Presley Gerber lést á meðferðarstofnun í Los Angeles þann 20. september, 27 ára að aldri. Systir hans, Kaia, 25 ára, deildi um helgina hjartnæmum skilaboðum um sorgina, rúmum mánuði eftir andlátið.Á Instagram birti Kaia tilvitnun úr bókinni The Year of Magical Thinking eftir Joan Didion, sem hljóðar svo: „Sorgin, þegar hún kemur, er alls ekki eins og maður bjóst við. Sorgin þekkir enga fjarlægð. Hún kemur í bylgjum, í köstum, sem skyndilegur ótti sem slær fótunum undan manni, blindar augun og þurrkar út hversdagslífið.“
Sendir frá sér hjartnæma kveðju um sorgina í kjölfar andláts bróður síns: „Viss um að hún muni gleypa mig í heilu lagi“