Ástralski námuverkamaðurinn Todd Russell, sem vakti heimsathygli árið 2006 þegar hann lifði af í 14 daga fastur á tæplega eins kílómetra dýpi í gullnámu, er látinn, 54 ára að aldri.Russell hafði glímt við alvarleg veikindi um nokkurt skeið og greindi sjálfur frá því fyrir viku að hann ætti skammt eftir ólifað. Ástralskir fjölmiðlar greina frá andláti hans en talsvert var fjallað um björgunina á sínum tíma, meðal annars hér á landi.
Lifði af tvær vikur grafinn neðanjarðar – Nú er hann látinn, aðeins 54 ára