Heilbrigðisráðuneytið hefur kallað eftir niðurstöðum erfðarannsókna Íslenskrar erfðagreiningar allt frá árinu 1996.
Kári Stefánsson, stofnandi og fyrrverandi forstjóri fyrirtækisins, greindi frá þessu í Morgunútvarpinu í gær og sagði tilganginn að byggja upp einstaklingssniðna heilbrigðisþjónustu í landinu.
Það er staðfest í skriflegu svari frá ráðuneytinu þar sem segir að stefnumótunarnefnd um einstaklingsmiðaða heilbrigðisþjónustu hafi skilað Ölmu Möller heilbrigðisráðherra skýrsludrögum í júní 2025.
Þau séu grundvöllur þingsályktunartillögu ráðherra um málið sem hún mælti fyrir í liðinni viku.
Íslensk erfðagreining hafi lýst yfir fullum vilja til að koma að mótun og framkvæmd þjónustunnar samkvæmt þeim markmiðum sem fram koma í tillögunni. Áður en gögnin fást afhent þarf að breyta lögum um vísindarannsóknir á heilbrigðissviði, sem er á þingmálalista heilbrigðisráðherra.
Niðurstöður rannsókna ÍE hafa varpað ljósi á uppruna sjúkdóma og orsök
Niðurstöður erfðafræðirannsókna Íslenskrar erfðagreiningar hafa fyrst og fremst nýst við að auka skilning á orsökum sjúkdóma, lyfjaþróun og forvarnir fyrir fólk sem kann að vera berskjaldað fyrir alvarlegum heilsubresti.
Á vef Íslenskrar erfðagreiningar segir að fólki sem greinist með áhættuarfgerðir hafi verið boðin sérhæfð ráðgjöf hjá Landspítalanum.
Íslendingar gátu einnig nálgast upplýsingar á vefnum arfgerd.is um hvort þeir beri BRCA2-krabbameinsgenið sem eykur mikið líkur á brjóstakrabbameini, eggjastokkakrabbameini og krabbameini í blöðruhálskirtli.
Rannsóknir ÍE hafa einnig skýrt erfðafræðilegan uppruna fjölda sjúkdóma á borð við sykursýki, hjarta- og æðasjúkdóma og geðsjúkdóma ásamt því að varpa ljósi á erfðafræðilegan uppruna landsmanna.