Spjallið með Frosta Logasyni
Brynjar Karl Sigurðsson, körfuboltaþjálfari og forsvarsmaður íþróttafélagsins Aþenu, mætir í Spjallið og fer yfir harðvítugar deilur félagsins við Reykjavíkurborg um framtíð íþróttastarfs í Efra-Breiðholti.
Brynjar Karl fer mikinn og sakar embættismenn borgarinnar um spillingu, vanrækslu og óeðlilega ráðstöfun opinbers fjár. Hann fullyrðir meðal annars að 89 milljónir króna hafi runnið frá velferðarsviði Reykjavíkurborgar til ÍR á síðustu fjórum árum og kallar eftir svörum um hvernig þeim fjármunum hafi verið varið.
Á sama tíma segir hann Aþenu hafa byggt upp öflugt íþrótta- og samfélagsstarf fyrir börn í Efra-Breiðholti, þar sem iðkendum hafi fjölgað úr örfáum í um 130. Félagið hafi skapað tækifæri fyrir börn af ólíkum uppruna, hjálpað stúlkum að komast í landslið og á háskólastyrki í Bandaríkjunum og lagt mikla áherslu á að ná til barna sem standa höllum fæti.
Nú segir Brynjar að Reykjavíkurborg ætli að taka rekstrarsamninginn af félaginu um áramót og þannig stefna framtíð starfsins í hættu.
Hann beinir sérstaklega spjótum sínum að Hildi Björnsdóttur og Bjarna Guðjónssyni og gagnrýnir nýjan meirihluta borgarinnar fyrir að standa ekki við þann stuðning sem hann telur félagið áður hafa notið. Brynjar krefst þess að borgaryfirvöld komi fram opinberlega og útskýri ákvarðanir sínar.
Í viðtalinu er meðal annars rætt um:
89 milljónir króna sem Brynjar segir hafa runnið frá velferðarsviði til ÍR.
Ásakanir um spillingu, meðvirkni og óeðlileg vinnubrögð í borgarkerfinu.
Baráttu Aþenu fyrir aðstöðu í Austurbergi.
Hvers vegna nýr meirihluti Reykjavíkurborgar hefur ekki tryggt félaginu áframhaldandi rekstrarsamning.
Félagslega einangrun, fátækt og tækifæraskort barna í Efra-Breiðholti.
Árangur Aþenu í að efla sjálfstraust, íþróttaþátttöku og framtíðarmöguleika ungs fólks.
Brynjar Karl segist ekki ætla að gefast upp og kallar eftir opinberum umræðum þar sem borgaryfirvöld svari gagnrýni hans.
Spjallið með Frosta Logasyni – S04E67
#Spjallið #BrynjarKarl #Reykjavíkurborg #Aþena #Brotkast
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/