Demókratar: Hver mun borga fyrir „ókeypis“?

Demókratar: Hver mun borga fyrir „ókeypis“?

Demókratar: Hver mun borga fyrir „ókeypis“?

Íris Erlingsdóttir skrifar:

Það er aldrei skortur á stjórnmálamönnum sem lofa að gera lífið ódýrara fyrir annarra manna peninga. Allt verður ódýrara og þú færð allskonar “ókeypis” ef þú aðeins kýst rétt. Svo hvernig hyggjast Demókratar lækka framfærslukostnað Bandaríkjamanna? Með hvaða aðgerðum og fyrir hvaða fé?

Verðbólga í Bandaríkjunum mældist 9,1% í júní 2022, í forsetatíð Joe Bidens. Í september síðastliðnum var hún 3,7%. Lægri verðbólga þýðir því miður ekki að verðhækkanir liðinna ára hafi gengið til baka, aðeins að verðið hækkar hægar. Fjölskyldan sem stendur við búðarkassann greiðir samt sem áður uppsafnaðar verðhækkanir.

Húsnæði, orka og kostnaður skattgreiðenda

Demókratar segjast m.a. vilja draga úr tollum og greiða fyrir auknu framboði húsnæðis og orku. En þegar farið er ofan í saumana á áætlunum þeirra eru úrræðin kunnugleg: styrkir, skattaívilnanir, niðurgreiðslur og opinber fjárfesting – allt aðgerðir sem fela í sér tekjutap og aukinn kostnað fyrir ríkissjóð, þ.e. fyrir skattgreiðendur. Tekjutapið og kostnaðurinn mun skila sér í auknum sköttum, niðurskurði annars staðar, skuldum og verðbólgu.

Greiða fyrir “auknu framboði húsnæðis”? Veit Kalifornía, sem alfarið er stjórnað af Demókrötum, af þessu? Síðan Pacific Palisades brann til grunna er áætlað að aðeins 35–50 heimili hafi verið byggð. Eitt þúsund og þrjúhundruð og sautján byggingarleyfi bíða enn afgreiðslu í reglugerða- og skrifræði Los Angeles og Kaliforníuríkis, tæpum tveimur árum eftir hamfarirnar.

Flestar aðgerðir Demókrata í orkumálum eru göfugar umhverfis”lausnir” sem hafa stóraukið skatta og gjöld á neytendur. Íslenskir skattgreiðendur ættu að þekkja þetta. Þeir greiddu 88 milljarða í umhverfisskatta árið 2023. Heimili greiddu 54.7% af þeirri upphæð. Ég hef sent umhverfisráðuneytinu sömu fyrirspurnina fimm sinnum: “Hefur verið gerð kostnaðar- og ábatagreining á umhverfisgjöldum og -sköttum sem lagðir hafa verið á heimili og fyrirtæki? Hversu miklum samdrætti í losun hafa aðgerðir stjórnvalda raunverulega skilað og hver er kostnaðurinn á hvert tonn?” Þetta er grundvallarspurning um ráðstöfun almannafjár. Ekkert svar hefur fengist.

Loforð um heilbrigðisþjónustu

Obamacare átti að gera kostnað við heilbrigðisþjónustu viðráðanlegan. Það var meira að segja í nafninu: Affordable Care Act. Nú heimtuðu Demókratar Medicare for All (líka fyrir þá sem eru í landinu ólöglega). Gott væri að vita hvers vegna fyrri töfralausnin dugði ekki, en hvernig á að fjölga læknum, bæta aðgengi og greiða fyrir „ókeypis“ heilbrigðisþjónustu fyrir hverja einustu mannveru í landinu?

Doktor og frú El-Sayed tekur hvorki Medicare né neinar aðrar sjúkratryggingar, aðeins reiðufé. „Reglur fyrir þig, ekki mig.“

Abdul El-Sayed, sem lofaði kjósendum Medicare for All, er giftur geðlækni. En frú El-Sayed tekur hvorki Medicare né aðrar sjúkratryggingar, aðeins reiðufé. El-Sayed ætti að þurfa að útskýra hvers vegna kerfið sem hann vill fyrir alla hentar ekki rekstrinum í hans eigin fjölskyldu. En enginn hinna svokölluðu fréttamanna meginstraumsfjölmiðlanna spurði hvers vegna hann vill „reglur fyrir þig, ekki mig.“

Afstaða kjósenda í atkvæðagreiðslum

Athyglisvert er að meirihluti kjósenda er í raun fylgjandi stefnumálum sem Demókratar eru andvígir. Í Pew könnun árið 2025 studdu 83% aðspurðra að kjósendur yrðu að sýna opinber myndskilríki. Þar á meðal voru 71% demókrata. Kjósendur í Nevada, Norður-Karólínu og Ohio samþykktu nú stjórnarskrártillögur sem krefjast þess að kjósendur sýni slík skilríki.

