Kærunefnd útlendingamála hefur staðfest ákvörðun Útlendingastofnunar um að vísa manni frá Jamaíka úr landi og ákvarða honum endurkomubann. Umræddur maður var dæmdur fyrir nauðgun en taldi það ósanngjarna ráðstöfun að vísa honum úr landi. Nefndin staðfesti einnig ákvörðun stofnunarinnar um að fella niður frest hans til sjálfviljugrar brottfarar.Maðurinn hafði verið með dvalarleyfi hér landi síðan 2019 en hann kom hingað til lands fyrst á unglingsaldri.
Dæmdur nauðgari sætti sig ekki við brottvísun úr landi