Fjöldamorðinginn kynnti sér Breivik
Dómsmálaráðherra Póllands segir manninn sem sakaður er um að hafa myrt sex í Kraká hafa undirbúið árásina og sýnt merki um hægriöfgahyggju.
Byssumaður sem er sakaður um að hafa myrt sex manns á torgi í Kraká hafði sýnt alræmdum norskum fjöldamorðingja og nýnasista mikinn áhuga og önnur merki um róttækni á hægri væng, sagði dómsmálaráðherra Póllands í dag.
Waldemar Zurek dómsmálaráðherra sagði að Michal Oksinski hefði búið sig undir skotárásina á laugardag með því að kaupa um tíu skotgeyma fyrir hálfsjálfvirkan riffil og 500 skot.
„Það er ljóst að þessi maður var að undirbúa verknað,“ sagði Zurek, sem er einnig ríkissaksóknari, á blaðamannafundi. Þá var einn dagur liðinn frá því að Oksinski, 24 ára, lést á sjúkrahúsi af sárum sem hann hlaut í skotbardaga við lögreglu.
Oksinski er sakaður um að hafa skotið sex manns til bana, þar á meðal austurríska konu og breskan karlmann, og sært 15 á Aðalmarkaðstorginu í Kraká áður en hann var stöðvaður. Hann er einnig grunaður um að hafa myrt foreldra sína og systur …