Tilefnið er myndband sem birtist innan úr svínabúi Stjörnugríss á Kjalarnesi á föstudag en þar sáust svín með sár og dauðir gríslingar. Stjörnugrís hefur sagt myndbandið gefa villandi mynd af starfseminni og rekur fyrirtækið það til fyrra innbrots á búið. Fram hefur komið að Matvælastofnun hafi myndbandið til rannsóknar. Þá hefur komið fram að aðeins eitt bú á landinu uppfylli öll skilyrði reglugerðar um velferð dýra sem tók gildi árið 2014 en stjórnvöld hafa veitt bændum viðbótarfrest til 1. janúar 2028 til að bæta úr.
„Það sem hefur vantað í umræðuna að mínu viti er að það eru breytingar varðandi seirumál, starfsleyfi og fleira sem hafa orðið þess valdandi að menn hafa ekki komist í þær framkvæmdir sem menn ætluðu sér í,“ segir Ingvi Stefánsson svínabóndi á Teigi og formaður Félags svínabænda í samtali við Vísi. Hann segir það vera helstu ástæðu þess að svínabændur uppfylli ekki skilyrðin, breytingarnar séu það miklar að flestir velji að byggja ný hús.
„Ég tók sjálfur í notkun fyrir um tveimur og hálfum árum nýtt gylltubú og tafðist í skipulagsmálum í einhver fjögur ár. Þetta er helsta ástæða þess að þó reglugerðin hafi verið sett á sínum tíma að greinin er ekki komin lengra,“ segir Ingvi en búið hans var það fyrsta hér á landi sem byggt er frá grunni út frá kröfum um dýravelferð. Seirumál hjá Umhverfis- og orkustofnun hafi reynst svínabændum erfiður ljár í þúfu.
„Nýir verkferlar sem hafa verið teknir upp hafa eiginlega orðið þess valdandi að seirumálin eru gjarnan í uppnámi. Menn ætluðu sér auðvitað að vera búnir að byggja þetta allt saman en á meðan menn sjá ekki hvar þeir geta afsett skítinn er erfitt að vera á sama tíma í framkvæmdum.“
Magnús Hlynur heimsótti Ingva á svínabúið hans í apríl 2025.
Þá séu dæmi um að svínabændur hafi verið búnir að kaupa jörð og á leið að byggja nýtt gylltubú þegar nágrannar hafi gert athugasemdir og sveitarfélög skipt um skoðun. „Við eigum þetta til allt til dokúmenterað, þetta eru ekki einhverjar afsakanir og eftiráskýringar, það eru til dæmi um þetta. Þetta er allt saman skrásett og það er hægt að sjá það um hvert bú fyrir sig að menn hafa lent í töfum út af skipulagsmálum og kærumálum.“
Hann segir hljóðið eðli málsins samkvæmt vera þungt í svínabændum. Til skoðunar sé að hleypa fréttamönnum inn á eitthvert svínabúið til þess að sýna hvernig aðstæður séu í raun og veru, það sé hinsvegar erfitt vegna þess hve smitvarnir skipti miklu máli.
Fram hefur komið að stjórnvöld hafi vísað til þess í árslok 2024 að svínabændur skort fjármagn til nauðsynlegra endurbóta. Ingvi segir að reksturinn gangi misjafnlega hjá svínabændum, ef fjármagnið sé ekki ljón í vegi þá séu það seirumálin. „Stjörnugrís hefur að mínu viti fjárhagslega getu en þá erum við komin að seirumálunum og svo ertu með aðra aðila þar sem aðgangur að lánsféi vegur þyngra.“