Vill krefja starfs­fólk sem veikist oft um læknis­vott­orð - Vísir

Vill krefja starfs­fólk sem veikist oft um læknis­vott­orð - Vísir

Vill krefja starfs­fólk sem veikist oft um læknis­vott­orð - Vísir

Ásdís kynnti drög að breyttu verklagi í bæjarráði á fimmtudag. Þau voru lögð fram til umræðu og miðast við að breytingarnar komi til framkvæmda á næsta ári. 

„Við erum að kalla eftir því að starfsfólk mæti til læknis og fái staðfest veikindin,“ segir Ásdís.

„Þetta er svona að okkar mati 5 til 8% af þeim sem eru veikir á hverjum tíma.“

Margar stuttar fjarvistir gefa fleiri stig

Kópavogsbær skráir hversu oft starfsmaður er frá vegna veikinda og hve lengi í senn. Fjarvistirnar gefa stig á svokölluðum Bradford-kvarða. Sex veikindadagar gefa til dæmis fleiri stig ef starfsmaður veikist þrisvar í tvo daga en ef hann er veikur í sex daga samfleytt. 

Bærinn notar stigin þegar til að fylgja eftir tíðum fjarvistum. Starfsmaður á þriðja þrepi kvarðans fer nú í samtal við hjúkrunarfræðing. Í drögunum er lagt til að skoða hvort starfsfólk á þriðja og fjórða þrepi, þeim tveimur efstu, þurfi að skila vottorði sem staðfestir að læknir hafi metið það. Starfsfólk á neðri þrepunum þyrfti almennt ekki að skila vottorði. Þá vill bærinn kanna hvort starfsfólk geti fengið að sjá eigin stig. 

Trúnaðarlæknir gæti metið hvort forföll séu réttmæt.

Ef vottorð staðfestir ekki læknisskoðun yrði beðið um nýtt þar sem dagsetning skoðunar kemur fram. Berist það ekki yrði óskað eftir mati trúnaðarlæknis á því hvort starfsmaður sé vinnufær og hvort forföllin séu réttmæt. Bærinn myndi byggja ákvörðun um greiðslu veikindalauna á því mati og taka mið af lögum og kjarasamningum. 

Samkvæmt gildandi kjarasamningi Starfsmannafélags Kópavogs getur yfirmaður þegar krafist vottorðs vegna endurtekinna fjarvista. Samningurinn kveður á um að bærinn endurgreiði starfsfólki kostnað við vottorð sem hann krefst og læknisviðtal til að afla þess. 

Ásdís segir að dregið hafi úr skammtímaveikindum hjá starfsfólki Kópavogsbæjar. Veikindi starfsfólks kosti bæinn þó enn um tvo milljarða króna á ári.

Í drögunum eru einnig breytingar fyrir fólk í langtímaveikindum. Frá 1. janúar 2027 myndi ótímabundið læknisvottorð aðeins duga eitt og sér til að staðfesta áframhaldandi óvinnufærni ef trúnaðarlæknir hefði gefið það út eða staðfest það. Starfsfólk gæti lagt fram nýtt vottorð eftir þörfum. Þá er lagt til að leitað verði til trúnaðarlæknis ef starfsmaður á uppsagnarfresti er fjarverandi vegna veikinda. 

Segir veikindi kosta bæinn um tvo milljarða á ári

„Við erum að sjá það að skammtímaveikindi hafa verið að lækka hjá Kópavogsbæ en það breytir þó ekki því að enn erum við að sjá að veikindakostnaðurinn er hár,“ segir Ásdís um stöðuna eftir tveggja ára átak bæjarins.

„Árlegur veikindakostnaður hjá Kópavogsbæ er í kringum 2 milljarðar,“ segir hún og bendir á að þegar margir veikist á sömu starfsstöð aukist álag á þá sem mæta til vinnu.

Í minnisblaði mannauðsstjóra kemur fram að kostnaðartölur bæjarins í mælaborði mannauðs byggist á grunnlaunum. Bærinn vinnur að því að ná utan um heildarkostnaðinn, þar á meðal yfirvinnu og önnur laun sem falla til í veikindafjarvistum. 

