Karlmaður situr í gæsluvarðhaldi grunaður um fjölda brota, þar á meðal sex líkamsárásir, á þessu ári. Hann var handtekinn grunaður um að hafa, í samfloti við þrjá aðra, rænt dreng í Reykjavík í síðustu viku.
Þeir eru taldir hafa ógnað honum með bæði byssu og hnífi, slegið hann, tekið af honum farsímann og látið hann millifæra á þá fé.
Auk þessa máls er maðurinn með 14 opin mál í kerfum lögreglu, öll frá því á þessu ári. Þeirra á meðal eru sex líkamsárásir, þar af fimm stórfelldar, og þrjú rán.
Hann er auk þeirra brota grunaður um vopnalagabrot, valdstjórnarbrot, fíkniefnalagabrot, frelsissviptingu, fjárkúgun, þjófnað, hótanir, tilraun til húsbrots og eignaspjöll.
Þá er hann grunaður um að hafa haft stera í vörslu sinni.
Ungur og viðkvæmur maður, segir verjandi
„Miðað við framangreinda brotahrinu varnaraðila er það mat lögreglustjóra að yfirgnæfandi líkur séu á því að hann muni halda áfram brotastarfsemi fari hann frjáls ferða sinna á meðan málum hans sem eru til meðferðar hjá lögreglu er ekki lokið,“ segir í rökstuðningi lögreglustjóra í gæsluvarðhaldsúrskurði.
Verjandi mannsins vildi að litið væri til þess að hann væri bæði ungur og viðkvæmur. Dómari taldi hins vegar að maðurinn héldi áfram að brjóta af sér færi hann frjáls ferða sinna.
„Að mati dómsins verður ekki séð að sú brotahrina sem nú hefur staðið yfir nær sleitulaust frá því í ágúst sl. verði ekki að svo stöddu stöðvuð með öðrum hætti en því að fallast á kröfu sóknaraðila,“ segir í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur.
Maðurinn sætir gæsluvarðhaldi til 2. desember.