Stór skjálfti reið yfir í Bárðarbungu klukkan 13:37 í dag. Hann var af stærðinni 4,5 og engir eftirskjálftar hafa fylgt þegar þetta er skrifað. Þá hafa engar tilkynningar borist við Veðurstofu Íslands um að skjálftinn hafi fundist í byggð.
Skjálftar af þessari stærð eru algengir á þessum slóðum og tengjast kvikusöfnun í Bárðarbungu eftir Holuhraunsgosið 2014-2015. Engin merki eru um gosóróa.
Síðast varð skjálfti af þessari stærðargráðu í Bárðarbungu þann 19. október. Hann mældist 5,2 að stærð, en þar áður varð skjálfti af stærð 4,7 þann 5. október.