Skráðum dögum vegna skammtímaveikinda fækkaði um 8,6 prósent fyrstu átta mánuði ársins miðað við sama tímabil í fyrra. Veikindalotum fækkaði um 2,5 prósent og þær styttust að meðaltali. Á sama tíma námu skammtímaveikindi meira en níu prósentum af þeim tíma sem starfsfólk átti að vinna í tólf starfahópum. Mannauðsstjóri bendir á að munur milli hópa geti meðal annars tengst eðli starfa, álagi og vaktavinnu. 

Vill sjá hverju átakið hefur skilað

Eydís Inga Valsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, segir í bókun að heildarveikindahlutfallið sé hærra en þegar átakið hófst. Hún vill að bærinn leggi fram mat á kostnaði og árangri og setji töluleg markmið áður en reglunum verði breytt. Hún varar við því að „gengið sé enn harðar fram gagnvart veiku starfsfólki bæjarins“. 

Meirihlutinn bendir á að átakið hafi fyrst og fremst beinst að skammtímaveikindum. Hann telur að fækkun veikindadaga á því sviði gefi tilefni til að halda áfram og segir drögin jafnframt gera ráð fyrir auknum stuðningi og forvörnum. 

„Við erum auðvitað líka að grípa til þessara aðgerða til að ná betur utan um ástæður þess að fólk er kannski óvenju oft veikt,“ segir Ásdís. Með því geti bærinn betur metið hvort starfsfólk þurfi stuðning.

#krefja #sem #starfsfólk #veikist #vill

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262960391d/vill-krefja-starfsfolk-sem-veikist-oft-um-laeknisvottord

