Birna Þórisdóttir, dósent við Matvæla- og næringarfræðideild við Heilbrigðisvísindasvið HÍ, segir viðmiðin ansi ströng. Algengast sé að vörur falli á viðmiðum um fríar sykrur og orkuþéttni. Birna var til viðtals í Bítinu á Bylgjunni í morgun um rannsóknina.
Rannsóknin á sér 10 ára aðdraganda samkvæmt umfjöllun um hana á vef Háskóla Íslands. Þar kemur fram að haustið 2016 hafi Birna veið að vinna úr rannsóknargögnum um mataræði íslenskra barna á aldrinum 6−12 mánaða.
Birna vann rannsóknina í samvinnu við Tinnu Óðinsdóttur, verkefnisstjóra á Rannsóknastofu í næringarfræði, sem þá var meistaranemi í næringarfræði, til að safna gögnum um tilbúinn barnamat á íslenskum markaði og búa til gagnagrunn með upplýsingum um vörutegundir og næringarinnihald þeirrah
Úrvalið mikið breytt síðustu tíu ár
Tinna skoðaði barnamat sem er í boði á Íslandi, mjólkurblöndur og ungbarnablöndur, sem eru vörur sem sum börn þurfa með eða í stað móðurmjólkur. Svo skoðaði hann grauta, krukkumat, skvísur og fingramat.
Birna segir úrvalið hafa breyst mikið síðustu tíu árin og samsetningin á matnum líka. Það hafi aukist mikið fingramaturinn og skvísurnar og á sama tíma hafi úrvalið af krukkumat minnkað.
Birna segir að í rannsókninni hafi þessi matur verið mátaður við næringarviðmið frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni. Fram kemur í tilkynningu um rannsóknina á vef Háskóla Íslands að fyrstu niðurstöður bendi til þess að aðeins lítill hluti barnamatar sem fæst í íslenskum verslunum standist næringarviðmið Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO).
Viðmiðin voru þróuð af Evrópuskrifstofu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar til að meta næringargæði og markaðssetningu á tilbúnum barnamat og drykkjarvörum fyrir ungbörn og smábörn á aldrinum 6 til 36 mánaða. Viðmiðin eru meðal annars nýtt til að styðja við lýðheilsumarkmið um mataræði og þroska ungbarna.
„Það kemur í ljós að mjög lítill hluti þessara vara uppfyllir þessi viðmið,“ segir Birna en rætt var við hana í Bítinu á Bylgjunni um rannsóknina og niðurstöður hennar.
Orkusnauður matur
Hún segir að í viðmiðunum sé gert ráð fyrir að það sé ákveðið magn af orku í matnum og niðurstöður hafi sýnt að stór hluti þeirra vara sem þær skoðuðu hafi verið orkusnauður fyrir þessi ungu börn.
„Ungbörn eru með lítinn maga og það þarf að gefa þeim ofsalega næringarríkan mat til þess að þau fái þá næringu og orku sem þau þurfa í þennan litla maga,“ segir Birna og að oft séu vörurnar vatnsblandaðar og í þeim sé lítil orka og næring.
Þá séu þær of mjög unnar. Það sé búið að vinna ávexti í þykkni eða mauk og það svo sett í vöruna og því oft mikið af fríum sykrum sem er ávaxtasykur sem er svo mikið unninn að líkaminn tekur hann hratt upp og breytir um form.
Falli á fríum sykrum
Birna segir slíkar vörur falla undir næringarviðmið á þessum fríu sykrum en einnig á merkingum. Á vörunum standi að það sé ákveðinn ávöxtur í vörunni en það sé í rauninni bara þykkni.
Birna segir þarna lögin ekki nægilega skýr og viðmiðin hjá Who hafi verið gerð svo að lönd gætu skoðað sín viðmið og hvort það þyrfti að skýra þau betur. Hún segir reglur fyrir ungbarnablöndur og formúlur séu mjög strangar og þær taldar uppfylla viðmið og grautarnir líka.
„En í kringum aðrar vörur eru í raun og veru ekki margar reglur,“ segir hún og að einnig vanti aldursmerkingar á margar vörurnar og þá þurfi þær ekki að fylgja ákveðnum reglum.
Í rannsókninni voru 400 tegundir af barnamat skoðaðar. Í tilkynningu á vef háskólans segir Gögnin sem rannsóknarhópurinn hefur safnað saman benda til þess að um 400 tegundir af tilbúnum barnamat fáist í matvöruverslunum á Íslandi. Þar af eru yfir 120 tegundir af mauki í „skvísum“ og rúmlega 110 tegundir af svokölluðum fingramat eða vörum sem börn geta tínt upp í sig sjálf.
Foreldrar verði að hafa val
Birna segir sumar vörur mikilvægt að hafa, eins og grauta og ungbarnablöndur, sem eru fyrir minnstu börnin á fyrsta og öðru ári, en fólk sé að nota þær stundum lengur.
„Það sem er slæmt er að fólk heldur að þetta komi í staðinn fyrir brauð eða ávöxt á meðan þetta ætti í raun að koma í stað nammi,“ segir hún og að það sé misskilningurinn.
Birna segir að í sumum gúmmívörunum sé innihaldið í raun eins og í sælgæti.
Hún segir ekki mælt með því að mjög lítil börn fái jógúrt og skyr og slíkar vörur og því þurfi foreldrar að geta gripið í eitthvað annað, þá sé gott að þessar vörur séu í boði.
„En þá skiptir rosalega miklu máli að þetta séu vörur sem eru raunverulega góður valkostur.“
Sem fyrr segir benda fyrstu niðurstöður til þess að engin tegund af skvísum eða fingramat uppfylli viðmið um næringarsamsetningu og að einungis fjórðungur mauks í krukkum og um þriðjungur grautarmjöls standist viðmiðin. Aðspurð hvað valdi því að þessar vörur uppfylli ekki skilyrði Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar segir Birna að viðmiðin séu tiltölulega ströng. Algengast sé að vörur falli á viðmiðum um fríar sykrur og orkuþéttni.
Sláandi niðurstöður
„Þetta eru sláandi niðurstöður,“ segir Birna en tekur þó fram að þær komi henni ekki á óvart. Þær séu sams konar í nágrannalöndum og hún hafi í raun búist við því. Það sé mikilvægt að geta greint frá íslenskum niðurstöðum.
Birna segir áríðandi að fólk átti sig á þessu og skoði vel umbúðirnar, velji besta valkostinn. Þá telur hún að upplýsa þurfi foreldra betur um næringu en einnig þurfi að ná utan um þennan markað með lögum og reglum.
Birna segir verkefnið enn í þróun og að það verði framhald síðar.