Geir Gunnar Geirsson, forstjóri Stjörnugríss og einn eigenda, segir af og frá að myndefni frá innbroti úr búi fyrirtækisins gefi rétta mynd af starfseminni. Umræða um að fyrirtækið setji á svið leikrit fyrir eftirlitsheimsóknir sé ekki á rökum reist. Fréttastofa fékk að heimsækja svínabúið í Brimnesi í dag.
Maðurinn, sem hefur játað að brjótast inn í búið, birti myndefni fyrir helgi þar sem ástand dýranna virðist bágborið og meðal annars mátti sjá dauða grísi. Geir segir myndirnar ljótar og ekki sýna rétta mynd af starfseminni.
Hvernig er hægt að skýra það sem þarna sést, þarna eru dauðir grísir og særð dýr?
„Ég er ekki alveg á því að þarna séu særð dýr en þarna eru dauð dýr og það vill svo til að í allri framleiðslu fæðast andvana dýr en það er mjög lág tíðni af því hér í þessu búi og heilbrigði er mjög gott,“ segir Geir.
„En vissulega kemur það fyrir og eftir því sem menn reyna að leita að einhverju slæmu þá er von á því að hægt sé að draga upp hvaða mynd sem er en þetta er samt sem áður ekki það sem við teljum að þessi framleiðsla sýni eins og sést á myndunum í dag,“ segir Geir.
Forsvarsfólk Stjörnugríss sendi fréttastofu yfirlýsingu samhliða heimsókninni í búið í dag með ítarlegri upplýsingum um búið og hvernig eftirliti og umsjón með búinu er háttað.
Ekki gripið til neinna ráðstafana áður en myndatökur voru leyfðar í búinu: „Ekki hægt að leikstýra svona búi“
Fréttastofa hefur ítrekað óskað eftir því að fá að mynda inni í búinu, bæði í vor og í haust, og fyrir helgi en leyfi fékkst ekki fyrr en í dag. Geir segir að með því hafi verið að hlífa dýrunum við óþarfa raski og til að gæta sóttvarna.
Var eitthvað gert hérna í búinu í millitíðinni?
„Það er ekki hægt að leikstýra svona búi. Þið sjáið hvernig dýrin líta út, þetta tekur langan tíma og öll umræða um að við séum að spila einhverja leiki fyrir heimsóknir eða eftirlitsaðilana það er ekki á rökum reist,“ segir Geir.
„Svona er bara framleiðslan eins og hún er, svona stundum við þessa framleiðslu. Fólk má hafa skoðanir á því og það er bara allt í lagi með það,“ segir Geir. Hann segir fyrirtækið ekkert hafa að fela.
Frávik vegna rými dýranna og halaklippinga
Í eftirlitsskýrslum MAST eftir heimsóknir í búið síðustu þrjú ár eru gerðar athugasemdir við rými dýranna og halaklippingar.
Slíkar athugasemdir eru þó ekki sértækar fyrir búið. Svínabú landsins eru almennt á undanþágu frá ákveðnum kröfum reglugerðarinnar, til 2028. Stjórnvöld veittu þann frest árið 2024 og vísuðu til þess að svínabændur skorti fjármagn til nauðsynlegra endurbóta.
Aðrar hindranir en fjárhagur komið í veg fyrir úrbætur og framkvæmdir
En rekstur Stjörnugríss hefur gengið vel. Fyrirtækið velti um sex og hálfum milljarði króna í fyrra og hagnaðist um ríflega 550 milljónir.
Geir segir fjárhag fyrirtækisins ekki standa í vegi fyrir úrbótum. Aðrar hindranir hafi komið í veg fyrir framkvæmdir.
„Í sambandi við hagnaðinn sem er svolítið dreginn úr samhengi, þetta snýst ekki um það,“ segir Geir.
„Þetta snýst um það að vilji okkar er fyrir hendi, geta okkar er fyrir hendi, metnaðurinn er fyrir hendi en við þurfum að geta framkvæmt og fá leyfi til þess. Þetta eru skipulagsmál, starfsleyfismál og umhverfismál. Það þarf að leysa þessi mál fyrst og við höfum verið iðin við það að reyna að finna lausnir á því með stjórnvöldum,“ segir Geir sem segist binda vonir við að leyfin fáist sem fyrst.
Rannsóknir hafa sýnt að svín eru greind dýr, sem geta leyst þrautir, eiga í samskiptum sín á milli og sýna merki um ótta, streitu, ánægju og forvitni - og geta, í náttúrulega umhverfi, verið mjög virk en upplifað streitu og leiða í þröngu rými og án afþreyingar.
Hvetur til umræðu um dýravelferð og segir að búið fylgi öllum reglum
Myndir þú telja að það sé gott fyrir dýrin til langs tíma, að búa við þessar aðstæður?
„Við fylgjum bara lögum og reglugerðum og því sem okkur er sett. Ef það koma aðrar kröfur þá munum við uppfylla þær en dýrunum líður ekki illa hér en vissulega má alltaf gera betur,“ segir Geir
„Dýravelferð á að ræða reglulega í samfélaginu og neytendur eiga að koma að því og lýsa því yfir hvað þeir vilja sjá, það er fullkomlega eðlilegt en vissulega má alltaf bæta allt.“