Kennari kærður til lögreglu fyrir ofbeldi – kallar eftir skýrari reglum um samskipti foreldra við kennara

Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar:
Þegar Paul Hansen kennari í Kokkendal skóla bað fjóra nemendur í 2. bekk um að yfirgefa kennslustofu í frímínútum neituðu þeir að fara. Hann var einn á staðnum og fannst sér ógnað. Af þeim sökum kveikti hann á myndavélinni í símanum, segir hann í samtali við danska dagblaðið Berlingske.
Síðar sama dag kærðu foreldrar tveggja nemendanna hann til lögreglu. Þeir sökuðu hann meðal annars um að hafa barið og sparkað í börnin sín. Berlingske hefur séð upptökuna, sem sýnir meðal annars að einn nemendanna sló Hansen í handlegginn. Upptakan átti þátt í því að lögreglan ákvað að fella málið niður.
Eftir kæruna veiktist Paul Hansen og fór í veikindaleyfi. Hann sneri aftur til starfa í stuttan tíma en fór síðan aftur í veikindaleyfi og var síðar sagt upp störfum eftir meira en 11 ára starf við skólann.
Vantar stuðning frá stjórnendum
Í dag starfar hann sem kennari við annan skóla. Hann segir að sig hafi skort skýrari stuðning frá stjórnendum skólans og sveitarfélaginu. Hann kallar jafnframt eftir skýrari reglum um hvernig foreldrar mega koma fram við kennara.
„Ég get alls ekki skilið hvernig fólk getur komist upp með að ljúga upp á kennara, kæra hann til lögreglu og fá svo bara að halda áfram í skólanum eins og ekkert hafi í skorist,“ segir Paul Hansen.
Fleiri kærðir
Samkvæmt Berlingske hafa þrír kennarar við Kokkedal-skóla verið kærðir til lögreglu fyrir ofbeldi frá árinu 2021. Öll málin þrjú hafa verið felld niður.
Nokkrir samstarfsmenn Hansens segja að málið hafi gert þá óörugga um hvernig þeir ættu að bregðast við ágreiningi milli nemenda eða eiga í samskiptum við foreldra í gegnum samskiptaforritið Aula. Þeir óttast að verða sjálfir kærðir til lögreglu.
Skólastjórinn, Kristine Gebuhr, tjáir sig almennt um málið í samtali við Berlingske. Hún segir að kæra til lögreglu hafi persónulegar afleiðingar fyrir kennarann og bendir jafnframt á að foreldrar geti verið óvissir um hvert þeir eigi annars að leita með áhyggjur sínar.
Á Íslandi
Hér á landi þekkjum við slík dæmi.
Sama upp á teningnum hér, stjórnendur máttlausir eða standa með nemanda undir því yfirskini að þeim beri að hugsa um þá. Svo eru það átakafælnu skólastjórarnir og láta allt yfir starfsmenn sína ganga. Kennarar borga brúsann.
Þegar greinarhöfundur byrjaði fyrst að skrifa um málaflokkinn, 2018, þá vantaði ekki viðbröðgðin. Verið væri að grafa undan trúverðuleika barna, ég segði ósatt í skrifum mínum og Jafnréttisnefnd Kennarasambandsins gaf út ályktun gegn skrifum mínum. Blaðamenn á ýmsum fjölmiðlum reyndu að gera höfund tortryggilegan o.s.frv.
Rætin skrif, bæði frá Kennarasambandinu og blaðamönnum, í stað þess að skoða vandann sem fjallað var um. Ofbeldi gegn kennurum.
HVAÐ HEFUR KOMIÐ Í LJÓS SÍÐAN?
Hve margir kennarar og stjórnendur hafa stigið fram til að segja frá ofbeldi nemenda í garð kennara? Hvar er rannsóknin um ofbeldið sem Kennaraþingið samþykkt að fara í?