart eigin augum þegar rafhlaupahjólið var prófað
Lögreglumenn í þýsku borginni Iserlohn ráku upp stór augu þegar rafhlaupahjól, sem þeir höfðu lagt hald á hjá 16 ára pilti, reyndist geta náð 127 kíló...
Öryggisbrestur hjá þjónustuveitanda Icelandair - Óviðkomandi fékk aðgang að bókunarupplýsingum farþega
📅 11.11.2026 👁️ 1
Öryggisbrestur hjá þjónustuveitanda Icelandair - Óviðkomandi fékk aðgang að bókunarupplýsingum farþega
Icelandair greinir frá því í tilkynningu að félagið hafi verið upplýst um öryggisbrest hjá Amadeus, alþjóðlegum þjónustuveitanda sem rekur bókunarkerf...
Bróðir Viktor Orban handtekinn og grunaður um mansal - „Ég er skotmarkið“
📅 11.11.2026 👁️ 1
Bróðir Viktor Orban handtekinn og grunaður um mansal - „Ég er skotmarkið“
Aron Orban, bróðir Viktors Orban fyrrverandi forseta Ungverjalands, hefur verið handtekinn. Hann er grunaður um mansal og misbeitingu áhrifa í stjórna...
Pétur hættir í hagræðingarhópi borgarinnar - „Reynsla síðustu mánaða hefur valdið mér vonbrigðum“
📅 11.11.2026 👁️ 1
Pétur hættir í hagræðingarhópi borgarinnar - „Reynsla síðustu mánaða hefur valdið mér vonbrigðum“
Pétur Marteinsson, borgarfulltrúi og oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, hefur ákveðið að hætta þátttöku í hagræðingarhópi borgarinnar, en hann er ...
Sendiherra Rússlands í Washington lést skyndilega
📅 11.11.2026 👁️ 1
Sendiherra Rússlands í Washington lést skyndilega
Alexander Darkíeff, sendiherra Rússlands í Bandaríkjunum, er látinn 66 ára að aldri.Andlátið bar brátt að, segir í tilkynningu frá rússneska utanríkis...
Pétur hættur í hagræðingarhópnum - Vísir
📅 11.11.2026 👁️ 1
Pétur hættur í hagræðingarhópnum - Vísir
Frá þessu greinir Pétur í færslu á Facebook. Þar segir hann að þegar hann tók sæti í hagræðingarhópnum í sumar hafi hann gert það af heilindum. Hann t...
Bein út­sending: Íbúa­fundur um endur­kaup Grind­víkinga - Vísir
📅 11.11.2026 👁️ 1
Bein út­sending: Íbúa­fundur um endur­kaup Grind­víkinga - Vísir
Fasteignafélagið Þórkatla tilkynnti um endurkaupaáætlunina í gær. Grindvíkingar sem vilji flytja aftur geti gert það með þrennum hætti, að því er sagð...
US Treasury Secretary Scott Bessent relocated after alleged Iranian threats
📅 11.11.2026 👁️ 1
US Treasury Secretary Scott Bessent relocated after alleged Iranian threats
Bessent is now one of several Trump administration officials to live on military bases due to safety concerns.
Miklar um­ferðar­tafir á Bústaða­vegi og víðar - Vísir
📅 11.11.2026 👁️ 1
Miklar um­ferðar­tafir á Bústaða­vegi og víðar - Vísir
Til stendur að opna fyrir umferð um rampinn í síðasta lagi klukkan 17 en framkvæmdirnar hafa staðið yfir frá því klukkan 9 í morgun, samkvæmt upplýsin...
Geymsluþolinn matur rýkur út eftir útgáfu bæklings almannavarna
📅 11.11.2026 👁️ 1
Geymsluþolinn matur rýkur út eftir útgáfu bæklings almannavarna
Sala á hrísgrjónum og dósamat hefur aukist um 100 prósent og sala á eldspýtum um 200 prósent. Geymsluþolinn matur rýkur út eftir útgáfu bæklings alman...
