Ekki meiri kröfur án ábyrgðar

Ekki meiri kröfur án ábyrgðar

Ekki meiri kröfur án ábyrgðar

Ekki meiri kröfur án ábyrgðar

Ríki og sveit­ar­fé­lög bera sam­eig­in­lega ábyrgð á því að börn fái jöfn námstæki­færi, en kenn­arar þurfa tíma, náms­gögn og sér­fræði­þjón­ustu til að mæta ólíkum þörfum þeirra.

Á und­an­förnum árum hefur mikil orka farið í end­ur­skoðun aðal­námskrár, breyt­ingar á náms­mati, skil­grein­ingu hæfni­við­miða og mótun nýrra aðgerða­á­ætl­ana. Allt er þetta mik­il­vægt en breyt­ingar á stefnu­skjölum verða ekki sjálf­krafa umbætur í skóla­starfi. Það er ekki nóg að ákveða hvað börn eigi að læra heldur þarf að tryggja að þau fái raun­veru­leg tæki­færi og amboð til þess. En hver ber ábyrgð á því að skól­arnir hafi raun­veru­legar for­sendur til að ná þessum mark­miðum? Mennta­stefna verður ekki að veru­leika við sam­þykkt hennar, heldur í dag­legu starfi kenn­ara og nem­enda. Þar reynir á fag­þekk­ingu, kennslu­hætti, námsum­hverfi, sam­starf og þau úrræði sem skól­arnir hafa yfir að ráða.

Frá stefnu til veruleika

Í nýlegri grein í Skóla­þráðum fjallar Rúnar Sig­þórs­son um aðal­námskrá sem vinnu­tæki kenn­ara og spyr mik­il­vægra spurn­inga um tengsl námskrár, kennslu og náms. Hann minnir meðal ann­ars á að greina þurfi á milli áform­aðrar námskrár, þeirrar sem birt­ist í fram­kvæmd og þess sem nem­endur raun­veru­lega læra. Þessi aðgrein­ing varpar ljósi á einn stærsta veik­leika íslenskrar mennta­stefnu. Stjórn­völd geta skil­greint mark­mið, sett við­mið og ákveðið áherslur, en það tryggir ekki að það verði að veru­leika inni í kennslu­stof­unni. Til þess þarf fag­lega getu, tíma, við­eig­andi náms­gögn og aðstæður sem gera kenn­urum kleift að vinna sam­kvæmt mark­mið­unum.

„Gæði kennslu ráð­ast ekki af fyr­ir­mælum frá stjórn­völdum“

Í þriðju aðgerða­á­ætlun mennta­stefnu til 2030 eru sett metn­að­ar­full mark­mið um grunn­færni, náms­ár­angur og náms­gögn, sem er vel. En skóla­kerfið þarf ekki fleiri mark­mið án þess að skap­aðar séu raun­veru­legar for­sendur til að ná þeim. Áætl­un­ina verður að meta út frá því hvort aðgerð­irnar séu nægi­lega fjár­magn­aðar, hvort þær bygg­ist á raun­veru­legum þörfum skóla­sam­fé­lags­ins og hvort þær styrki getu skól­anna til að sinna lög­bundnu hlut­verki sínu. Við verðum að hætta að rugla saman metn­aði á blaði og raun­veru­legum umbótum í skóla­stof­unni.

