Blaðaðamaður Vísis ræddi við skipuleggjendur Ítalskra kvikmyndadaga, kvikmyndafræðinginn Kolbein Rastrick og verkefnastjórann Gaiu Alba.
Hvernig kom þetta til?
„Ég hef búið hérna í Reykjavík í dágóðan tíma og hef verið að fara í Bíó Paradís. Þar hef ég mætt á franska og þýska daga og séð margar pólskar myndir þannig að mér fannst við þurfa að vera með ítalska daga,“ segir Gaia.
Hún segist hafa fundið fyrir ást Íslendinga á Ítalíu, menningu landsins og matargerð og hugsað með sér að landinn tæki ítölskum kvikmyndadögum fagnandi. Reynsla Gaiu við skipulagningu kvikmyndahátíðarinnar Stockfish hafi nýst vel.
„Við vorum með ítalskan fókus á Stockfish og eftir hátíðina þá sagði ég við Kolbein að mig langaði að hafa ítalska kvikmyndadaga og meira af ítölskum bíómyndum. Hann var meira en til í það,“ segir Gaia.
„Ítalski fókusinn á Stockfish var líka uppseldur nánast um leið þannig að áhuginn var til staðar,“ bætir Kolbeinn við.
Tvær sígildar, hrollvekja og ein ný
Fjórar ítalskar kvikmyndir verða sýndar á hátíðinni en skipuleggjendum hefur tekist vel til við að fanga ólíka hluta ítalskrar kvikmyndagerðar með valinu.
„Fyrsta myndin er Gioia Mia. Við völdum hana því hún er ný og Gaia þekkti aðeins til hennar,“ segir Kolbeinn.
„Leikstjórinn Mia Margarita Spampinato er nýbúin að vinna David di Donatello-verðlaun og aðalleikkonan, Aurora Quattrocchi, var líka valin besta leikkonan þar þannig myndin vakti athygli mína,“ segir Gaia.
„Síðan á föstudaginn sýnum við La Dolce Vita sem er algjörlega íkónísk mynd og ég held að hún hafi ekki verið sýnd hérlendis síðan 1974 þegar hún var sýnd á Fjalarkettinum. Þannig þetta er gott tækifæri til að sjá hana í kvikmyndahúsi, sérstaklega af því hún er þrír klukkutímar og Fellini er algjör stórmeistari,“ segir Kolbeinn.
La Dolce Vita vakti mikla hneykslan Rómverja þegar hún kom út árið 1960, svo mikilli hneykslan að þær fregnir bárust alla leið til Íslands.
„Á laugardaginn sýnum við Profondo Rosso eftir Argento en ein af kvikmyndum hans, Tenebrae, var bönnuð á Íslandi á níunda áratugnum. Fyrir sýninguna ætlum við að vera með pöbbkvisss sem Nikkita Hamar, kennari við Háskóla Íslands og mikill aðdáandi allra ógeðslegra hluta, heldur,“ segir Kolbeinn.
„Þetta er líka ákveðin endurreisn miðnætursýningarinnar hjá Bíó Paradís því hún byrjar á miðnætti,“ bætir Kolbeinn við.
Fjórða og síðasta myndin er Disney-myndin Gosi frá 1940 en það eru einmitt liðin tvö hundruð ár frá því Carlo Collodi, höfundur Gosa, fæddist.
Ítalskt smakk, miðnæturpasta, hrollvekjukvöld og ítalski boltinn
Það verða þó ekki bara kvikmyndir á boðstólnum heldur nokkrir góðir viðburðir.
„Á opnunarkvöldinu verður ediksmökkun og happdrætti frá Iceland Gourmet sem flytja inn edik. Það verða líka snittur frá Cibo Amore og sardinískt vín. Þannig geta gestir fengið sér bita og sopa af Ítalíu áður en myndin hefst,“ segir Kolbeinn.
„Eftir sýninguna á föstudaginn erum við að hugsa um að hafa ókeypis miðnæturpasta fyrir fólk og svo verður plötusnúður sem þeytir skífum. Fyrir laugardaginn höfum við verið að hvetja fólk til að fara fyrst í Escape Room á Hverfisgötu og skíta á sig af hræðslu, svo í hryllingspöbbkviss og nota heilann og enda svo á Profondo Rosso og skíta aftur á sig af hræðslu,“ segir hann.
„Á sunnudaginn sýnum við Gosa fyrir börnin og oft bíða foreldrarnir fyrir utan og drekka bjór. Hvernig eru sunnudagar á Ítalíu? Fótboltagláp,“ segir Gaia.
„Við ætlum að sýna nokkra gamla leiki með Ítalíu - enda ítalska landsliðinu gengið hræðilega undanfarið. Við sýnum kannski leiki frá 2006 eða tíunda áratugnum sem foreldrarnir geta horft á meðan þeir sötra bjór.“