Telur stjórn Lands­virkjunar bera alla á­byrgð - Vísir
📅 11.11.2026 👁️ 1
Telur stjórn Lands­virkjunar bera alla á­byrgð - Vísir
„Stjórn Landsvirkjunar er sjálfstæð stjórn og mér finnst hún í rauninni bera alla ábyrgð á málunum eins og þeim er fyrir komið í dag,“ sagði Inga þega...
Orðið á götunni: Kristrún sló í gegn í London
📅 11.11.2026 👁️ 1
Orðið á götunni: Kristrún sló í gegn í London
Í síðustu viku stóð Arion banki ásamt fleirum fyrir ráðstefnu í London til kynningar á fjárfestingartækifærum á Íslandi. Ráðstefnan þótti heppnast afb...
Jón Gnarr: „Krúa Thai jafnmikill hluti af þjóðmenningu okkar og Múlakaffi“
📅 11.11.2026 👁️ 1
Jón Gnarr: „Krúa Thai jafnmikill hluti af þjóðmenningu okkar og Múlakaffi“
Jón Gnarr, þingmaður utan flokka, segir það mikinn misskilning að íslensk þjóðmenning hafi orðið til í einangrun og án áhrifa frá öðrum þjóðum. Þvert ...
Vinnuslys á Patreksfirði: Fingurnir drógust inn í roðflettivél
📅 11.11.2026 👁️ 1
Vinnuslys á Patreksfirði: Fingurnir drógust inn í roðflettivél
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur viðurkennt bótaskyldu úr ábyrgðartryggingu VÍS vegna vinnuslyss sem varð í fiskvinnslufyrirtækinu Odda hf. á Patreksfirð...
Simmi Vill tjáir sig um lokanir veitingastaðanna: „Þetta er nú meiri vikan“
📅 11.11.2026 👁️ 1
Simmi Vill tjáir sig um lokanir veitingastaðanna: „Þetta er nú meiri vikan“
„Þetta er nú meiri vikan,“ segir Simmi Vill og vísar þar til frétta af tíðum lokunum veitingastaða í vikunni, stöðum sem nafn hans hefur tengst. Í dag...
Customer arrested after knife threat over haircut comment in Gran Canaria
📅 11.11.2026 👁️ 1
Customer arrested after knife threat over haircut comment in Gran Canaria
A customer has been arrested after allegedly threatening to kill a hairdresser with a knife following a disagreement over a comment about his haircut ...
Líkur á flughálku í fyrramálið
📅 11.11.2026 👁️ 1
Líkur á flughálku í fyrramálið
Lægðardrag á Grænlandshafi þokast nær landinu með snjókomu vestantil í fyrramálið, en einnig í öðrum landshlutum. „Jafnframt hlýnar hægt og bítandi og...
Hætta sölu neftókbakshorna
📅 11.11.2026 👁️ 1
Hætta sölu neftókbakshorna
ÁTVR ætlar að hætta framleiðslu neftóbakshorna. Búist er við að birgðir klárist í nóvember. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ÁTVR.Íslenskt neftóbak ...
Snjó­fram­leiðsla hafin - Vísir
📅 11.11.2026 👁️ 1
Snjó­fram­leiðsla hafin - Vísir
Starfsmenn vonast eftir betri vetri en í fyrra en síðustu mánuði hefur nýtt yfirbyggt Töfrateppi verið sett upp, girðingum verið bætt við og ýmsu viðh...
Inga segist munu uppræta klám í skólum ef það finnst – allt logar í Skólaþróunarspjallinu
📅 11.11.2026 👁️ 1
Inga segist munu uppræta klám í skólum ef það finnst – allt logar í Skólaþróunarspjallinu
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, segir að hún muni uppræta klám í kennslu hjá ungum börnum komist hún að því að slíkt efni sé notað. Hún bið...
