Eins og lögin eru í dag þurfa þeir sem ætla saman í tæknifrjógvun að vera annaðhvort giftir eða í skráðri sambúð. Verði frumvarpið að lögum gæti einhleyp kona sótt um meðferð með einhleypum vini sem hún vill eignast barn með. Farið yrði þó fram á að bæði samþykktu meðferðina skriflega fyrir vottum og myndu samkvæmt lögum teljast foreldrar barnsins.
Barnið gæti fengið að vita við 18 ára aldur
Í núgildandi lögum er fólki sem gefur sæði eða egg gefinn kostur á nafnleynd. Í frumvarpinu er kveðið á um að foreldrum sé skylt að segja barninu frá því að það hafi orðið til með hjálp gjafa og að foreldrarnir miði við aldur og þroska barnsins þegar lagt er mat á hvenær upplýst sé um það.
Tekið er þó fram að barnið gæti óskað eftir því að fá að vita nafn gjafans við átján ára aldur og að veita mætti upplýsingarnar fyrr í sérstökum tilvikum, þjóni það hagsmunum barnsins.
Verði frumvarpið að lögum myndu þó þeir gjafar sem óskuðu nafnleyndar fyrir gildistöku þess áfram njóta hennar, jafnvel þó að gjöfin yrði notuð síðar.
Þá leggur ráðuneytið til að egg eða sæði frá sama gjafa verði einungis notað til að geta börn í að hámarki tveimur fjölskyldum. Rökin fyrir því séu smæð íslensks samfélags og vill ráðuneytið takmarka hversu mörg börn í ólíkum fjölskyldum eru skyld í gegnum sama gjafa.
Yrði einnig hægt að gefa fósturvísa
Í frumvarpinu er einnig lagt til að heimila fólki að gefa fósturvísa sem urðu til við glasafrjóvgun en ekki stendur til að nota.
Samkvæmt núgildandi lögum er bannað að gefa fósturvísa en ráðuneytið vill heimila fólki að gefa fósturvísa, það er frjóvguð egg, sem urðu til við eigin glasafrjóvgun og það hyggst ekki nota. Nýta mætti slíka gjöf þegar er hægt að nota egg eða sæði frá þeim sem vilja eignast barnið eða þegar slíkar tilraunir hafa mistekist ítrekað.
Frumvarpið var birt í samráðsgáttinni í dag og er hægt að senda inn umsögn til 30. nóvember. Gert er ráð fyrir að breytingarnar taki gildi 1. september á næsta ári.