Til stendur að innheimta nýtt náttúru- og innviðagjald af erlendum ferðamönnum sem hyggjast skoða Geysi, Gullfoss eða Þingvelli. Verði frumvarp innviðaráðherra samþykkt hefst gjaldtakan þann 1. maí á næsta ári en gjaldið hljóðar upp á 4.500 krónur yfir sumarmánuðina en annars 3.000 krónur.
Jón Bjarnason, oddviti sveitastjórnar Hrunamannahrepps, segir skamman fyrirvara óásættanlegan.
„Fyrst og fremst eru þessi áform bara illa ígrunduð að okkar mati, illa unnin og í litlu samráði við hagaðila, hvort sem það eru fyrirtæki í greininni eða sveitarfélög,“ segir Jón.
Gjaldskyldir ferðamannastaðir séu allir á sama atvinnusvæði á Suðurlandi.
„Okkur finnst þetta auðvitað ekki réttlátt og ef stjórnvöld ætla sér að skattleggja eða setja á náttúru og innviðagjald, þá ætti það að vera með landsdekkandi úrræðum. Þannig að það gildi jafnt yfir alla.“
Nú þegar sé fólk farið að finna leiðir til þess að komast hjá gjaldtökusvæðum. Hann hafi heyrt af því að hópar með skipulagðar ferðir séu að skoða að fara fremur á austurbakka Hvítár við Gullfoss í stað vesturbakkans þar sem innviðir og þjónustumiðstöð eru til staðar.
„Við urðum svolítið stressuð við að heyra það og fórum og hittum landeigendur og ræddum þessa stöðu sem upp er komin, því það er auðvitað gríðarlegur fjöldi sem er að koma á vesturbakkann í dag, um 1,7 milljón ferðamanna. Það þarf ekkert mörg prósent af því til að setja svæðið á austurbakkanum í algjört uppnám.“
Lítið svigrúm sé til viðbragða á svo skömmum tíma með til dæmis uppbyggingu við austurbakka Gullfoss.
„Þetta er líka bara landverndarmál. Þarna er auðvitað undir viðkvæm náttúra og mér finnst skrýtið að ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur ætli sér að keyra þetta mál í gegn bara hvað það varðar. Við viljum ekki spóla aftur í tímann um tíu til fimmtán ár, þannig að staðan sé bara eins og þegar ferðamenn voru fyrst að koma til Íslands.“