Maðurinn heitir Gunnar Freyr Hilmarsson og er á 46. aldursári. Í ákærunni sem Vísir hefur undir höndum kemur fram að hann hafi aðfararnótt 26. júlí í sumar tekið Hilmar Odd Gunnarsson föður sinn hálstaki og þrengt að öndunarvegi hans þar sem hann lá í rúmi sínu aðfararnótt 26. júlí, sett kodda yfir andlit hans og þrýst að og á brjóstkassa mannsins með þeim afleiðingum að faðirinn lést af völdum köfnunar.
Héraðssaksóknari krefst þess að maðurinn verði dæmdur til refsingar en til vara að honum verði gert að sæta öryggisvistun á viðeigandi stofnun.
Greint var frá því í lok ágúst að maðurinn væri eldri sonur Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur þingmanns Flokks fólksins. Hún greindi frá því þann 26. júlí að eiginmaður hennar hefði látist 72 ára að aldri eftir að hafa síðustu árin glímt við erfið veikindi.
Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur Gunnar Freyr átt við andleg veikindi að stríða í lengri tíma.
Mál ákæruvaldsins á hendur honum var þingfest þann 5. nóvember en Gunnar Freyr gaf ekki upp afstöðu sína til sakarefnis þá, líkt og venjan er. Hann fékk frest til 23. nóvember til þess að gera það.