Faglegt svigrúm kennara

Gæði kennslu ráð­ast ekki af fyr­ir­mælum frá stjórn­völdum. Gæðin ráð­ast meðal ann­ars af þekk­ingu kenn­ara á námi og þroska barna, hæfni þeirra til að skipu­leggja kennslu, greina náms­fram­vindu, veita end­ur­gjöf og bregð­ast við ólíkum þörfum nem­enda. Rann­sóknir á árang­urs­ríkri starfs­þróun kenn­ara sýna að breyt­ingar á kennslu­háttum krefj­ast mark­vissrar og langvar­andi vinnu þar sem kenn­arar fá tæki­færi til sam­starfs, ígrund­unar, leið­sagnar og próf­unar nýrra aðferða. Slíkar nið­ur­stöður má meðal ann­ars finna í rann­sóknum Darling-Hammond, Hyler og Gardner (2017) og Timperley o.fl. (2007). Spurn­ingin er hvort kenn­arar hafi raun­veru­legt svig­rúm til að þróa kennslu­hætti sína, hvort skólar hafi aðgang að öfl­ugri skóla­þjón­ustu, sér­fræði­þekk­ingu og við­eig­andi náms­gögnum og hvort starfs­þróun sé hluti af skipu­lögðu skóla­starfi eða verk­efni sem kenn­arar þurfa að sinna ofan á allt annað. Það er mót­sögn að kalla eftir auk­inni fag­mennsku kenn­ara en skapa þeim ekki aðstæður til að efla hana.

Tryggjum jöfn tækifæri

Í lögum um grunn­skóla nr. 91/2008 og aðal­námskrá grunn­skóla er lögð áhersla á að skóla­starf taki mið af þörfum og for­sendum nem­enda. Skóli án aðgrein­ingar felur ekki í sér að öllum börnum sé kennt það sama, á sama hátt og á sama hraða. Hún felur í sér að skapa þurfi fjöl­breyttar leiðir til náms og tryggja að hvert barn fái við­fangs­efni og stuðn­ing við hæfi. Það er einmitt eitt stærsta verk­efni íslensks skóla­starfs. Í sömu kennslu­stofu geta verið nem­endur sem eru að til­einka sér íslensku sem annað tungu­mál, nem­endur með sér­tæka námsörð­ug­leika, börn sem þurfa mik­inn stuðn­ing við sjálf­stjórn og félags­færni og bráð­gerir nem­endur sem þurfa flókn­ari og meira krefj­andi verk­efni. Allir eiga þeir rétt á kennslu sem tekur mið af náms­legum for­sendum þeirra.

En hvernig á kenn­ari að tryggja slíkt nám ef náms­efni er tak­markað, sér­fræði­þjón­usta af skornum skammti og tími til und­ir­bún­ings og sam­starfs ónógur? Það er ekki hægt að leggja ábyrgð­ina á kennar­ann einan og sér. Þarna bera ríki og sveit­ar­fé­lög sam­eig­in­lega ábyrgð, hvort á sínu sviði. Ríkið setur lag­ara­mma, aðal­námskrá og mennta­stefnu og hefur mik­il­vægu hlut­verki að gegna í þróun náms­gagna og menntun kenn­ara. Sveit­ar­fé­lög bera ábyrgð á rekstri grunn­skóla, aðbún­aði og þeirri þjón­ustu sem þeim ber að veita. Þessi ábyrgð verður að birt­ast í raun­veru­legum aðgerðum og fjár­mögnun. Annars verða jöfn námstæki­færi ein­ungis fal­legt mark­mið á blaði en raun­veru­leik­inn verður mis­mun­andi veru­leiki barna eftir skólum og sveit­ar­fé­lögum.

Gæði umfram mælingar

Árang­urs­mæl­ingar geta veitt mik­il­vægar upp­lýs­ingar um stöðu mennta­kerf­is­ins. Þær geta bent á veik­leika, sýnt þróun og hjálpað til við að for­gangs­raða umbótum. En þær segja þó tak­mark­aða sögu. Ef nem­endur ná ekki þeim árangri sem stefnt er að þarf að leita svara við spurn­ingum eins og hvaða kennslu hafa þeir fengið? Hvaða námstæki­færi hafa staðið þeim til boða? Hvernig hefur verið brugð­ist við náms­þörfum þeirra? Hvaða stuðn­ing hafa kenn­arar fengið og hvaða aðstæður hafa verið til staðar? Við þurfum að beina athygl­inni að því sem ger­ist í nám­inu sjálfu en ekki aðeins á nið­ur­stöður mæl­inga og með þeim bera saman skóla sem geta verið afar ólíkt sam­an­settir bæði af nem­endum og kenn­urum.

