Ísland mun ekki standast skuldbindingar sínar gagnvart Parísarsamkomulaginu og Evrópusambandinu fyrir árið 2030. Þessu er slegið föstu í nýrri stöðumatsskýrslu Loftslagsráðs, apparats sem er stjórnvöldum innan handar í loftslagsmálum, sem ráðið kynnti loftslagsráðherra í dag.
Miðað við núverandi aðgerðir er áætlað að svonefnd samfélagslosun Íslands dragist saman um 21 prósent fyrir árið 2030 borið saman við árið 2005. Það er víðsfjarri væntanlegu 41 prósent markmiði Íslands gagnvart Evrópusambandinu.
Til þess að gera upp framúrkeyrsluna þurfa íslensk stjórnvöld þá að kaupa losunarheimildir. Reikna má að þau kaup kosti ríkissjóð fleiri milljarða króna.
Fjárhagslegar skuldbindingar Íslands í loftslagsmálum eru gagnvart Evrópusambandinu en ekki Parísarsamningnum sem slíkum.
Íslensk stjórnvöld hafa tekið upp þrjú stjórnkerfi ESB um losun; eitt um samfélagslosun, ETS-viðskiptakerfið fyrir stóriðju og alþjóðaflug og LULUFC-kerfið fyrir landnotkun.
Núgildandi skuldbinding Íslands er 29 prósent samdráttur í samfélagslosun fyrir 2030 miðað við árið 2005. Ekki er búið að staðfesta endanlega hver hlutdeild Íslands er í uppfærðu markmiði ESB en fastlega er gert ráð fyrir að hún verði 41 prósent samdráttur.
Nái Ísland ekki losunarmarkmiðum sínum í þessum kerfum getur það þurft að kaupa svonefndar losunarheimildir til að stoppa upp í gatið í losunarbókhaldinu. Kostnaður við það gæti hlaupið á milljörðum króna.
Loftslagsráð bendir á í skýrslu sinni að hvert tonn í minni losun dragi úr þörfinni á að kaupa losunarheimildir. Eins og staðan sé nú gæti þurft að kaupa heimildir fyrir um 600.000 tonn af koltvísýringsígildum.
„Það er því full ástæða fyrir Íslendinga að gefa í hvað varðar aðgerðir, þó svo markmið náist ekki, því mun skynsamlegra er að nota fjármuni til innlendra aðgerða, sem bæði minnka losun og geta aukið velsæld, heldur en til kaupa á losunarheimildum,“ segir í skýrslunni.
Enn hægt að ná markmiðum fyrir 2035 og 2040
Þó að skuldbindingin fyrir árið 2030 sé utan seilingar geti Ísland enn staðist markmið sín um 50-55 prósenta samdrátt fyrir 2035 og jafnvel um kolefnishlutleysi fyrir árið 2040 er rétt verður haldið á spöðunum.
Til þess þarf Ísland að draga úr samfélagslosun, sem innifelur vegasamgöngur, landbúnað og sjávarútveg, um rúmlega 1,2 milljónir tonna fyrir árið 2035.
Á meðal þeirra leiða að því marki sem ráðið bendir á er að draga úr losun bílaleiga og þungaflutning samhliða áframhaldandi orkuskiptum á almennum bílamarkaði, að Ísland hafi frumkvæði að því að flýta fyrir orkuskiptum í sjávarútvegi og banna algerlega urðun lífræns úrgangs.
Bent er á að bílaleigubílar hafi losað um 120 þúsund tonn árið 2024 og aðeins fimmtán prósent nýskráninga bílaleiga séu hreinir rafbílar. Hægt sé að minnka losun vegna vegasamgangna verulega með því að snarauka það hlutfall.
„Sannfæra þarf erlenda ferðamenn sem leigja bílaleigubíla um það að á Íslandi sé kjörið að aka um á rafbíl. Þetta þarf að verða hluti markaðsetningu Íslands sem áfangastaðar, samhliða því sem hleðslunetið er eflt,“ segir í skýrslunni.
Fimmtungi meiri losun á Íslandi, helmingi minni á Norðurlöndunum
Þróun losunar á Íslandi, án landnotkunar og millilandasamgangna, er borin saman við Norðurlöndin í skýrslunni. Hér hafi hún aukist um 22 prósent frá 1990 á sama tíma og að hún hafi helmingast annars staðar á Norðurlöndunum.
Ástæðan er mikil uppbygging orkufreks iðnaðar á Íslandi en losun frá honum hefur aukist um 97 prósent frá 2005.
„Íslenskt samfélag er vel í stakk búið til þess að leggja sitt af mörkum í viðureigninni við loftslagsvána. Þegar hefur ýmislegt unnist, og allar forsendur til þess að gera mun betur eru fyrir hendi. Draga þarf úr losun mun hraðar og af meiri metnaði en áætlanir gera ráð fyrir, og aðlaga þarf samfélagið markvisst og örugglega að þeim breytta veruleika sem í hönd fer,“ segir í skýrslunni.
Lofttegundir eins og koltvísýringur, metan og vatnsgufa eru nefndar gróðurhúsalofttegundir vegna hlýnunaráhrifa sem þær hafa. Þær hleypa sólargeislum greiðlega í gegnum sig en drekka í sig varmageislun frá jörðinni. Ef ekki væri fyrir gróðurhúsaáhrifin væri meðalhitinn við yfirborð jarðar meira en þrjátíu gráðum lægri.
Mannkynið hefur magnað upp gróðurhúsaáhrifin og valdið hlýnun með því að dæla gríðarlegu magni af kolefni út í lofthjúpinn frá upphafi iðnbyltingarinnar.
Koltvísýringur er langlífur í lofthjúpnum og safnast upp þar. Styrkur koltvísýrings í lofthjúpnum nú er talinn sá mesti í um fjórar milljónir ára. Vegna þessarar uppsöfnuðu losunar lækkaði meðalhiti jarðar ekki aftur til fyrra horfs jafnvel þó að menn hættu allri losun gróðurhúsalofttegunda strax.
Stöðumatsskýrslan er sú fyrsta sem Loftslagsráð vinnur. Hún er viðbragð ráðsins við skýrslu verkefnisstjórnar loftslagsaðgerða um stöðu mótvægis- og aðlögunaraðgerða.