Það verður að segjast að Steindi var ekki beint hrifinn af nándinni í meðferðinni en Halldór náði að koma sér í stellingar og njóta. Hér að neðan má sjá brot úr fyrsta þættinum en 1 Stjarna er aðgengileg á streymisveitunni Sýn+.
Fyrsta sería af ferðaþáttunum Einni stjörnu kom út árið 2024 þar sem Dóri og Steindi flökkuðu milli ólíkra staða í leit að einnar stjörnu afþreyingu og gististöðum. Nú hafa þeir endurtekið leikinn og verður fróðlegt að fylgjast með næstu fimm föstudaga.