Hann gaf til kynna að með því að reyna að ákæra sig væri verið að reyna að ákæra bandaríska hermenn, sem væru hetjur. Þá tók Hegseth fram nokkrum sinnum að hann hefði ekkert gert í embætti, sem Donald Trump forseti skipaði honum ekki að gera.
„Þetta er ekki föðurlandsást. Þetta eru skemmdarverk.“
Hegseth hélt í dag sinn fyrsta blaðamannafund í um hálft ár, þar sem hann ítrekaði að í 250 ára sögu Bandaríkjanna hefði enginn varnarmálaráðherra verið ákærður fyrir embættisbrot, vegna „lögmætra hernaðaraðgerða,“ eins og hann orðaði það.
Þá jós Hegseth lofi yfir Trump sem besta yfirmanni herafla Bandaríkjanna um árabil.
.@SecWar: "President Trump gave this Department what it has not had in a generation: a Commander-in-Chief with the courage to lead and the resolve to win." https://t.co/3HtEX5nahs
— Rapid Response 47 (@RapidResponse47) November 10, 2026
Sagði þetta slæm skilaboð til óvina Bandaríkjanna
Þetta var í fyrsta sinn frá því í maí sem Hegseth ræddi við blaðamenn á þar til gerðum fundi, þrátt fyrir að Bandaríkin eigi í stríði við Íran og hafi haldið áfram mannskæðum árásum á báta meintra fíkniefnasmyglara.
Thomas Massie, fráfarandi þingmaður Repúblikanaflokksins, lagði í gær fram ákæru á hendur Hegseths fyrir embættisbrot. Ákæran eru í átta liðum sem flestir snúa að stríðinu gegn Íran.
Ákæran snýr einnig að áhlaupinu á Venesúela þegar Nicolas Maduro var numinn á brott og árásum Bandaríkjanna gegn Hútum í Jemen. Eins og frægt er þá bættu starfsmenn Hegseths blaðamanni fyrir mistök inn í Signal-spjall embættismanna um árásirnar, áður en þær hófst.
Ákæran snýr þar að auki að fjölmörgum banvænum árásum á báta meintra fíkniefnasmyglara á Karíba- og Kyrrahafi.
Sjá einnig: Leggur fram ákæru gegn Hegseth vegna embættisbrota
Hegseth sagði að með gjörðum sínum væri Massie að sýna klerkastjórninni í Íran, leiðtogum fíkniefnagengja og öðrum andstæðingum Bandaríkjanna að ríkið „refsaði sínum eigin stríðsmönnum og borgaralegum leiðtogum fyrir það eitt að framkvæma lögmætar hernaðaraðgerðir“.
Áhugasamir geta horft á blaðamannafundinn í heild sinni í spilaranum hér að neðan.
Umdeildar árásir á báta
Trump og starfsfólk hans hafa haldið því fram að Bandaríkin eigi í átökum við fíkniefnasamtök í Suður-Ameríku sem hafa verið skilgreind sem hryðjuverkasamtök. Því hefur verið haldið fram að þessir meintu smyglarar séu vígamenn og Bandaríkin eigi í átökum við þá.
Sjá einnig: „Við ætlum að drepa þá. Þeir verða, sko, dauðir“
Engar sannanir hafa enn sem komið er verið lagðar fram til að sanna þessar ásakanir og dómstólar hafa ekki fjallað um sekt manna um borð í þessum bátum. Þá er ekki dauðarefsing við fíkniefnasmygli í neinu ríki Bandaríkjanna. Árásirnar hafa því verið kallaðar aftökur án dóms og laga.
Árás á einn tiltekinn bát er sérstaklega umdeild. Í henni lifðu tveir menn árás af og héldu sér á floti með því að halda í brennandi brak úr bátnum sem var sprengdur úr lofti. Þá mun önnur árás hafa verið gerð sérstaklega til að bana mönnunum.
Slíkt væri stríðsglæpur, samkvæmt Genfarsáttmálanum og samkvæmt reglum varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna.
„Þetta snýst ekki um mig,“ sagði Hegseth á einum tímapunkti. Hann sagði þingmenn vera að reyna að saka sjóliða og flugmenn sem gerðu árásir á þessa báta um stríðsglæpi, fyrir það eitt að vinna vinnuna sína.
