Aðalmeðferð málsins lauk fyrir Héraðsdómi Reykjaness í dag með málflutningi sækjanda og verjanda í málinu. Fram kom í morgun að ákæruvaldið krefst fimm til sex ára fangelsis yfir Írisi Helgu sem sökuð er um umfangsmikið umsáturseinelti, rangar sakargiftir, skjalafals, ærumeiðingar, barnaverndarbrot, aðrar hótanir og rógburð.
Sagði sækjandi í málinu meðal annars að Íris Helga hefði gert sitt besta til að leggja líf fólks í rúst.
Helga Vala Helgadóttir, verjandi Írisar, hóf málflutning sinn í morgun á því að segja að hin ákærða gerði kröfu um sýknu í öllum ákæruliðum málsins, til vara að henni yrði ekki gerð refsing og til þrautavara að refsing yrði væg og að öllu leyti skilorðsbundin. Krafðist hún jafnframt lækkunar bótakröfu í málinu.
„Viðurkenning á einu verki er ekki viðurkenning á öðru“
Því næst fór hún yfir ákæruliðina í löngu máli en málflutningur hennar tók alls eina og hálfa klukkustund. Sagði hún að ekki væri hægt að fjalla um málið án þess að nefna hversu umfangsmikið það væri og að skoða þyrfti hvert og eitt tilvik. Sagði hún þó fjölda ásakana ekki koma í stað sönnunar né það hversu margir teldu sig vita hvað hafi gerst.
„Dómari má ekki gefa magnafslátt af sönnunarkröfu vegna fjölda ákæruliða, dómnum ber að sanna hvern og einn lið sem ákærðu er gefið að sök,“ sagði Helga Vala en Íris Helga er ákærð í sextíu og þremur mismunandi ákæruliðum.
Hefur Íris Helga neitað sök í verulegum hluta ákæruliða en viðurkennt tiltekin verk.
„Það verður að gera greinarmun á viðurkenningu á verki og því hvort um saknæmt athæfi sé að ræða. Viðurkenning á einu verki er ekki viðurkenning á öðru,“ sagði Helga Vala jafnframt og bætti við að dómurinn yrði ekki reistur á getgátum, ágiskunum eða umfjöllun áhrifavalda og blaðamanna.
Vinnubrögð lögreglu óvönduð og greinargerð ófullnægjandi
Málsgögn í málinu telja tæpar 2000 blaðsíður og sagði Helga Vala nokkurt rugl á gögnum frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum. Sagði hún að þar væri meðal annars sagt frá skýrslutöku sem á að hafa átt sér stað á þremur mismunandi tímum og þar skeiki jafnvel árum. Á sama tíma sé Írisi Helgu ætlað að svara til saka um að hafa verið að verki á ákveðnum tímapunkti og skeiki einhverjum dögum þar sé hún talin ótrúverðug.
Sagði Helga Vala vinnubrögð lögreglunnar vera óvönduð og gagnrýndi hún sérstaklega að lögregla hefði ekki kannað hvort tækjum sem haldlögð voru við rannsókn málsins, meðal annars tölvum og símum, gæti hafa verið stýrt í gegnum fjaraðgang; það er að einhver annar en Íris Helga hefði getað stýrt hennar tækjum án þess að vera með þau í höndum.
„Verjandi spurði um notkun fjaraðganga og lögregla svaraði neitandi hér fyrir dómi. Af hverju var þetta ekki kannað?“ spurði Helga Vala og talaði um IP-tölur, reikninga af samfélagsmiðlum og sjálfvirka útfyllingu skjala sem fundist hafi í gögnunum. Þetta komi þó ekki í veg fyrir rannsóknarskýrslu sem hún hafi kallað eftir um mögulega notkun fjaraðganga.
Við aðalmeðferð á miðvikudag spurði Helga Vala lögreglumann sem þá bar vitni út í rannsókn hvað þetta varðar. Í kjölfarið hafi hún fengið í hendur greinargerð þar sem þrjú tæki voru skoðuð með tilliti til þess hvort þeim gæti hafa verið stýrt í gegnum fjaraðgang. Sagði hún að í tveimur þeirra hafi engin merki fundist um slíkt en hins vegar hafi það fundist í þriðja tækinu en um var að ræða síma og tölvur í eigu Írisar Helgu.
„Greinargerð með tilliti til fjarstýringa er ófullnægjandi. Það er bara tekið til þessara þriggja tækja á einum tímapunkti. Hafi ákæruvaldinu verið alvara með að svara þessum spurningum hefði þurft að fara í gegnum öll gögn. Það var ekki gert,“ sagði Helga Vala.
„Ákæruvaldið virðist hafa gleymt að spyrja“
Þá hafi ekki verið skoðað hvort einstaklingar sem héldu til hjá henni hafi verið með fjaraðgang að tækjum og tölvum. Nefndi hún meðal annars barnsföður Írisar Helgu, sem nýtti rétt sinn til að neita að bera vitni fyrir dómi, sem og Sölva Guðmundsson sem Helga Vala sagði hafa haft aðgang að netbeini og tækjum ákærðu. Sölvi er meðal brotaþola í málinu.
