Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofunni. Skjálftar af þessari stærð eru algengir í Bárðarbungu.
„Síðast varð skjálfti af þessari stærðargráðu í Bárðarbungu þann 19. október síðastliðinn en sá mældist 5,2 að stærð, en þar áður varð skjálfti af stærð 4,7 þann 5. október síðastliðinn.
Skjálftar sem þessir hafa mælst reglulega síðustu misseri og tengjast kvikusöfnun í Bárðarbungu eftir Holuhraunsgosið 2014-2015. Engin merki eru um gosóróa,“ segir í tilkynningunni.