Í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni segir að æfingin, sem mun ljúka í lok næstu viku, fari að mestu fram innan öryggissvæðisins á Keflavíkurflugvelli. Hún muni þó einnig fara fram við hafnir á Suðurnesjum.
Vegafarendur þar geta því átt von á að sjá sprengjusérfræðinga og búnað þeirra á förnum vegi meðan á æfingunni stendur.
„Markmið Northern Challenge er að æfa og samhæfa viðbrögð sprengjusérfræðinga við atvikum sem kunna að koma upp, meðal annars vegna hryðjuverka. Verkefnin taka mið af þeim ógnum sem fyrir hendi eru í heiminum í dag. Meðal annars er líkt eftir sprengjum sem fundist hafa víða um heim og þurfa þátttakendur að leysa verkefni sem snúa að meðhöndlun þeirra og aftengingu.“
Auk sprengjusérfræðinga taka fulltrúar Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) þátt í æfingunni en þeir munu miðla af reynslu sinni hvað varðar meðhöndlun sönnunargagna.
Northern Challenge er stærsta sprengjueyðingaræfing sinnar tegundar og hún er sögð njóta mikillar virðingar meðal þjóða í NATO.
Fréttastofa fékk að kíkja á æfinguna þegar hún var haldin hér á landi í fyrra.