Í hruninu gekk mikið á, vinabönd brustu og komust jafnvel á aftur og ýmsir sýndu alls ekki sínar bestu hliðpar. Meðal þeirra var Davíð Oddsson, þáverandi seðlabankastjóri. Davíð sýndi sínar verstu hliðar og hótaði mönnum meðal annars útskúfun, bannfæringu. Davíð átti sér fleiri hliðar, mýkri og viðkunnanlegri. Meira bar á betri hliðunum á fyrri hluta ferils hans ein þeim síðari. Reynir Traustason fékk eitt sinn þau skilaboð frá Davíð að hann hefði verið alveg til í að ráða hann í vinnu, ef hann bara væri ekki svona mikið ólíkindatól.
Davíðstíminn: Hrunið kallaði það versta fram í Davíð – en hann átti líka sínar góðu hliðar