Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, neitar því að hafa afvegaleitt þingið með því að segja að mál Harðar Arnarsonar, fyrrverandi forstjóra Landsvirkjunar, snúist aðeins um stjórnarhætti fyrirtækisins.
Daði var gestur í Kastljósi í kvöld.
Þá kannast hann ekki við að hafa verið ónákvæmur í svörum til Alþingis. Þó hafði hann sagt á Alþingi 4. nóvember að fyrra svar hans til þingsins varðandi stjórnarfundina væri ekki „gott og nákvæmt“. Hann ítrekar að málið snúist aðeins um stjórnarhætti Landsvirkjunar.
„Nei, ég viðurkenni það nefnilega ekki. Spurningin er þessi hér: Kemur eitthvað fram í gögnunum, eins og til dæmis þessum minnisblöðum, sem snýst um eitthvað annað en áherslur í stjórn?“
Ekki óeðlilegir fundir
Hann segir fundi sína með stjórn Landsvirkjunar án forstjóra ekki óeðlilega.
„Að funda með stjórn Landsvirkjunar [...] án forstjóra er eitthvað sem er reglubundið og er hluti af þessum starfsreglum stjórnar Landsvirkjunar. Þetta voru bara tveir fundir, einn á ári.“
Á fundinum hafi verið rædd almenn atriði sem varða stjórnun, uppgjörið á kaupverði Landsnets og deilur Landsvirkjunar og Landsnets. Ekki fari vel á að deilurnar séu í kastljósi fjölmiðla þar sem báðir aðilar vinni innan sama rammans að sömu sameiginlegu hagsmunum þjóðarinnar.
Fréttin verður uppfærð