„Notkun Teamviewer var skoðuð á tilgreindum og afar afmörkuðum tíma. Hvítur netbeinir var haldlagður en ekkert gert meira með það. Það liggur ekki fyrir hvort netbeinir eða önnur tæki hafi verið tekin yfir með fjaraðgangi á löngum tíma í málinu. Ákæruvaldið virðist hafa gleymt að spyrja.“
„Ákæruvaldið ber hallann af því að hafa ekki rannsakað gögnin í þaula,“ sagði Helga Vala og bætti við að skjólstæðingur hennar hafi nefnt möguleika á fjaraðgögnum við fyrstu skýrslutöku í málinu.
Liggi ekki fyrir hvort gögn hafi yfirhöfuð verið til
Hélt hún síðan áfram að rengja gögn ákæruvaldsins í málinu og gagnrýndi sérstaklega skjöl sem brotaþolar í málinu hafi sent lögreglu og ákæruvaldi, meðal annars myndir og skjáskot af færslum á samfélagsmiðlum og mynd af miða sem hengdur hafi verið á dyrabjöllu eins brotaþola. Sagði hún mörg þeirra án tímasetningar og dagsetningar.
„Það er eins og það hafi dugað að klippa út myndir og líma inn í Word-skjal eins og það sé sönnun um að ákærða hafi gert eitthvað. Lögregla virðist ekki hafa gert neitt til að afla þessara gagna sjálf. Það er ekki móttakanda að skilgreina sendanda heldur ákæruvalds að sanna hver sendi gögnin,“ sagði hún og nefndi dæmi um miða sem átti að hafa verið hengdur á dyrabjöllu eins brotaþola.
„Allar myndir voru heimatilbúnar og lögregla var ekki kölluð til til að sannreyna uppruna gagna. Það liggur ekki fyrir hvort þau voru send eða voru yfirhöfuð til.“
Þá hafi ákæruvaldið misst sjónar á því að leiða það rétta í málinu í ljós. Til dæmis sé ekki sannað hvort Íris Helga hafi verið við tölvu þegar skilaboðin eigi að hafa verið send.
Glími við viðvarandi áfallastreitu
Helga Vala sagði jafnframt að myndir frá sumum brotaþolum væru allt myndir sem þeir hefðu sjálfir sent lögreglu sem hefði tekið við gögnum án þess að kanna tilvist þeirra. Tímasetning og uppruni rafrænna gagna væru óupplýst og því bæri að sýkna Írisi Helgu af öllum ákæruliðum sem lúti að rafrænni sendingu gagna.
Helga Vala sagði annmarka á rannsókninni geta skipt sköpum. Ályktun dugi ekki til sakfellingar ákærðu og benti hún á það sem hún sagði vera tengsl brotaþola og linnulausa umfjöllun um málið.
„Það hefur verið ómennskt álag á ákærðu sem er staðfest af sálfræðingi. Hún er með viðvarandi áfallastreitu, hefur verið lasin og ósofin en samt sem áður greint frá öllu í skýrslutökum og verið samræmd í sínu máli. Skoða verður uppruna ásakananna en ekki hversu oft þeim hefur verið haldið fram af þeim sem eru í þéttu samtali um málið.“
„Hún hefur viðurkennt breyskleika og reiði“
Þá gagnrýndi hún framburð vitnis sem sagði frá því að sírópi hefði verið hellt í póstkassa sambýliskonu eins brotaþola. Það væri skrýtið að vitnið hefði varla munað eftir skýrslutöku sem það fór í en verið harðákveðið í því að hafa séð Írisi.
„Þetta er lýsandi fyrir þetta mál, það er búið að sakfella ákærðu fyrir utan þennan dómstól. Það eru allir með á hreinu að hún hafi gert þetta allt, að hvaðeina sem gerist á suðvesturhorninu megi rekja til hennar.“
Í umræðu um bótakröfur, sem saman telja milljónir, sagði hún að Íris Helga kannaðist ekki við frásagnir samstarfsmanna hennar úr grunnskóla sem sögðu Írisi Helgu ítrekað hafa talað um dóttur Garps Elísabetarsonar sem dóttur sína. Ákærða hafi aldrei nálgast ákærða eða dóttur hans á nokkurn hátt nema þegar hún hafi skilið eftir döðlugott fyrir utan heimili hans sem hann hafi þakkað henni fyrir.
Þar kom einnig fram að Íris Helga hafi verið metin sakhæf af geðlækni sem bar vitni fyrir dómi á föstudag. Krafa ákæruvalds um fimm til sex ára óskilorðsbundinn fangelsisdóm væri órökstudd og málið yrði ekki leyst út frá því hvor hliðin teldist viðfelldnari heldur með sönnunargögnum og hvort þau fullnægðu skilyrðum um sekt.
„Hún hefur viðurkennt breyskleika og reiði en ekki þá háttsemi sem hún er sökuð um.“