Hinn 37 ára Radcliffe, sem lék í átta kvikmyndum um Harry Potter á árunum 2001 til 2022, var staddur á frumsýningu Netflix-teiknimyndarinnar Steps í New York á mánudaginn.
Leikarinn var þar spurður hvort hann ætlaði sér að horfa á nýju seríuna um Harry Potter sem aðlagar fyrstu bókina um galdrastrákinn, Harry Potter og viskusteininn, að sjónvarpsskjánum.
„Ég veit ekki hvort ég muni gera það, í sannleika sagt. Ég hef horft og verið í mikið af Harry Potter nú þegar... og svo horfi ég ekki mikið á sjónvarp,“ sagði Radcliffe við Associated Press.
„Ég hef ekki séð Breaking Bad. Ég hef ekki séð Mad Men. Ég hef ekki séð mikið af klassíkinni. Þannig að átta klukkutímar eru ansi mikið til að horfa á,“ bætti hann við.
Radcliffe lék Harry Potter í tíu ár en sagðist aðspurður ekki vera með nein ráð fyrir hinn tólf ára Dominic McLaughlin, sem leikur Potter í seríunni.
„Ég er sannarlega á því máli að gefa Dominic ekki nein ráð. Hann er alveg með þetta. Hann þarf ekki nein ráð frá mér,“ sagði hann um leikarann unga.
Allt sem hann segði í viðtölum myndi enduróma áfram til McLaughlin.
„Ég vil ekki ásækja þetta grey barn gegnum viðtöl! Þannig ég er ekki með nein ráð fyrir hann. Hann verður stórkostlegur. Og ég held að ég muni hitta hann einn daginn og ég er mjög spenntur fyrir því,“ sagði hann.
Radcliffe greindi frá því að hann hefði skrifað bréf til McLaughlin í fyrra í kjölfar frétta af því að hann hefði fengið hlutverkið. Hann hefði óskað honum til hamingju og sagst vona að hann myndi skemmta sér í tökunum á þáttunum.
Fyrsta þáttaröðin af Harry Potter-seríunni verður frumsýnd á jóladag á streymisveitunni HBO Max.