Þetta segir Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við Vísi.
Rannsóknarhagsmunir ekki fyrir hendi
Lögreglan tilkynnti í gær að maður sem grunaður er um manndráp hefði verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna en hann hafði þangað til sætt varðhaldi á grundvelli rannsóknarhagsmuna.
Samkvæmt lögum um meðferð sakamála er heimilt að úrskurða sakborning í gæsluvarðhald þótt nánar tilgreind skilyrði gæsluvarðhalds séu ekki fyrir hendi ef sterkur grunur leikur á að hann hafi framið afbrot sem að lögum getur varðað tíu ára fangelsi, enda sé brotið þess eðlis að ætla megi varðhald nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna.
Ævar Pálmi segir að þrátt fyrir að rannsóknarhagsmunir séu ekki lengur taldir fyrir hendi sé ekki hægt að ganga svo langt að segja að málið teljist að fullu upplýst. Rannsókn hafi einfaldlega miðað svo vel að ekki hafi verið tilefni til að fara fram á gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna.
Nú taki aðallega við úrvinnsla gagna og bið eftir niðurstöðum réttarmeinafræðings og fleiri.
Myndefnið fengið úr myndavélum FB
Á föstudag greindi Vísir frá því að meðal þess sem lögregla hefði til rannsóknar væri upptaka sem sýndi átök þriggja manna sem handteknir voru og hins látna og annars sem særðist í átökunum.
Ævar Pálmi staðfestir að lögregla hafi slíkt myndefni til rannsóknar, og að það hafi komið að góðum notum, en kveðst ekki geta greint frá því hvaðan það er fengið. Samkvæmt heimildum Vísis er það fyrst og fremst fengið úr öryggismyndavélum utan á Fjölbrautaskóla Breiðholts.
Þá hefur verið greint frá því að hinn grunaði hafi borið fyrir sig neyðarvörn og að hinn látni og maður í slagtogi við hann hafi reynt að kúga fé út úr honum. Ævar Pálmi segir of snemmt að segja nokkuð um neyðarvörn en staðfestir að málið sé rannsakað sem átök milli þriggja manna, sem voru handteknir, og hins látna og annars sem særðist.