Margar konur hafa ásakað breska grínistann og barnabókahöfundinn David Walliams um að hafa nýtt sér frægð sína til að stofna til kynferðislegs sambands við þær þegar þær voru unglingar eða ungmenni. The Guardian og ITV News greina frá þessu.
Flestar kvennanna segjast hafa verið orðnar lögráða þegar þær áttu í samskiptum við Walliams. Tvær greina þó frá því að hafa verið undir lögaldri þegar þær áttu í samskiptum við hann.
Guardian segir einnig að fjöldi samstarfskvenna hans hafi greint frá óviðeigandi hegðun Walliams, bæði hjá þættinum Britain's Got Talent, þar sem hann var dómari, og bókaforlaginu HarperCollins.
Hætta útgáfu bóka hans
HarperCollins greindi frá því í september að forlagið myndi ekki lengur gefa út bækur Walliams. Í desember hafði það tilkynnt að fleiri bækur eftir hann kæmu ekki út hjá því.
Guardian fullyrðir nú að þetta hafi verið vegna ásakana um að hann hefði átt í kynferðislegu sambandi við unga samstarfskonu.
Daily Telegraph greindi frá því í desember að ungur starfsmaður hjá forlaginu hefði kvartað undan Walliams. Umboðsmaður hans þvertók þá fyrir að hann hefði hegðað sér með óviðeigandi hætti.
Walliams hefur einnig neitað fyrir ásakanir í hans garð.
Fjöldi bóka eftir Walliams hefur komið út á íslensku. Þar á meðal eru til dæmis Amma glæpon, Vonda frænkan og Rottuborgari. Hann kom til Íslands árið 2022 og áritaði bækur í verslun Eymundsson í Smáralind.