📰 Aðrar fréttir

Þurfa nýburar K-vítamín?
📅 09.11.2026 👁️ 1
Þurfa nýburar K-vítamín?
Þurfa nýburar K-vítamín? Fréttin9. nóvember 2026Heilbrigðismál, Innlent, Júlíus ValssonLeave a Comment Júlíus Valsson skrifar: Stór bandarísk rannsókn...
Verði fyrst kvenna til að gegna em­bætti for­seta Þýska­lands - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Verði fyrst kvenna til að gegna em­bætti for­seta Þýska­lands - Vísir
Merz greindi flokksmönnum sínum hjá Kristilegum demókrötum (CDU) frá þessu á fundi um helgina. Aigner hefur lengi verið virk hjá Kristilegum demókrötu...
Sendir frá sér hjartnæma kveðju um sorgina í kjölfar andláts bróður síns: „Viss um að hún muni gleypa mig í heilu lagi“
📅 09.11.2026 👁️ 1
Sendir frá sér hjartnæma kveðju um sorgina í kjölfar andláts bróður síns: „Viss um að hún muni gleypa mig í heilu lagi“
Presley Gerber lést á meðferðarstofnun í Los Angeles þann 20. september, 27 ára að aldri. Systir hans, Kaia, 25 ára, deildi um helgina hjartnæmum skil...
Sigvaldi Einarsson skrifar: Nautið í flaginu: Trump missti þingið og réð Stephen Miller
📅 09.11.2026 👁️ 1
Sigvaldi Einarsson skrifar: Nautið í flaginu: Trump missti þingið og réð Stephen Miller
Fyrir tæpum tveimur vikum skrifaði ég hér á Eyjunni grein undir fyrirsögninni „Nautið í flaginu: tekst að koma hring í nefið á Trump?“ Þar velti ég fy...
Dæmdur nauðgari sætti sig ekki við brottvísun úr landi
📅 09.11.2026 👁️ 2
Dæmdur nauðgari sætti sig ekki við brottvísun úr landi
Kærunefnd útlendingamála hefur staðfest ákvörðun Útlendingastofnunar um að vísa manni frá Jamaíka úr landi og ákvarða honum endurkomubann. Umræddur ma...
Arna Lára um múslima á þingi: „Við eigum þetta svo sem eftir“
📅 09.11.2026 👁️ 2
Arna Lára um múslima á þingi: „Við eigum þetta svo sem eftir“
Gunnar Smári Egilsson fjallaði um fylgi Repúblikanaflokksins og hópana að baki Trump í Synir Egils á Samstöðinni sunnudaginn 8. nóvember 2026, þar sem...
Hand­tekinn á Ís­landi fyrir nauðgun á Ír­landi 2004 - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Hand­tekinn á Ís­landi fyrir nauðgun á Ír­landi 2004 - Vísir
Í úrskurði héraðsdóms kemur fram að Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hafi með milligöngu ríkissaksóknara borist evrópsk handtökuskipun frá yfirvöldum ...
Vilja áframhaldandi gæsluvarðhald vegna manndráps í Breiðholti
📅 09.11.2026 👁️ 2
Vilja áframhaldandi gæsluvarðhald vegna manndráps í Breiðholti
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur farið fram á framlengingu á gæsluvarðhaldi yfir karlmanni á fertugsaldri sem grunaður er um manndráp í Breiðholti...
Hátískan tók yfir Hörpu - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 2
Hátískan tók yfir Hörpu - Vísir
Misbrigði fór fram í tólfta sinn af nemendum á öðru ári í fatahönnun við Listaháskóla Íslands. Misbrigði er unnið í samstarfi við Fatasöfnun Rauða kro...
Innanríkisráðherra Póllands biðst afsökunar og dregur í land með fullyrðingar um hægriöfgamann í Kraká
📅 09.11.2026 👁️ 0
Innanríkisráðherra Póllands biðst afsökunar og dregur í land með fullyrðingar um hægriöfgamann í Kraká
Innanríkisráðherra Póllands biðst afsökunar og dregur í land með fullyrðingar um hægriöfgamann í Kraká Fréttin9. nóvember 2026Erlent, HryðjuverkLeave ...
