Árásirnar voru gerðar í bænum Komyshuvakha í Sapórisjía þann 2. nóvember. Degi áður höfðu ráðamenn í bænum lýst því yfir á samfélagsmiðlum að íbúar, sem voru enn nokkur hundruð, gætu komið í skólann til að fá brauð og aðrar nauðsynjar á milli tíu og hádegis.
Þetta munu íbúar hafa gert reglulega, þar sem bærinn er eingöngu í um tuttugu kílómetra fjarlægð frá víglínunni. Í skólanum fengu þau oft nauðsynjar og annars konar aðstoð, auk þess sem þau komu þar saman til að spjalla og leita sér skjóls vegna sprengjuregns.
Blaðamenn CNN hafa fengið aðgang að upptökum úr vestismyndavélum viðbragðsaðila í bænum og einnig myndir af sprengjubrotum og öðru sem varpar ljósi á hvurslags sprengjur Rússar notuðu.
Skömmu fyrir klukkan tíu lentu tvær sprengjur á skólalóðinni, samkvæmt yfirvöldum í Úkraínu. Um tuttugu mínútum síðar voru viðbragðsaðilar mættir á vettvang og þá höfðu margir leitað í neðanjarðarskýli á lóðinni.
Á upptökum þeirra má samkvæmt CNN sjá miklar skemmdir á byggingum á skólalóðinni og brak víða. Viðbragðsaðilar voru að reyna að bjarga konu sem sat föst undir steypuplötu.
Nokkrum mínútum síðar berast skilaboð um að von sé á fleiri sprengjum. Íbúum og viðbragðsaðilum var sagt að leita sér skjóls en margir fóru ofan í áðurnefnt byrgi.
Klukkan 10:35 sýndu upptökur úr vestismyndavélum tveggja lögregluþjóna mikla sprengingu í byrginu, sem hrundi ofan á fólkið sem hafði leitað sér þar skjóls.
Myndband úr vestismyndavél lögreglumanns má sjá í spilaranum hér að neðan.
Að minnsta kosti sex sprengjur féllu svo í kjölfarið.
Myndefni sem tekið var eftir árásina sýnir stærðarinnar gíg og hefur hann verið staðsettur á milli beggja innganga í byrgið sem fólkið flúði í.
An utterly horrific Russian attack on the settlement of Komyshuvakha in the Zaporizhzhia region. Since this morning, the settlement has been hit several times by aerial bombs. The strikes targeted a school used for humanitarian purposes – people were receiving humanitarian aid there. After the first aerial bomb strike, there was a double-tap strike with nine more bombs, specifically targeting the shelter where people were taking cover. Tragically, 18 people have already been reported killed. My condolences to their families and loved ones. Five people have been injured. A rescue operation is underway at the site, and the search for people continues. It is extremely difficult. Military forces, first responders, and special services are involved. The Russians could not have been unaware that every week, local residents who had remained in Komyshuvakha received humanitarian aid at that very location. And this is further proof that Russia wants no de-escalation and no real justice. After the humanitarian operation in Oleshky, there was a moment when the next steps could have shown that progress toward peace was possible. With these killings, Russia is sending an entirely opposite signal: Russia is counting on more killings. There must be a response to this – a response from the world. A strong and tough response. A response to Russia. And support for Ukraine. We must protect lives. Thank you to everyone who is helping!
— Volodymyr Zelenskyy / Володимир Зеленський (@ZelenskyyUa) November 2, 2026
Eins og áður segir dóu rúmlega fimmtíu í árásunum og þar á meðal fjórir lögregluþjónar og tveir björgunarsveitarmenn.
Á ensku eru árásir sem þessar kallaðar „Double-Tap“ árásir og eru þær iðulega gerðar af hryðjuverkamönnum víðs vegar um heiminn og er þeim ætlað að valda miklu mannfalli meðal viðbragðsaðila sem bregðast við fyrstu árásinni. Rússar voru á árum áður ítrekað sakaðir um árásir sem þessar í Sýrlandi en þeir hafa einnig gert fjölmargar í Úkraínu.
Báru kennsl á sprengjuna
Úkraínumenn hafa tilgreint hvaða sprengju Rússar notuðu til að granda byrginu og fella fólkið þar inni. Hún er sögð vera af gerðinni FAB-3000 en það er sérstök svifsprengja sem er hönnuð til að granda neðanjarðarbyrgjum
Svifsprengjur eru oft stórar gamlar sprengjur sem Rússar hafa sett vængi og staðsetningarbúnað á. Þeim er varpað hátt úr lofti og geta svifið tugi kílómetra áður en þær lenda á skotmörkum sínum.
FAB-3000 er tæplega þrjú tonn að þyngd.
We obtained exclusive video of munitions fragments at the scene. With help from @easybakeovensz, we identified the wing of a Russian UMPK glide bomb guidance kit, consistent with those fitted to the FAB-3000, a 6,000-pound bomb designed to target fortified underground structures https://t.co/ORXYiOV2Qd
— Allegra Goodwin (@goodwinallegra) November 10, 2026
CNN ræddi við sérfræðinga sem skoðuðu myndefni frá bænum og myndir af sprengjubrotum og braki úr vængjum sprengjunnar, sem staðfestu að um FAB-3000 væri að ræða.
Danielle Bell, yfirmaður starfshóps Mannréttindaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna í Úkraínu, hefur fordæmt árásina. Degi eftir að árásin var gerð sagði hún að um skýrt brot á mannréttindalögum væri að ræða.
„Annaðhvort vissu rússneskir hermenn að þarna átti mannúðarverkefni að eiga sér stað, eða þeir tóku ekki það grunnskref að kanna hvað væri um að vera í bænum sem þeir ætluðu sér að ráðast á. Hvort sem það er, þá virðist þessi árás hafa brotið gegn grundvallargildum alþjóðlegra mannréttindalaga.“
Hér að neðan má sjá myndband frá í sumar þegar FAB-3000 var varpað á annan bæ í Sapórisjía.
Russia released footage showing a 3-ton FAB-3000 glide bomb striking the front-line town of Orikhove in Ukraine’s Zaporizhzhia region. The heavy guided bomb, which carries around 1.4 tons of explosives, was launched from a Russian aircraft roughly 40 km away using a glide kit that allows it to travel long distances after release.
— Clash Report (@clashreport) July 13, 2026