Lögreglu barst tilkynning um að bíll hefði hafnað í Kleifá um klukkan hálf ellefu í gærmorgun en tveir ferðamenn frá Evrópu voru í bílnum. Sá sem var í farþegasætinu komst út af sjálfsdáðum en ökumaðurinn var fastur í bílnum í nokkurn tíma.
Guðmundur Rúnar Svansson, hjá björgunarsveitinni Elliða, var meðal þeirra fyrstu á vettvang en hann var á leiðinni á Breiðablik á Snæfellsnesi til að selja neyðarkall björgunarsveitanna þegar hann kom að slysinu fyrir tilviljun.
„Þegar ég kem að þessu eru almennir vegfarendur að reyna að aðstoða. Einn þeirra er slökkviliðsmaður sem ég kannast við úr Grundarfirði og þá eru einnig almennir vegfarendur úti í ánni að athuga hvort það sé hægt að losa mann sem er eftir í bílnum. Það var ekki að ganga þannig þetta voru hættulegar aðstæður til að vera í,“ segir Guðmundur
Bílnum hafði verið ekið í vesturátt eftir Snæfellsnesvegi og virðist hafa farið út af eigin vegarhelmingi við enda vegriðs.
„Hann fer þar út af veginum, ofan í ána og jafnvel aðeins yfir ána hinum megin. Svo grípur áin í rauninni bara bílinn og dregur hann með sér undir ræsi. Þetta er svona lítið ræsi undir þjóðveginn og bíllinn staðnæmist síðan hinum megin við veginn, á talsverðu dýpi þar og er nánast allur á kafi.“
Veður var gott en Guðmundur segir ána hafa verið vatnsmikla sökum ofankomu undanfarið. Fleiri viðbragðsaðilar mættu síðar á vettvang og tókst slökkviliði í Stykkishólmi að koma bílnum upp úr ánni.
Ökumanninum var komið úr bílnum og var hann fluttur með þyrlu á Landspítalann þar sem hann var úrskurðaður látinn nokkru síðar. Farþeginn sem komst út úr bílnum var fluttur með sjúkrabíl á Landspítalann til skoðunar en meiðslin eru talin minniháttar. Tildrög slyssins eru til rannsóknar hjá lögreglu.