Innbrot í minkabú enn óupplýst
📅 09.11.2026 👁️ 2
Innbrot í minkabú enn óupplýst
Rannsókn lögreglu á fimm innbrotum í fjögur framleiðslubú svína og alifugla í sumar miðar vel. Hinn grunaði hefur játað innbrotin en innbrot á minkabú...
Gillingham man jailed over racist Kemi Badenoch death threats
📅 09.11.2026 👁️ 1
Gillingham man jailed over racist Kemi Badenoch death threats
Kieran Kyle sent emails to the Tory party leader in which he made racist references, a court hears.
Veg­far­endur reyndu að ná manninum úr bílnum - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 2
Veg­far­endur reyndu að ná manninum úr bílnum - Vísir
Lögreglu barst tilkynning um að bíll hefði hafnað í Kleifá um klukkan hálf ellefu í gærmorgun en tveir ferðamenn frá Evrópu voru í bílnum. Sá sem var ...
Hvað kostar að reka bíl?
📅 09.11.2026 👁️ 2
Hvað kostar að reka bíl?
Kílómetragjald hækkur um 15,9% um áramótin. Þegar gjaldið var sett á um síðustu áramót var olíugjald afnumið og lækkaði eldsneytisverð töluvert. Verði...
Íslendingar treysta á að þetta reddist – Sláandi niðurstöður nýlegrar könnunar
📅 09.11.2026 👁️ 1
Íslendingar treysta á að þetta reddist – Sláandi niðurstöður nýlegrar könnunar
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hefur gefið út bæklinginn Verum viðbúin til að efla viðbúnað almennings og styrkja seiglu samfélagsins gegn óvæn...
Minnast Magda­lenu sem fannst myrt með for­eldrunum - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 2
Minnast Magda­lenu sem fannst myrt með for­eldrunum - Vísir
Lögregla í Póllandi rannsakar enn árásina á aðaltorginu í Kraká á laugardag þar sem sex manns létust og fimmtán særðust. Árásarmaðurinn lést svo af sá...
Bæjar­stjóri Kópa­vogs vill kalla eftir veikindavottorðum starfs­fólks - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Bæjar­stjóri Kópa­vogs vill kalla eftir veikindavottorðum starfs­fólks - Vísir
Þá verður sagt frá því að ökumaður bifreiðar, sem hafnaði úti í Kleifá á Snæfellsnesi í gærmorgun, hafi verið úrskurðaður látinn á Landspítalanum. Tve...
Bíll borgar­stjóra skemmdist og nýr tekinn á leigu - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Bíll borgar­stjóra skemmdist og nýr tekinn á leigu - Vísir
Vísi barst á dögunum ábending um að Hildur Björnsdóttir væri komin á nýjan borgarstjórabíl, nánar tiltekið Audi-jeppa í stærri kantinum. Í svari við f...
How 3D prototyping can help Carnival creators test big ideas before building
📅 09.11.2026 👁️ 2
How 3D prototyping can help Carnival creators test big ideas before building
Carnival design thrives on excess. A successful float, stage element or queen’s costume may combine towering forms, saturated colour, reflective surfa...
Í­huga að loka á TikTok vegna barnaníðsefnis - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Í­huga að loka á TikTok vegna barnaníðsefnis - Vísir
Forsvarsmenn TikTok, sem er í eigu kínversks fyrirtækis, viðurkenndu í tengslum við dómsmál í Bandaríkjunum árið 2022 að barnaníðsefni væri vandamál á...
Kúrmeðferðin heillaði Dóra en Steindi var ekki jafn hrifinn - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Kúrmeðferðin heillaði Dóra en Steindi var ekki jafn hrifinn - Vísir
