Réttarhöld yfir Steven Tyler, söngvara rokkhljómsveitarinnar Aerosmith, hefjast þann 3. maí næstkomandi. Tyler er kærður fyrir kynferðisbrot og heimilsofbeldi.Tímaritið Classic Rock greinir frá þessu.Julia Misley, áður Julia Holcomb, kærði Tyler í desember árið 2022. Það er fyrir kynferðisbrot, heimilisofbeldi og andlegt ofbeldi á sambúðarárum þeirra árið 1973 til 1976. Holcomb var 16 ára þegar sambandið hófst og Tyler 25 ára.
Rokkstjarnan fyrir dóm vegna kynferðisbrots og heimilisofbeldis