Engar hífingar hjá Land­helgis­gæslunni - Vísir
📅 11.11.2026 👁️ 2
Engar hífingar hjá Land­helgis­gæslunni - Vísir
Samkvæmt Ásgeiri Erlendssyni, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar, var þessi ákvörðun tekin með tilliti til öryggis áhafna og þeirra sem þurfa á að...
Mjög miklar umferðartafir
📅 11.11.2026 👁️ 1
Mjög miklar umferðartafir
Mjög miklar umferðartafir eru í Reykjavík vegna lokunar ramps frá Bústaðavegi niður á Hafnarfjarðarveg, í átt að Kópavogi, þar sem malbikunarframkvæmd...
Miklar umferðartafir vegna malbikunarframkvæmda
📅 11.11.2026 👁️ 1
Miklar umferðartafir vegna malbikunarframkvæmda
Mjög miklar umferðartafir eru í Reykjavík vegna lokunar fráreinar frá Bústaðavegi niður á Hafnarfjarðarveg, í átt að Kópavogi, þar sem malbikunarframk...
Vísar allri ábyrgðinni á stjórn Landsvirkjunar
📅 11.11.2026 👁️ 1
Vísar allri ábyrgðinni á stjórn Landsvirkjunar
„Stjórn Landsvirkjunar er sjálfstæð stjórn og mér finnst í rauninni hún bera alla ábyrgð á málunum eins og þeim er fyrir komið í dag.“ Þetta sagði Ing...
Kennarar nýttu gervigreind til að laga námsefni að ólíkum þörfum
📅 11.11.2026 👁️ 1
Kennarar nýttu gervigreind til að laga námsefni að ólíkum þörfum
Kennarar nýttu gervigreind til að laga námsefni að ólíkum þörfum Fréttin11. nóvember 2026Gervigreind, Innlent, SkólamálLeave a Comment Grunnskólakenna...
Hundruð skóla bárust sprengjuhótanir
📅 11.11.2026 👁️ 2
Hundruð skóla bárust sprengjuhótanir
Skólastarf raskaðist um gervalla Ítalíu í dag þegar sprengjuhótanir voru sendar á hundruð skóla í landinu.Ljóst þykir að hótanirnar séu gabb og segir ...
Hundruðum skóla bárust sprengjuhótanir
📅 11.11.2026 👁️ 1
Hundruðum skóla bárust sprengjuhótanir
Skólastarf raskaðist um gervalla Ítalíu í dag þegar sprengjuhótanir voru sendar á hundruð skóla í landinu.Ljóst þykir að hótanirnar séu gabb og segir ...
Donald – „halta öndin“
📅 11.11.2026 👁️ 2
Donald – „halta öndin“
Donald – „halta öndin“ Fréttin11. nóvember 2026Erlent, Helga Dögg Sverrisdóttir, PistlarLeave a Comment #image_title Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar:...
Russia-Ukraine talks turn to post-war security but end without breakthrough
📅 11.11.2026 👁️ 2
Russia-Ukraine talks turn to post-war security but end without breakthrough
Talks in Abu Dhabi centred around Europe's security framework, with US envoys due to meet Putin and Zelensky on Thursday.
Al­gengt að menn dvelji hér lang­dvölum ó­lög­lega - Vísir
📅 11.11.2026 👁️ 2
Al­gengt að menn dvelji hér lang­dvölum ó­lög­lega - Vísir
Landsréttur úrskurðaði manninn í gæsluvarðhald í upphafi mánaðar til þess að koma í veg fyrir að hann kæmi sér undan því að verða framseldur til Írlan...
Harmageddon | Um styrkhæf sjónarmið meirihlutans
📅 11.11.2026 👁️ 2
Harmageddon | Um styrkhæf sjónarmið meirihlutans
HarmageddonTil er fólk sem telur að fjölmiðlastyrkur stjórnvalda eigi eingöngu að ná til þeirra miðla sem ganga í takt við ákveðnar meginstraumslínur ...