Það verður að segjast að Steindi var ekki beint hrifinn af nándinni í meðferðinni en Halldór náði að koma sér í stellingar og njóta. Hér að neðan má s...
Kári sakar Amgen um lygar vegna nýs þyngdarlyfs
📅 09.11.2026 👁️ 1
Kári sakar Amgen um lygar vegna nýs þyngdarlyfs
Bloomberg greindi frá því í síðustu viku að megrunarlyfið MariTide eigi rætur að rekja til rannsókna Íslenskrar erfðagreiningar á erfðaefni um 200 þús...
Ís­lendingur í Taí­landi dæmdur fyrir þjófnað - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 2
Ís­lendingur í Taí­landi dæmdur fyrir þjófnað - Vísir
Þetta kemur fram í viðtali DV við Jóhann þar sem hann upplýsir um niðurstöðuna. Klippa: Íslendingur sakfelldur fyrir þjófnað í Taílandi Atvikið í Pato...
Golfið gefur líkams­ræktinni nýjan til­gang - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Golfið gefur líkams­ræktinni nýjan til­gang - Vísir
Markmiðið er að verða betri í golfi eða viðhalda getu sinni lengur. Á leiðinni hefur líka myndast samfélag þar sem enginn fær nóg af golfspjalli. Bjar...
Vikan á Instagram: „Upplifun að fara á Sexy Fish“
📅 09.11.2026 👁️ 2
Vikan á Instagram: „Upplifun að fara á Sexy Fish“
Vikan á Instagram er fastur liður á DV.is á mánudögum þar sem við skoðum hvaða myndir slógu í gegn á Instagram síðustu daga. Þetta er fólkið sem við e...
SKIMS jóladagatal Kim Kardashian sagt vera rusl og algjört okur: „Tilefni til málsóknar“
📅 09.11.2026 👁️ 1
SKIMS jóladagatal Kim Kardashian sagt vera rusl og algjört okur: „Tilefni til málsóknar“
Kim Kardashian sætir nú harðri gagnrýni á netinu vegna jóladagatals sem hún sendi frá sér undir vörumerki sínu SKIMS.Notendur samfélagsmiðla hafa kall...
Kristinn um nýjan starfsmannastjóra Trumps: Yrði ekki treyst til formennsku í húsfélagi
📅 09.11.2026 👁️ 1
Kristinn um nýjan starfsmannastjóra Trumps: Yrði ekki treyst til formennsku í húsfélagi
Kristinn Hrafnsson blaðamaður segir Stephen Miller, nýskipaðan starfsmannastjóra Hvíta hússins, öfgamann sem auki hættuna sem stafi af stjórn Donalds ...
Siggi Hlö varar við svindlsíðum: „Við erum að heyra um alltof marga Íslendinga sem falla í þá gryfju“
📅 09.11.2026 👁️ 1
Siggi Hlö varar við svindlsíðum: „Við erum að heyra um alltof marga Íslendinga sem falla í þá gryfju“
Farþegar á leið til Bretlands þurfa að hafa sótt um rafrænt ferðaleyfi, svokallaða ETA-vegabréfsáritun (Electronic Travel Authorisation) áður en þeir ...
Segir erlenda brotamenn hafa fengið afslátt af refsingum sínum – Vísar til manns sem nú ógnar Íslendingum
📅 09.11.2026 👁️ 1
Segir erlenda brotamenn hafa fengið afslátt af refsingum sínum – Vísar til manns sem nú ógnar Íslendingum
Sigríður Á. Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, gagnrýnir harðlega lagabreytingu sem gerði kleift að veita erle...
Dagvöruvísitala ASÍ hækkar þrátt fyrir fryst og lækkuð verð
📅 09.11.2026 👁️ 1
Dagvöruvísitala ASÍ hækkar þrátt fyrir fryst og lækkuð verð
Dagvöruvísitala Alþýðusambands Íslands (ASÍ) hækkaði á tímabilinu ágúst til nóvember þrátt fyrir loforð matvöruverslana um að lækka verð til að sporna...
Matvöruverð hækkar þrátt fyrir fryst og lækkuð verð