Rann­sóknir á gæðum kennslu og fag­legri starfs­þróun hafa sýnt fram á mik­il­vægi þess að kenn­arar greini eigin starfs­hætti, ræði kennsl­una með sam­starfs­fólki og nýti upp­lýs­ingar um nám nem­enda til umbóta. Slík nálgun gerir kenn­ara að virkum þátt­tak­endum í skóla­þróun í stað þess að líta á þá ein­göngu sem fram­kvæmd­ar­að­ila ákvarð­ana ann­arra.

Ábyrgðin er margþætt

Starfs­fólk í skóla­kerf­inu ber marg­þætta ábyrgð sem bein­ist í ólíkar áttir. Kennarar bera ábyrgð gagn­vart stjórn­völdum og stjórn­endum á því að fylgja lögum, stefnu og fjár­hags­legum ramma, gagn­vart sam­starfs­fólki á fag­legum vinnu­brögðum og gagn­vart nem­endum og for­eldrum á gæðum kennslu og vel­ferð barna. Þessar kröfur geta stang­ast á, ekki síst þegar vænt­ingar stjórn­valda eru meiri en þær bjargir sem skól­unum eru tryggðar. Þetta vekur áleitna spurn­ingu um ábyrgð­ar­skipt­ingu í mennta­kerf­inu. Það er ekki hægt að gera kenn­ara og skóla­stjórn­endur eina ábyrga fyrir árangri skóla­starfs þegar for­sendur hans ráð­ast að veru­legu leyti af ákvörð­unum ann­arra. Ábyrgð á gæðum mennt­unar verður því að vera gagn­kvæm. Þeir sem setja kröf­urnar verða jafn­framt að axla ábyrgð á því að skapa raun­hæfar aðstæður til að upp­fylla þær.

Kröfur án ábyrgðar

Þriðja aðgerða­á­ætlun mennta­stefnu getur orðið mik­il­vægt skref í átt að mark­viss­ara skóla­starfi. En þá þarf að fylgja henni eftir með skýrri verka­skipt­ingu, raun­hæfri fjár­mögnun og sam­ráði við þá sem bera ábyrgð á fram­kvæmd­inni. Það verður ekki of oft sagt að tryggja þarf að kenn­arar hafi aðgang að vönd­uðum náms­gögnum, að starfs­þróun sé mark­viss og tengd kennslu, að skóla­þjón­usta geti sinnt hlut­verki sínu og að skóla­stjórn­endur hafi svig­rúm til að leiða fag­legar umbætur.

Umfram allt þarf að tryggja að ákvarð­anir um skóla­starf séu teknar með hlið­sjón af raun­veru­legum aðstæðum í skólum en ekki ein­göngu út frá því sem æski­legt er að ná fram.

„Þeir sem setja kröf­urnar verða jafn­framt að axla ábyrgð á því að skapa raun­hæfar aðstæður til að upp­fylla þær“

Við viljum að lokum spyrja stjórn­völd þriggja spurn­inga:

  1. Hvers vegna er sífellt verið að breyta kröfum til kenn­ara án þess að tryggja þeim sam­svar­andi stuðn­ing og starfs­skil­yrði?
  2. Hvernig á að tryggja öllum börnum jöfn námstæki­færi ef ekki er fjár­fest mark­visst í fag­þekk­ingu, náms­gögnum, starfs­þróun og skóla­þjón­ustu?
  3. Hvernig verður árangur mennta­stefn­unnar met­inn með til­liti til þeirra aðstæðna sem skólum eru skap­aðar, en ekki ein­göngu út frá nið­ur­stöðum nem­enda?

Það er ekki hægt að krefj­ast meira af skól­unum og leggja þeim sífellt fleiri verk­efni á herðar án þess að skapa þeim for­sendur til að standa undir þeim. Ef stjórn­völd ætla að gera meiri kröfur til skól­anna verða þau fyrst að vera til­búin að gera meiri kröfur til sjálfra sín.

