Maðurinn, sem er 41 árs, var handtekinn nærri Gloucester fyrr í dag en lögregla réðst þar í tvær húsleitir. Er hann nú í haldi lögreglu í London.
Í yfirlýsingu frá bresku hryðjuverkalögreglunni segir að hann hafi verið handtekinn grunaður um brot gegn þjóðaröryggislögum frá árinu 2023. Í frétt BBC um málið segir að fyrsta grein téðra laga snúist um öflun eða uppljóstrun trúnaðargagna og sú þriðja varði samstarf við erlenda leyniþjónustu. Grunsemdir um brot Bandaríkjamannsins á lögunum beinast að Rússlandi.
Rannsókn málsins stendur enn yfir og fer hún fram í nánu samstarfi við bandarísku alríkislögregluna (FBI), bandarísk yfirvöld og Bandaríkjaher. Kash Patel forstjóri FBI sagði í yfirlýsingu að handtakan snerist um grunsemdir um njósnir, sem séu Bandaríkjunum mikið áhyggjuefni.