Merz greindi flokksmönnum sínum hjá Kristilegum demókrötum (CDU) frá þessu á fundi um helgina.
Aigner hefur lengi verið virk hjá Kristilegum demókrötum í Bæjaralandi (CSU), systurflokki CDU, og er forseti bæverska sambandsþingsins. Verði Aigner samþykkt af þýska sambandsþinginu í lok janúar yrði hún fyrsta konan til að gegna embætti forseta Þýskalands.
Hinn sjötugi Steinmeier hefur gegnt embætti forseta frá árinu 2017. Hann var áður þingmaður Sósíaldemókrata (SPD) og utanríkisráðherra Þýskalands.
Hin 61 árs gamla Aigner er verkfræðingur að mennt og átti sæti á þýska þinginu 1998 til 2013. Hún gegndi embætti ráðherra landbúnaðarmála á árunum 2008 til 2013 og efnahags- og orkumála 2013 til 2018. Hún hefur verið forseti bæverska þingsins frá árinu 2018.