Álf­hildur Leifs­dóttir grunn­skóla­kenn­ari

Hólm­fríður Jennýjar Árna­dóttir mennt­un­ar­fræð­ingur

#ekki #kröfur #meiri #ábyrgðar


Upprunaleg slóð:
https://heimildin.is/grein/70555/ekki-meiri-krofur-an-abyrgdar/

📰 Aðrar fréttir

Hvað kostar að reka bíl?
📅 09.11.2026 👁️ 2
Hvað kostar að reka bíl?
Kílómetragjald hækkur um 15,9% um áramótin. Þegar gjaldið var sett á um síðustu áramót var olíugjald afnumið og lækkaði eldsneytisverð töluvert. Verði...
Íslendingar treysta á að þetta reddist – Sláandi niðurstöður nýlegrar könnunar
📅 09.11.2026 👁️ 1
Íslendingar treysta á að þetta reddist – Sláandi niðurstöður nýlegrar könnunar
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur gefið út bæklinginn Verum viðbúin til að efla viðbúnað almennings og styrkja seiglu samfélagsins gegn óvæn...
Minnast Magda­lenu sem fannst myrt með for­eldrunum - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Minnast Magda­lenu sem fannst myrt með for­eldrunum - Vísir
Lögregla í Póllandi rannsakar enn árásina á aðaltorginu í Kraká á laugardag þar sem sex manns létust og fimmtán særðust. Árásarmaðurinn lést svo af sá...
Bæjar­stjóri Kópa­vogs vill kalla eftir veikindavottorðum starfs­fólks - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Bæjar­stjóri Kópa­vogs vill kalla eftir veikindavottorðum starfs­fólks - Vísir
Þá verður sagt frá því að ökumaður bifreiðar, sem hafnaði úti í Kleifá á Snæfellsnesi í gærmorgun, hafi verið úrskurðaður látinn á Landspítalanum. Tve...
Bíll borgar­stjóra skemmdist og nýr tekinn á leigu - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Bíll borgar­stjóra skemmdist og nýr tekinn á leigu - Vísir
Vísi barst á dögunum ábending um að Hildur Björnsdóttir væri komin á nýjan borgarstjórabíl, nánar tiltekið Audi-jeppa í stærri kantinum. Í svari við f...
How 3D prototyping can help Carnival creators test big ideas before building
📅 09.11.2026 👁️ 1
How 3D prototyping can help Carnival creators test big ideas before building
Carnival design thrives on excess. A successful float, stage element or queen’s costume may combine towering forms, saturated colour, reflective surfa...
Í­huga að loka á TikTok vegna barnaníðsefnis - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Í­huga að loka á TikTok vegna barnaníðsefnis - Vísir
Forsvarsmenn TikTok, sem er í eigu kínversks fyrirtækis, viðurkenndu í tengslum við dómsmál í Bandaríkjunum árið 2022 að barnaníðsefni væri vandamál á...
Kúrmeðferðin heillaði Dóra en Steindi var ekki jafn hrifinn - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Kúrmeðferðin heillaði Dóra en Steindi var ekki jafn hrifinn - Vísir
Það verður að segjast að Steindi var ekki beint hrifinn af nándinni í meðferðinni en Halldór náði að koma sér í stellingar og njóta. Hér að neðan má s...
Kári sakar Amgen um lygar vegna nýs þyngdarlyfs
📅 09.11.2026 👁️ 1
Kári sakar Amgen um lygar vegna nýs þyngdarlyfs
Bloomberg greindi frá því í síðustu viku að megrunarlyfið MariTide eigi rætur að rekja til rannsókna Íslenskrar erfðagreiningar á erfðaefni um 200 þús...
