Forsvarsmenn tveggja ferðaþjónustufyrirtækja gagnrýndu framgöngu Viðreisnar í morgun og sögðu traust til flokksins brostið. Enginn fyrirsjáanleiki hafi verið fyrir fyrirhuguðu auðlindagjaldi sem setja á á Gullfoss, Geysi og Þingvelli.
„Það hefur verið ljóst alveg frá því að til þessarar ríkisstjórnar var stofnað að við myndum leggja auðlindagjald á þá fjölsóttu ferðamannastaði sem eru í eigu ríkisins,“ segir Hanna Katrín.
„Það er alveg ástæða til þess að ríkið búi svo um hnútana þegar erlendir ferðamenn sem hingað koma greiði ákveðið gjald fyrir að heimsækja þessar viðkvæmu náttúruperlur sem eru í eigu þjóðarinnar og þjóðin hefur til góðs af því.“
Sömuleiðis hafi samráð hennar við fulltrúa ferðaþjónustunnar hafist í byrjun árs árið 2025 og verið yfirstandandi síðan.
„Það er töluvert síðan ljóst var að þetta yrði útgangspunkturinn. Eins og frumvarpið lítur út núna er miðað við að gjaldtaka hefjist 1. maí á næsta ári þannig að ég tel einsýnt að við séum að uppfylla þessi fyrirheit um fyrirsjáanleika.“
Tekjur fyrir samneyslu
Aðspurð hvort markmiðið væri að reyna að stýra aðgengi eða afla ríkissjóði tekna segist Hanna Katrín ekki sjá fyrir sér aðgangsstýringu á þann hátt að einhvern tímann verði ferðir til ferðamannastaðanna uppseldar.
„Það er auðvitað þess vegna sem við erum að búa svo um hnútana að það sé farið í gegnum ákveðna greiðslugátt og það sem sé verið að telja og svo framvegis. Þannig að einhvern tímann verði komið upp, vonandi í náinni framtíð, þannig kerfi að það sé hægt að fara í þessa átt ef þörf þykir,“ segir hún.
„Það er hins vegar líka punktur að þarna koma inn tekjur sem fara í samneyslu þjóðarinnar og munu auðvitað gagnast við innviðauppbyggingu sem ferðaþjónustan þarf meðal annars á að halda.“
Gjaldtakan snúist fyrst og fremst að erlendum gestum sem heimsækja landið en ekki að íslenskum ferðaþjónustufyrirtækjum. Leiði gjaldið til þess að neikvæðar afleiðingar vegi þyngra en þær jákvæðu verði það endurskoðað.
„Það er nú bara verkefni pólitíkurinnar alla daga.“
Fyrir þingið á næstu dögum
Til stendur að leggja frumvarpið fyrir Alþingi á næstu dögum. Þar með tekur við þingleg meðferð, þar á meðal nefndarvinna sem óskar eftir umsögnum og býður gestum til að ræða málin.
„Ég hef góða tilfinningu fyrir því að þau rök sem við höfum fyrir því að skattgreiðendur hér á landi hafi þegar lagt sitt af mörkum við uppbyggingu þessara innviða sem ferðamenn nýta. Sérstaklega þegar tekið er tillit til þess hversu margfaldur fjöldi erlendra ferðamanna er hér miðað við íslenska skattgreiðendur. Það er auðvitað útgangspunkturinn,“ segir Hanna Katrín.