Þrjár spár eru birtar undir yfirheitinu mannfjöldaspá: grunnspá, lágspá og háspá, en þær byggja á mismunandi forsendum um frjósemi og búferlaflutninga. Gert er ráð fyrir eftirfarandi breytingum samkvæmt mannfjöldaspánni:
- Hlutfall íbúa á vinnualdri (16 til 74 ára) mun lækka úr 74% árið 2025 í 67% árið 2076. Samkvæmt spánni eru 80% líkur á að hlutfallið verði á bilinu 58–71%.
- Fyrir árið 2046 verða íbúar eldri en 65 ára fjölmennari en íbúar yngri en 20 ára.
- Miðgildisaldur landsmanna hækkar úr 37 árum árið 2026 í 50 ár árið 2076. Samkvæmt spánni eru 80% líkur á að meðalaldur verði á bilinu 44 til 59 ár.
Í umfjöllun Hagstofunnar segir að samkvæmt háspá gæti íbúafjöldi á Íslandi orðið 800 þúsund árið 2076. Þar er gert ráð fyrir 10 prósentum hærri frjósemi, fimm prósentum fleiri aðfluttum og fimm prósentum færri brottfluttum en í grunnspá.
Fjölgi fyrst og fækki svo
Þá segir að samkvæmt lágspá gæti íbúafjöldi orðið 390 þúsund árið 2076. Spáin gerir þó ráð fyrir að íbúum fjölgi fyrst í um 416 þúsund árið 2046 en fækki síðan. Í lágspánni er gert ráð fyrir 10 prósentum lægri frjósemi, fimm prósentum færri aðfluttum og fimm prósentum fleiri brottfluttum en í grunnspá.
Grunnspá um mannfjöldaþróun byggist á tölfræðilegum líkönum fyrir frjósemi, dánartíðni og búferlaflutninga, þar sem spágildin eru sameinuð í spár um heildarmannfjölda samkvæmt hefðbundnum aðferðum í tölfræði og lýðfræði. Niðurstöður mannfjöldaspárinnar taka ekki mið af áhrifum vegna hugsanlegra áfalla af völdum náttúrulegra, félagslegra eða efnahagslegra þátta.
Öldrun stafi af lækkandi frjósemi og auknum lífslíkum
Í tilkynningu Hagstofunnar segir að á næstu tíu árum gæti frjósemishlutfall lækkað niður í 1,4 börn (miðgildi) á hverja konu og 80 prósent líkur séu á því að hlutfallið verið 1,3 til 1,5. Hins vegar bendir grunnsviðsmynd spárinnar til þess að frjósemishlutfallið verði 1,6 árið 2076.
Spá sem byggi á minni vexti bendi þó til þess að hlutfallið verði 1,4 árið 2076 sem er svipað meðalfrjósemishlutfall og var í Evrópusambandinu (1,4) árið 2022.
Þá segir í tilkynningu Hagstofunnar að ævilíkur við fæðingu muni aukast úr 84 árum árið 2025 í 92 ár árið 2076 hjá konum og úr 81 ári í 87 ár hjá körlum, samkvæmt miðspánni. Fjöldi aðfluttra verði samkvæmt spánni meiri en fjöldi brottfluttra allt tímabilið og verða aðfluttir umfram brottflutta að meðaltali 3.100 samkvæmt grunnspánni, en 860 samkvæmt sviðsmynd um minni vöxt (lágspá) og 6.500 samkvæmt sviðsmynd um meiri vöxt (háspá) á næstu 50 árum.
Að lokum segir í tilkynningu Hagstofunnar að öldrun þjóðarinnar stafi af lækkandi frjósemi og auknum lífslíkum. Þessi þróun sé þó enn hægari á Íslandi en í ríkjum Evrópusambandsins, vegna mikilla búferlaflutninga fólks á unga aldri og tiltölulega hárrar frjósemi samanborið við meðaltal Evrópusambandsins.
Miðgildisaldur í ríkjum Evrópusambandsins var 44 ár árið 2021, en því gildi verður ekki náð á Íslandi fyrr en árið 2046 samkvæmt miðgildisspánni, árið 2066 samkvæmt spáútgáfu um mesta búferlaflutninga og árið 2036 samkvæmt spáútgáfu um minnsta búferlaflutninga.