Ís­lendingur í Taí­landi dæmdur fyrir þjófnað - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Ís­lendingur í Taí­landi dæmdur fyrir þjófnað - Vísir
Þetta kemur fram í viðtali DV við Jóhann þar sem hann upplýsir um niðurstöðuna. Klippa: Íslendingur sakfelldur fyrir þjófnað í Taílandi Atvikið í Pato...
Golfið gefur líkams­ræktinni nýjan til­gang - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Golfið gefur líkams­ræktinni nýjan til­gang - Vísir
Markmiðið er að verða betri í golfi eða viðhalda getu sinni lengur. Á leiðinni hefur líka myndast samfélag þar sem enginn fær nóg af golfspjalli. Bjar...
Vikan á Instagram: „Upplifun að fara á Sexy Fish“
📅 09.11.2026 👁️ 1
Vikan á Instagram: „Upplifun að fara á Sexy Fish“
Vikan á Instagram er fastur liður á DV.is á mánudögum þar sem við skoðum hvaða myndir slógu í gegn á Instagram síðustu daga. Þetta er fólkið sem við e...
SKIMS jóladagatal Kim Kardashian sagt vera rusl og algjört okur: „Tilefni til málsóknar“
📅 09.11.2026 👁️ 1
SKIMS jóladagatal Kim Kardashian sagt vera rusl og algjört okur: „Tilefni til málsóknar“
Kim Kardashian sætir nú harðri gagnrýni á netinu vegna jóladagatals sem hún sendi frá sér undir vörumerki sínu SKIMS.Notendur samfélagsmiðla hafa kall...
Kristinn um nýjan starfsmannastjóra Trumps: Yrði ekki treyst til formennsku í húsfélagi
📅 09.11.2026 👁️ 1
Kristinn um nýjan starfsmannastjóra Trumps: Yrði ekki treyst til formennsku í húsfélagi
Kristinn Hrafnsson blaðamaður segir Stephen Miller, nýskipaðan starfsmannastjóra Hvíta hússins, öfgamann sem auki hættuna sem stafi af stjórn Donalds ...
Siggi Hlö varar við svindlsíðum: „Við erum að heyra um alltof marga Íslendinga sem falla í þá gryfju“
📅 09.11.2026 👁️ 1
Siggi Hlö varar við svindlsíðum: „Við erum að heyra um alltof marga Íslendinga sem falla í þá gryfju“
Farþegar á leið til Bretlands þurfa að hafa sótt um rafrænt ferðaleyfi, svokallaða ETA-vegabréfsáritun (Electronic Travel Authorisation) áður en þeir ...
Segir erlenda brotamenn hafa fengið afslátt af refsingum sínum – Vísar til manns sem nú ógnar Íslendingum
📅 09.11.2026 👁️ 1
Segir erlenda brotamenn hafa fengið afslátt af refsingum sínum – Vísar til manns sem nú ógnar Íslendingum
Sigríður Á. Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, gagnrýnir harðlega lagabreytingu sem gerði kleift að veita erle...
Dagvöruvísitala ASÍ hækkar þrátt fyrir fryst og lækkuð verð
📅 09.11.2026 👁️ 1
Dagvöruvísitala ASÍ hækkar þrátt fyrir fryst og lækkuð verð
Dagvöruvísitala Alþýðusambands Íslands (ASÍ) hækkaði á tímabilinu ágúst til nóvember þrátt fyrir loforð matvöruverslana um að lækka verð til að sporna...
Matvöruverð hækkar þrátt fyrir fryst og lækkuð verð
📅 09.11.2026 👁️ 1
Matvöruverð hækkar þrátt fyrir fryst og lækkuð verð
Dagvöruvísitala Alþýðusambands Íslands (ASÍ) hækkaði á tímabilinu ágúst til nóvember þrátt fyrir loforð matvöruverslana um að lækka verð til að sporna...
Réðust á eina stærstu olíu­vinnslu Rúss­lands - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Réðust á eina stærstu olíu­vinnslu Rúss­lands - Vísir
Kirishi-olíuvinnslan í Leníngrad-héraði er sú næststærsta í Rússlandi og er nærri Pétursborg. Við hefðbundnar aðstæður hefur þessi vinnsla verið notuð...
