Sprengjan sprakk þegar lögregla og sprengjusveit brást við útkalli vegna skotárásar í blokk í Oviedo í Astúríashéraði á Norður-Spáni snemma í morgun. Árásin er talin tengjast nágrannaerjum.
Viðbragðsaðilar fundu konu sem hafði verið skotin á vettvangi en árásarmaðurinn hafði komist undan. Konan er ekki talin í lífshættu.
Bakpoki sem fannst á stigagangi vakti grunsemdir. Hann sprakk þegar sprengjusveitarmenn voru að fjarlægja hann.
Liðsmaður hundasveitar spænsku ríkislögreglunnar lést í sprengingunni og með honum þriggja ára gamall þýskur fjárhundur lögreglunnar. Sprengjusveitarmaður særðist einnig alvarlega, að sögn spænska blaðsins El País.
Árásarmannsins er nú leitað en gengið er út frá því að hann hafi skilið bakpokann eftir. Hann er sagður 64 ára gamall og eiga að baki feril smáglæpa. Lögregla telur ekkert benda til að um hryðjuverk hafi verið að ræða.
Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar, sagðist sleginn vegna dauða lögreglumannsins í færslu sem hann skrifaði á samfélagsmiðil í morgun og vottaði aðstendendum hans samúð sína.
Borgarstjórn Oviedo hefur lýst yfir tveggja daga opinberu sorgartímabili vegna mannskaðans. Þingfundur héraðsþings Astúrías hófst með mínútu þögn vegna atburðanna.