Óhætt er að segja að hinn orðheppni og hispurslausi tónlistargagnrýnandi Jónas Sen hafi verið afar ánægður með tónleika Daða Freys Péturssonar og Sinfóníuhljómsveitar Íslands sem fram fóru síðastliðið fimmtudagskvöld.Jónas hefur lof sitt á eftirfarandi orðum:„Steikt ýsa með sítrónupipar getur verið góð. En steikt ýsa með mjög miklum sítrónupipar er ekkert endilega miklu betri. Í gegnum tíðina hafa popptónleikar með Sinfóníuhljómsveit Íslands einmitt einkennst af of miklum sítrónupipar. Hljómsveitin þekur aumingja poppsöngvarann í svo miklum pipar að hann verður óætur.“
Jónas heldur ekki vatni yfir Daða og Sinfó - „Steikt ýsa með sítrónupipar getur verið góð“