Breska hryðjuverkalögreglan hefur handtekið háttsettan hermann í bandaríska hernum í Gloucestershire-héraði í dag. Frá þessu greinir BBC.
Hermaðurinn er 41 árs og var handtekinn nálægt borginni Gloucester grunaður um brot á lögum um þjóðaröryggi. Lögreglan í Bretlandi segist vinna náið með bandaríska hernum og bandarísku alríkislögreglunni (FBI)
Lögreglan í Bretlandi sagði ásakanirnar gegn manninum tengjast Rússlandi. Bandaríska alríkislögreglan segir manninn sakaðan um njósnir. Lögreglan hefur ráðist í leitir á tveimur stöðum í Gloucestershire í þágu rannsóknarinnar.
Sean Stinchon, hershöfðingi í bandaríska hernum, segir meint framferði hermannsins, sem hafi verið treyst fyrir viðkvæmum upplýsingum, áminningu um það að alvarlegar ógnir innan úr röðum hersins séu raunverulegar og viðvarandi.