Robinson, sem er 23 ára, er gefið að sök að hafa skotið fjarhægriáhrifavaldinn Charlie Kirk til bana í september árið 2025. Kirk var staddur í háskóla í Utah-fylki og var með viðburð sem um þrjú þúsund manns fylgdust með þegar hann var skotinn. Robinson var handtekinn nokkru síðar grunaður um verknaðinn.
Hann er ákærður í sjö ákæruliðum og stendur frammi fyrir dauðarefsingunni. Hann neitaði sök í september. Nú hefur verið ákveðið að réttarhöldin hefjist í byrjun júlí árið 2028 og verður kviðdómurinn valinn í lok júní samkvæmt The Guardian.
Erika Kirk, ekkja Charlie Kirk, vildi sjálf að réttarhöldin myndu hefjast í október árið 2027 á meðan lögfræðiteymi Robinson vildi að þau yrðu á þriðja hluta ársins 2029. Það væri meðal annars vegna mikils fjölda gagna sem fara þarf yfir.
Dómarinn tók sömuleiðis 105 daga frá fyrir réttarhöldin.