Sjá einnig: Óreiðan ræður ríkjum í Pentagon
Hann sagði „þá“ gera með þessu lítið úr stjórnarskrá Bandaríkjanna og reyna að gera glæpamenn úr stríðsmönnum sem hefðu framfylgt lögmætum skipunum.
„Ef þeir vilja koma á eftir stríðsmönnunum, munu þeir þurfa að fara í gegnum mig.“
Í ákærum Massie er ekkert talað um meinta stríðsglæpi bandarískra hermanna, heldur eingöngu meint brot Hegseths.
Verður líklega ákærður en aldrei sakfelldur
Í stjórnarskrá Bandaríkjanna þar sem fjallað er um ákærur fyrir embættisbrot er ekki tekið fram hvaða brot teljast tilefni til slíkra ákæra og brottvísana úr embætti. Á ensku er talað um „high crimes and misdemeanors“ sem gæti þýst sem „alvarleg afbrot og misgjörðir“, en það að hugtakið sé ekki skilgreint í stjórnarskránni er til marks um að það sé í raun þingmanna að meta hvort þeim finnist tilefni til að ákæra í hverju tilfelli fyrir sig.
Mögulegt er að atkvæðagreiðsla um ákærur Massies fari fram í fulltrúadeildinni í vikunni. Fjölmiðlar vestanhafs segja mögulegt að Hegseth verði sakfelldur, miðað við það að allir þingmenn Demókrataflokksins eru líklegir til að greiða atkvæði með ákæru og að margir Repúblikanar, sem eru í meirihluta þar til í janúar, hafa sagst opnir fyrir því einnig.
Sjá einnig: Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn
Þá er útlit fyrir að margir fráfarandi þingmenn Repúblikanaflokksins verði ekki í Washington DC þegar atkvæðagreiðslan fer fram.
Repúblikanar hlutu afhroð í þingkosningunum fyrr í þessum mánuði og misstu meirihluta sína í báðum deildum þingsins. Kjósendur vísuðu margir til Íransstríðsins sem ástæðu fyrir reiði í garð Repúblikana.
Johnson var spurður út í ákæruna þegar þingmenn mættu til vinnu í dag. Hann sagði Massie vera bitran og í leit að athygli. Johnson sagði að Hegseth hefði staðið sig frábærlega í starfi og að hann hefði staðið sig vel á blaðamannafundinum í dag.
Hvað varðar ákæruna sjálfa sagðist Johnson þeirrar skoðunar að hún yrði „sigruð“ með einni aðferð eða annarri. Síðan gætu þingmenn haldið störfum sínum áfram.
Q: Hegseth called Massie a disgruntled congressman. Johnson: Thomas Massie is a disgruntled congressman, and the impeachment effort is a political gambit for attention. I think Secretary Hegseth did an extraordinary job. I watched most of the press conference. I thought he did very well. I expect that we’re going to defeat that one way or the other, and we’ll get on with the business. The idea that you would impeach the Secretary of War at a time of international conflict sends a terrible message to our enemies and our allies, and we are not going to play that game. You don’t impeach a Cabinet secretary lightly. They had no due process. There’s nothing that went into this. This is just purely for people to get attention, and it’s shameful.
— Acyn (@Acyn) November 10, 2026
Í grein Punchbowl News, sem sérhæfir sig í að fjalla um þing Bandaríkjanna, er haft eftir þingmönnum Repúblikanaflokksins að Hegseth verði ákærður. Hvað gerist í framhaldinu er þó óljóst.
Til að sakfella Hegseth og vísa honum úr embætti þarf tvo þriðju þingmanna öldungadeildarinnar til. Hvort ákæran myndi nokkurn tímann rata fyrir öldungadeildina er ekki víst, þar sem Mike Johnson, forseti fulltrúadeildarinnar, gæti dregið hælana í að senda þær þangað.
Ef fari svo að Johnson sendi ákæruna áfram, verði hún samþykkt í fulltrúadeildinni, gæti John Thune, leiðtogi Repúblikana þar, fellt þær niður og sleppt því að taka þær til umræðu. Það gerðu Demókratar til að mynda þegar Repúblikanar í fulltrúadeildinni ákærðu Alejandro Mayorkas, heimavarnaráðherra Joes Biden, í febrúar 2024.
Einfaldan meirihluta öldungadeildarþingmanna þarf til að fella ákæruna niður.