Biðlisti reglugerða og tilskipana „hefndargjöf“ fyrir EES ríkin
📅 09.11.2026 👁️ 1
Biðlisti reglugerða og tilskipana „hefndargjöf“ fyrir EES ríkin
Dráttur á innleiðingu þeirrar löggjafar frá Evrópusambandinu sem á við um innri markaðinn hefur í nokkrum tilvikum leitt til þess að reglugerðir og ti...
Euro­vision löngu hætt að vera tónlistarkeppni - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Euro­vision löngu hætt að vera tónlistarkeppni - Vísir
Jónas og Valur Grettisson, blaðamaður Heimildarinnar, voru gestir Símonar Birgissonar í hlaðvarpinu Menningarvaktinni. Þar var rætt um leiksýninguna H...
Í­búar á Ís­landi 560 þúsund árið 2076 - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Í­búar á Ís­landi 560 þúsund árið 2076 - Vísir
Þrjár spár eru birtar undir yfirheitinu mannfjöldaspá: grunnspá, lágspá og háspá, en þær byggja á mismunandi forsendum um frjósemi og búferlaflutninga...
Talinn hafa kæft föður sinn með kodda - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Talinn hafa kæft föður sinn með kodda - Vísir
Maðurinn heitir Gunnar Freyr Hilmarsson og er á 46. aldursári. Í ákærunni sem Vísir hefur undir höndum kemur fram að hann hafi aðfararnótt 26. júlí í ...
Ökumaður látinn eftir að bíll hafnaði í Kleifá
📅 09.11.2026 👁️ 1
Ökumaður látinn eftir að bíll hafnaði í Kleifá
Ökumaður bíls sem hafnaði í Kleifá í umferðarslysi í gærmorgun er látinn. Hann sat fastur í bifreiðinni um tíma.Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lög...
Bana­slys á Snæ­fells­nesi - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 2
Bana­slys á Snæ­fells­nesi - Vísir
Farþeginn komst út af sjálfsdáðum en ökumaðurinn ekki. Sá var fastur í bílnum um nokkurn tíma, samkvæmt yfirlýsingu frá Lögreglunni á Vesturlandi. Bjö...
Jóhann Freyr slapp við fangelsi í Taílandi þrátt fyrir þungan dóm
📅 09.11.2026 👁️ 1
Jóhann Freyr slapp við fangelsi í Taílandi þrátt fyrir þungan dóm
Jóhann Freyr Hallgrímsson, 37 ára gamall Akureyringur, var fyrir um mánuði síðan sakfellldur fyrir þjófnað og dæmdur í þriggja ára skilorðsbundið fang...
Forstjóri eins verðmætasta fyrirtækis heims í miðju njósnahneyksli – Þetta er vitað um málið
📅 09.11.2026 👁️ 1
Forstjóri eins verðmætasta fyrirtækis heims í miðju njósnahneyksli – Þetta er vitað um málið
Bandaríski tæknirisinn Nvidia hefur hafið sjálfstæða rannsókn á því hvort forstjóri fyrirtækisins, Jensen Huang, hafi verið skotmark erlendra njósnara...
Manndráp í Kópavogi: Banaði föður sínum í rúminu
📅 09.11.2026 👁️ 1
Manndráp í Kópavogi: Banaði föður sínum í rúminu
Maður sem grunaður er um að hafa banað föður sínum á heimili sínu í Kópavogi þann 26. júlí síðastliðinn hefur verið ákærður fyrir manndráp og stórfell...
Erlendur ferðamaður lést í bílslysi á Snæfellsnesi
📅 09.11.2026 👁️ 1
Erlendur ferðamaður lést í bílslysi á Snæfellsnesi
Erlendur ferðamaður á þrítugsaldri lést eftir alvarlegt umferðarslys á Snæfellsnesi í gærmorgun, sunnudaginn 8. nóvember. Bifreið sem hann ók fór út a...
„Öld loftslagsöfga“ runnin upp
📅 09.11.2026 👁️ 2
„Öld loftslagsöfga“ runnin upp
