Franska lögreglan gerði húsleit á þremur stöðum sem tengjast egypska auðjöfrinum Mohamed Al Fayed vegna ásakana á hendur honum um ítrekuð kynferðisbrot gegn konum. Nokkrir voru handteknir.
Leitað var á Ritz-hótelinu í París, Windsor-villu í vesturhluta Parísar og Sainte-Therese kastala á frönsku rivíeriunni um miðjan síðasta mánuð. Þessar byggingar voru allar í eigu Al Fayed. Í aðgerðunum voru nokkrir yfirheyrðir og hald var lagt á tölvur, síma og stafræn gögn. Leitin var gerð í samstarfi við bresku lögregluna.
Al Fayed lést 2023, 94 ára að aldri. Hann var umsvifamikill í viðskiptum í Bretlandi og átti meðal annars hótelið Ritz, verslunarkeðjuna Harrods og knattspyrnufélagið Fulham, svo fátt eitt sé nefnt. Árið 2024 sýndi BBC heimildarmynd þar sem yfir 20 konur lýstu því yfir að hann hefði misnotað þær meðan þær störfuðu í Harrods. Eftir það hafa yfir 400 fórnarlömb eða vitni gefið sig fram með svipaðar ásakanir.
Alþjóðlegt mansalsnet
Skipulögð rannsókn á brotum Al Fayed hófst í fyrra og hún hefur tengt anga sína til Frakklands. Mohamed er grunaður um mansal, milligöngu um vændi og nauðganir. Hann hafi komið upp alþjóðlegu neti sem útvegaði honum og bróður hans fólk sem þeir gátu misnotað. Þar á meðal voru ungar stúlkur sem vonuðust eftir frama innan Harrods látnar ganga í gegnum ítarlega læknisskoðun vegna starfa sem voru aldrei til.
Franskir saksóknarar segja að í hverjum mánuði komi fram einhver sem segist hafa verið misnotaður af Al Fayed. Á sama tíma hefur hægagangur í rannsókninni í Bretlandi verið gagnrýndur. Þar hafa sjö sem grunaðir eru um aðild að málinu verið yfirheyrðir en enginn ákærður.