Salma sneri baki við vinstrinu og segir frá óhugnanlegri reynslu
📅 11.11.2026 👁️ 1
Salma sneri baki við vinstrinu og segir frá óhugnanlegri reynslu
Salma Björk Önnudóttir, formaður ungliðahreyfingar Miðflokksins, hefur greinilega verið spurð að því hvers vegna hún hafi gengið í flokkinn. Hún útský...
ÁTVR kveður neftóbakshornin – Löng saga senn á enda
📅 11.11.2026 👁️ 3
ÁTVR kveður neftóbakshornin – Löng saga senn á enda
ÁTVR hefur ákveðið að hætta framleiðslu neftóbakshorna og munu þau því brátt hverfa af markaði. Gert er ráð fyrir að síðustu birgðirnar klárist í nóve...
Hætta í háloftunum: Farþegi sagðist vera með sprengju og ætlaði inn í flugstjórnarklefann
📅 11.11.2026 👁️ 2
Hætta í háloftunum: Farþegi sagðist vera með sprengju og ætlaði inn í flugstjórnarklefann
Karlmaður á fertugsaldri var handtekinn á flugvellinum í New Orleans í Bandaríkjunum eftir að hafa hótað því að vera með sprengju. Maðurinn reyndi að ...
Fundu barnaníðsefni í þúsundavís við húsleit hjá manni í Reykjavík
📅 11.11.2026 👁️ 2
Fundu barnaníðsefni í þúsundavís við húsleit hjá manni í Reykjavík
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur ákært mann sem búsettur er í miðborg Reykjavíkur fyrir kynferðisbrot, en maðurinn hafði mikið barnaníðsefn...
Samherjagátan 2019 til 2025: Skattgreiðslur 7,2 milljarðar
📅 11.11.2026 👁️ 3
Samherjagátan 2019 til 2025: Skattgreiðslur 7,2 milljarðar
Skattgreiðslur til íslenska ríkisins vegna viðskipta systkinanna Baldvins og Kötlu Þorsteinsbarna með hlutabréf í útgerðarfélaginu Samherja á árunum 2...
Ráðuneytið eyðir 6,8 milljónum króna í COP31
📅 11.11.2026 👁️ 2
Ráðuneytið eyðir 6,8 milljónum króna í COP31
Íslenska ríkið sendir tíu manna sendinefnd á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP31, sem stendur yfir í Tyrklandi.Jóhann Páll Jóhannsson, umhver...
Stutt í að konurnar komist inn í hlýjuna - Vísir
📅 11.11.2026 👁️ 2
Stutt í að konurnar komist inn í hlýjuna - Vísir
Frá 25. ágúst hafa tveir af þremur inniklefum Sundhallar Reykjavíkur verið lokaðir. Framkvæmdir eru í gangi í bæði karla- og kvennaklefanum og hafa ka...
Akureyringar gagnrýna Tenerife-flug Icelandair
📅 11.11.2026 👁️ 2
Akureyringar gagnrýna Tenerife-flug Icelandair
Einhverjir Akureyringar fögnuðu eflaust þeim fréttum sem bárust í gær að Icelandair ætlaði að hefja beint flug frá Akureyri til Tenerife næsta haust. ...
Ófært í Hamarsfirði og Álftafirði vegna hvassviðris
📅 11.11.2026 👁️ 2
Ófært í Hamarsfirði og Álftafirði vegna hvassviðris
Hringvegurinn er ófær milli Djúpavogs og Hafnar, vegna mikils hvassviðris. Gul viðvörun er í gildi vegna norðvestan storms á Austfjörðum og Suðausturl...
Kominn með þriðja verjandann og er hættur við að játa - Vísir
📅 11.11.2026 👁️ 2
Kominn með þriðja verjandann og er hættur við að játa - Vísir
Vísir fjallaði um mál mannsins í september eftir að fyrri gæsluvarðhaldsúrskurður yfir honum var birtur. Í honum segir meðal annars að í greinargerð L...