„Öld loftslagsöfga“ runnin upp Lofts­lags­ráð­stefnan COP31 hefst í dag í ríki sem notar kol og glímir við plast­mengun. Lofts­lags­ráð­stefnan COP31 ...
Ákærður fyrir að taka föður sinn hálstaki og kæfa hann með kodda
📅 09.11.2026 👁️ 1
Ákærður fyrir að taka föður sinn hálstaki og kæfa hann með kodda
Héraðssaksóknari hefur ákært karlmann á fimmtugsaldri fyrir manndráp og stórfellt brot í nánu sambandi með því að hafa drepið föður sinn. Maðurinn er ...
Feiti-Jos með fulla nös í Freetown
📅 09.11.2026 👁️ 1
Feiti-Jos með fulla nös í Freetown
Jos Leijdekkers komst snemma í kast við lögin. Hann er fæddur 1991 og var strax 2011, þá tvítugur, dæmdur í sex ára fangelsi fyrir tilraun til manndrá...
Sjónar­spil við Capri - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 2
Sjónar­spil við Capri - Vísir
Capri liggur undan ströndum Napóli, við miðbik Ítalíu. Eyjan er mjög vinsæll ferðamannastaður. Um helgina var þar gefin út gul viðvörun vegna úrkomu o...
Kalla eftir auknu gagnsæi í svínahaldi
📅 09.11.2026 👁️ 2
Kalla eftir auknu gagnsæi í svínahaldi
Dýraverndarsamband Íslands kallar eftir auknu gagnsæi í svínahaldi og segir að það sé óásættanlegt að starfsemin sé svo lokuð að almenningur fái fyrst...
Vilja að frestur til að upp­fylla kröfur verði endur­skoðaður - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Vilja að frestur til að upp­fylla kröfur verði endur­skoðaður - Vísir
Dýraverndarsamband Íslands segir að myndefnið sem tekið var í innbroti í svínabú Stjörnugríss og hefur verið í dreifingu varpi ljósi á alvarleg kerfis...
Spjallið með Frosta Logasyni | Leon Hill – ÍSLAND VERÐUR EINS OG SVÍÞJÓÐ!
📅 09.11.2026 👁️ 2
Spjallið með Frosta Logasyni | Leon Hill – ÍSLAND VERÐUR EINS OG SVÍÞJÓÐ!
Spjallið með Frosta LogasyniÁstralski áhrifavaldurinn Leon Hill hefur vakið gríðarlega athygli á samfélagsmiðlum fyrir harða og umdeilda gagnrýni sína...
Ók með fíkniefni, peninga og hníf – Grunaður um fjölda brota
📅 09.11.2026 👁️ 2
Ók með fíkniefni, peninga og hníf – Grunaður um fjölda brota
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í ýmsu að snúast í gærkvöldi og í nótt en alls voru 35 mál skráð í kerfi hennar frá klukkan 17 í gær til klukkan ...
Hetjudáð lögreglumanns í Kraká náðist á myndband – Gafst ekki upp þrátt fyrir skotsár
📅 09.11.2026 👁️ 1
Hetjudáð lögreglumanns í Kraká náðist á myndband – Gafst ekki upp þrátt fyrir skotsár
Nýtt myndskeið hefur verið birt af átökum tveggja lögreglumanna við vopnaðan árásarmann í borginni Kraká í Póllandi á laugardag. Á myndskeiðinu sést m...
Trump says he was 'kidding' about Dana White press secretary offer
📅 09.11.2026 👁️ 2
Trump says he was 'kidding' about Dana White press secretary offer
The president told the Ultimate Fighting Championship boss to "please take the job" in a Truth Social post on Saturday.
Kína neitar að hafa njósnað um forstjóra Nvidia
📅 09.11.2026 👁️ 2
Kína neitar að hafa njósnað um forstjóra Nvidia
Kína neitar að hafa njósnað um forstjóra bandaríska örgjörvaframleiðandans Nvidia. „Saga um svokallaðan kínverskan njósnara er órökréttur óhróður og r...
