Katrín Ólafsdóttir hagfræðingur, dósent við viðskipta- og hagfræðideild Háskólans í Reykjavík, segir mikið vantraust ríkjandi gagnvart efnahagskerfinu sem geti torveldað vaxtalækkanir.
„Það er eins og fólk trúi því almennt ekki að verðbólga hér verði tvö og hálft prósent. Það getur orðið mjög erfitt að ná þessum væntingum niður og ef við náum þeim ekki niður getur orðið mjög erfitt að ná verðbólgumarkmiðinu,“ sagði Katrín á Morgunvaktinni á Rás 1.
Katrín segir sér finnast óþægilegt að loforð matvöruverslana um að lækka eða frysta vöruverð fram að áramótum hafi ekki haldið að fullu, samkvæmt nýrri könnun verðlagseftirlits ASÍ.
„Það verður að vera tiltrú og það verður að vera traust en þegar maður fær svona fréttir fer traustið aðeins á flot.“
Fréttir bárust af því í gær að dagvöruvísitala Alþýðusambands Íslands hefði hækkað á tímabilinu ágúst til nóvember þrátt fyrir loforð matvöruverslana um að lækka verð til að sporna við verðbólgu.
Verðlagseftirlit ASÍ hefur þó mælt aukna tíðni verðlækkana í haust. Hækkun dagvöruvísitölu ASÍ um 0,33% má fyrst og fremst rekja til verðhækkana á kjöti og mjólkurvörum samkvæmt tilkynningu. Verðlækkanir hafa hins vegar að mestu verið bundnar við innfluttar vörur.
Seðlabankinn hafi aðeins vexti til að hafa stjórn á efnahagslífinu, að sögn Katrínar, og ekki sé heldur alveg öruggt hvaða önnur tæki stjórnvalda geti virkað.
Katrín nefnir boðuð hallalaus fjárlög og að gott sé að ríkisstjórnin vilji forðast þensluhvetjandi áhrif. Framkvæmdin hafi áhrif enda skipti rekstur ríkissjóðs máli.
„Aftur erum við komin að trúverðugleikanum. Heldur þetta með hallalausu fjárlögin?“ Katrín vill ekki taka undir spár um að kreppa sé við sjóndeildarhringinn þótt hér hafi myndast slaki í efnahagsmálunum.