Réðust á eina stærstu olíu­vinnslu Rúss­lands - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 2
Réðust á eina stærstu olíu­vinnslu Rúss­lands - Vísir
Kirishi-olíuvinnslan í Leníngrad-héraði er sú næststærsta í Rússlandi og er nærri Pétursborg. Við hefðbundnar aðstæður hefur þessi vinnsla verið notuð...
Biðlisti reglugerða og tilskipana „hefndargjöf“ fyrir EES ríkin
📅 09.11.2026 👁️ 1
Biðlisti reglugerða og tilskipana „hefndargjöf“ fyrir EES ríkin
Dráttur á innleiðingu þeirrar löggjafar frá Evrópusambandinu sem á við um innri markaðinn hefur í nokkrum tilvikum leitt til þess að reglugerðir og ti...
Euro­vision löngu hætt að vera tónlistarkeppni - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Euro­vision löngu hætt að vera tónlistarkeppni - Vísir
Jónas og Valur Grettisson, blaðamaður Heimildarinnar, voru gestir Símonar Birgissonar í hlaðvarpinu Menningarvaktinni. Þar var rætt um leiksýninguna H...
Í­búar á Ís­landi 560 þúsund árið 2076 - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 2
Í­búar á Ís­landi 560 þúsund árið 2076 - Vísir
Þrjár spár eru birtar undir yfirheitinu mannfjöldaspá: grunnspá, lágspá og háspá, en þær byggja á mismunandi forsendum um frjósemi og búferlaflutninga...
Talinn hafa kæft föður sinn með kodda - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Talinn hafa kæft föður sinn með kodda - Vísir
Maðurinn heitir Gunnar Freyr Hilmarsson og er á 46. aldursári. Í ákærunni sem Vísir hefur undir höndum kemur fram að hann hafi aðfararnótt 26. júlí í ...
Ökumaður látinn eftir að bíll hafnaði í Kleifá
📅 09.11.2026 👁️ 2
Ökumaður látinn eftir að bíll hafnaði í Kleifá
Ökumaður bíls sem hafnaði í Kleifá í umferðarslysi í gærmorgun er látinn. Hann sat fastur í bifreiðinni um tíma.Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lög...
Bana­slys á Snæ­fells­nesi - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 2
Bana­slys á Snæ­fells­nesi - Vísir
Farþeginn komst út af sjálfsdáðum en ökumaðurinn ekki. Sá var fastur í bílnum um nokkurn tíma, samkvæmt yfirlýsingu frá Lögreglunni á Vesturlandi. Bjö...
Jóhann Freyr slapp við fangelsi í Taílandi þrátt fyrir þungan dóm
📅 09.11.2026 👁️ 1
Jóhann Freyr slapp við fangelsi í Taílandi þrátt fyrir þungan dóm
Jóhann Freyr Hallgrímsson, 37 ára gamall Akureyringur, var fyrir um mánuði síðan sakfellldur fyrir þjófnað og dæmdur í þriggja ára skilorðsbundið fang...
Forstjóri eins verðmætasta fyrirtækis heims í miðju njósnahneyksli – Þetta er vitað um málið
📅 09.11.2026 👁️ 1
Forstjóri eins verðmætasta fyrirtækis heims í miðju njósnahneyksli – Þetta er vitað um málið
Bandaríski tæknirisinn Nvidia hefur hafið sjálfstæða rannsókn á því hvort forstjóri fyrirtækisins, Jensen Huang, hafi verið skotmark erlendra njósnara...
Manndráp í Kópavogi: Banaði föður sínum í rúminu
📅 09.11.2026 👁️ 1
Manndráp í Kópavogi: Banaði föður sínum í rúminu
Maður sem grunaður er um að hafa banað föður sínum á heimili sínu í Kópavogi þann 26. júlí síðastliðinn hefur verið ákærður fyrir manndráp og stórfell...
Erlendur ferðamaður lést í bílslysi á Snæfellsnesi
📅 09.11.2026 👁️ 2
Erlendur ferðamaður lést í bílslysi á Snæfellsnesi
Erlendur ferðamaður á þrítugsaldri lést eftir alvarlegt umferðarslys á Snæfellsnesi í gærmorgun, sunnudaginn 8. nóvember. Bifreið sem hann ók fór út a...
„Öld loftslagsöfga“ runnin upp
📅 09.11.2026 👁️ 2
„Öld loftslagsöfga“ runnin upp
„Öld loftslagsöfga“ runnin upp Lofts­lags­ráð­stefnan COP31 hefst í dag í ríki sem notar kol og glímir við plast­mengun. Lofts­lags­ráð­stefnan COP31 ...
Ákærður fyrir að taka föður sinn hálstaki og kæfa hann með kodda
📅 09.11.2026 👁️ 1
Ákærður fyrir að taka föður sinn hálstaki og kæfa hann með kodda
Héraðssaksóknari hefur ákært karlmann á fimmtugsaldri fyrir manndráp og stórfellt brot í nánu sambandi með því að hafa drepið föður sinn. Maðurinn er ...
Feiti-Jos með fulla nös í Freetown
📅 09.11.2026 👁️ 2
Feiti-Jos með fulla nös í Freetown
Jos Leijdekkers komst snemma í kast við lögin. Hann er fæddur 1991 og var strax 2011, þá tvítugur, dæmdur í sex ára fangelsi fyrir tilraun til manndrá...
Ekki meiri kröfur án ábyrgðar
📅 09.11.2026 👁️ 2
Ekki meiri kröfur án ábyrgðar
Ekki meiri kröfur án ábyrgðar Ríki og sveit­ar­fé­lög bera sam­eig­in­lega ábyrgð á því að börn fái jöfn námstæki­færi, en kenn­arar þurfa tíma, náms­...
Sjónar­spil við Capri - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 2
Sjónar­spil við Capri - Vísir
Capri liggur undan ströndum Napóli, við miðbik Ítalíu. Eyjan er mjög vinsæll ferðamannastaður. Um helgina var þar gefin út gul viðvörun vegna úrkomu o...
Kalla eftir auknu gagnsæi í svínahaldi
📅 09.11.2026 👁️ 2
Kalla eftir auknu gagnsæi í svínahaldi
Dýraverndarsamband Íslands kallar eftir auknu gagnsæi í svínahaldi og segir að það sé óásættanlegt að starfsemin sé svo lokuð að almenningur fái fyrst...
Vilja að frestur til að upp­fylla kröfur verði endur­skoðaður - Vísir
📅 09.11.2026 👁️ 1
Vilja að frestur til að upp­fylla kröfur verði endur­skoðaður - Vísir
Dýraverndarsamband Íslands segir að myndefnið sem tekið var í innbroti í svínabú Stjörnugríss og hefur verið í dreifingu varpi ljósi á alvarleg kerfis...
Spjallið með Frosta Logasyni | Leon Hill – ÍSLAND VERÐUR EINS OG SVÍÞJÓÐ!
📅 09.11.2026 👁️ 2
Spjallið með Frosta Logasyni | Leon Hill – ÍSLAND VERÐUR EINS OG SVÍÞJÓÐ!
Spjallið með Frosta LogasyniÁstralski áhrifavaldurinn Leon Hill hefur vakið gríðarlega athygli á samfélagsmiðlum fyrir harða og umdeilda gagnrýni sína...