Trump segir „afar ólíklegt“ að stríðið við Íran hefjist á ný
📅 09.11.2026 👁️ 3
Trump segir „afar ólíklegt“ að stríðið við Íran hefjist á ný
Trump segir „afar ólíklegt“ að stríðið við Íran hefjist á ný Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, fundar í dag með for­sæt­is­ráð­herra Katar, sem ...
Fátt breyst á ári frá löggildingu samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks
📅 09.11.2026 👁️ 2
Fátt breyst á ári frá löggildingu samnings SÞ um réttindi fatlaðs fólks
Lítið hefur breyst síðan Alþingi lögfesti samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks fyrir ári síðan að mati ÖBÍ réttindasamtaka. Samninguri...
Engin tegund af skvísum eða fingramat upp­fylli við­mið - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Engin tegund af skvísum eða fingramat upp­fylli við­mið - Vísir
Birna Þórisdóttir, dósent við Matvæla- og næringarfræðideild við Heilbrigðisvísindasvið HÍ, segir viðmiðin ansi ströng. Algengast sé að vörur falli á ...
Canary Islands: 34 dead after migrant boat sinks off Senegal en route to Europe
📅 09.11.2026 👁️ 1
Canary Islands: 34 dead after migrant boat sinks off Senegal en route to Europe
The Atlantic crossing to Spain's Canary Islands remains dangerous for migrants seeking a better life
Árásarmaðurinn í Kraká er látinn
📅 09.11.2026 👁️ 2
Árásarmaðurinn í Kraká er látinn
Maður sem skaut sex manns til bana og særði sextán í Kraká í Póllandi um helgina lést í morgun. Hann er 24 ára Pólverji og særðist lífshættulega eftir...
Leiðréttir sögusagnir um hversu mikla peninga hún græddi á Two and a Half Men
📅 09.11.2026 👁️ 2
Leiðréttir sögusagnir um hversu mikla peninga hún græddi á Two and a Half Men
Nýsjálenska leikkonan Melanie Lynskey vill leiðrétta sögusagnir um að hún hafi þénað 200.000 dollara (tæpar 25 milljónir króna) á þátt af Two and a Ha...
Leon Hill vill banna íslam á Vesturlöndum: „Ísland verður eins og Svíþjóð mjög fljótlega“
📅 09.11.2026 👁️ 2
Leon Hill vill banna íslam á Vesturlöndum: „Ísland verður eins og Svíþjóð mjög fljótlega“
Ástralski áhrifavaldurinn Leon Hill, sem vakið hefur mikla athygli fyrir harða gagnrýni sína á innflytjendastefnu Evrópuríkja og íslam, segir að banna...
Viður­kennir að „of harka­leg“ stefna hafi valdið skaða - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 2
Viður­kennir að „of harka­leg“ stefna hafi valdið skaða - Vísir
Forsetinn hefur í framhaldinu boðist til að gera samning við Demókrata um innflytjendamál og sagðist vera opinn fyrir samkomulagi um að leyfa einhverj...
Heimskautarefurinn í fyrsta sinn á íslenskum válista
📅 09.11.2026 👁️ 2
Heimskautarefurinn í fyrsta sinn á íslenskum válista
Heimskautarefurinn í fyrsta sinn á íslenskum válista Heim­skauta­ref­ur­inn verður settur á válista spen­dýra á Íslandi í fyrsta sinn í vetur. Fjörutí...
Monday’s weather improves across the Canary Islands after Storm Bruna
📅 09.11.2026 👁️ 2
Monday’s weather improves across the Canary Islands after Storm Bruna
The Canary Islands can expect a quieter day of weather today, Monday 9th November, following the passage of Storm Bruna over the weekend.There will st...