Kjósendur höfnuðu Donald Trump forseta og Repúblikönum vegna stríðsins í Íran og dýrtíðar. Sextíu prósent sögðust hafa miklar áhyggjur af matvöruverði og tveir þriðju sögðu stefnu Trumps hafa gert efnahagsástandið verra. Sjötíu og fimm prósent kjósenda sögðu stríðið hafa ráðið úrslitum eða haft mikil áhrif á hvernig þeir kusu. Þegar kom að atkvæðagreiðslum um helstu menningarpólitísku baráttumál Demókrata greiddu kjósendur hins vegar oft atkvæði gegn afstöðu þeirra. Í Arizona, Washington, Nebraska og Colorado samþykktu kjósendur að banna körlum þátttöku í kvennaíþróttum. Jafnvel í Kaliforníu voru kjósendur ekki tilbúnir að samþykkja töfralausn Demókrata, að skattleggja ríka fólkið. Fimmtíu og sex prósent þeirra felldu tillögu sem lagt hefði 5% skatt á íbúa með nettóeignir að verðmæti eins milljarðs Bandaríkjadala. Um leið samþykktu 54% kjósenda aðra tillögu sem breytir stjórnarskrá ríkisins á þá leið að banna nýja skatta á lausafé og fjáreignir.

Viðbrögð Demókrata eftir kosningar

Samt haga margir Demókratar sér eins og þeir hafi verið kjörnir til allt annarra verka. Phil Weiser, nýkjörinn ríkisstjóri Colorado, sagði daginn eftir kosningarnar að hann myndi „skoða þessar aðgerðir gegn transfólki og hvaða breytingar séu nauðsynlegar og viðeigandi.“ Formaður Demókrataflokksins í Washington-ríki sagðist ætla að berjast fyrir því fyrir dómstólum að banninu yrði hnekkt. „DEI er komið aftur!“ skrifaði Ro Khanna, fulltrúadeildarþingmaður, á kosninganótt og vísaði þar til stefnu um fjölbreytni, jöfnuð og inngildingu. „Við munum tæta ICE í sundur,“ sagði Peggy Flanagan, nýkjörinn öldungadeildarþingmaður Minnesota, um bandarísku útlendingaeftirlitsstofnunina. Troy Jackson, nýkjörinn öldungadeildarþingmaður Maine, hét því að „berjast fyrir því að leggja niður ICE.“ Stjórnendur tæknifyrirtækja „munu þurfa að gróðursetja nýja skóga vegna allra stefnanna sem við munum prenta,“ skrifaði Ed Markey öldungadeildarþingmaður, sem greinilega man ekki eftir því að meirihluta kjósenda brást við ofsóknum Demókrata á hendur Trump með því að kjósa hann til forseta.

Ef hægt er að finna bjarta hlið fyrir okkur íhaldsmenn, er hún e.t.v. sú tilhneiging Demókrata, þegar þeir fá völd, til að ganga svo langt í vók-vitleysunni, að þeir skjóta sig í fæturna. Fyrsta skotið kom á sjálfan kosningadaginn: “Þrír, fjórir eða fleiri einstaklingar geta nú skráð sig sem sambúðarfélaga í borg í Los Angeles-sýslu, eftir að borgarstjórnin samþykkti einróma nýja lagalega vernd fyrir fólk í fjölástasamböndum.”

Demókratar eru aldrei í vandræðum með að finna upp nýja fleti á auðkennisstjórnmálum (identity politics). Nýjasti kosningahópur þeirra er nú fólk í “fjölástasamböndum.” Ef marka má ofangreind ummæli sigurvegaranna eru fyrir-kosninga-loforð þeirra um að Demókratar muni láta laun tveggja einstaklinga duga fyrir heimilisrekstri ekki lengur efst á dagskránni.

Höfundur er fjölmiðlafræðingur

#borga #demókratar #fyrir #hver #mun

Upprunaleg slóð:
https://www.nutiminn.is/adsendar/demokratar-hver-mun-borga-fyrir-okeypis/

📰 Aðrar fréttir

Leik­fang úr hillunni skilaði fram­förum sem engan óraði fyrir - Vísir
📅 08.11.2026 👁️ 1
Leik­fang úr hillunni skilaði fram­förum sem engan óraði fyrir - Vísir
Hjónin hafa komið á fót verkefninu Bíladegi Birtu Maríu, sem nýverið hlaut 700 þúsund króna styrk úr Góðgerðarfesti Blue. Með framtakinu vilja þau vek...
Hvar var fagþekking kennarans í Síðuskóla?
📅 08.11.2026 👁️ 1
Hvar var fagþekking kennarans í Síðuskóla?
Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar: Einn kennaranna á ljósmynd Síðuskóla sem birt var til stuðnings transhugmyndafræði er, eins og greinarhöfundur, sjúk...
Minnst fjórir látnir og tugir slasaðir eftir lestarslys í Egyptalandi
📅 08.11.2026 👁️ 2
Minnst fjórir látnir og tugir slasaðir eftir lestarslys í Egyptalandi
Minnst fjórir eru látnir og talið að um 88 hafi slasast þegar tvær lestar skullu nærri borginni Giza í Egyptalandi.Yfirvöld segja að lest sem var á le...
Fjórir látnir og tugir slasaðir eftir lestar­slys - Vísir
📅 08.11.2026 👁️ 2
Fjórir látnir og tugir slasaðir eftir lestar­slys - Vísir
Í umfjöllun AP-fréttastofunnar kemur fram að lest í Fayoum héraði hafi rekist aftan á aðra lest með þeim afleiðingum að önnur lestin fór út af sporinu...
Stólaleikurinn hans Trumps
📅 08.11.2026 👁️ 2
Stólaleikurinn hans Trumps
Starfsmannamál Hvíta hússins hafa verið tilefni margra frétta undanfarið.Í gær bárust fréttir af því að Donald Trump Bandaríkjaforseti hefði boðið Dan...
Skurð­læknar í há­degis­mat björguðu manns­lífum - Vísir
📅 08.11.2026 👁️ 1
Skurð­læknar í há­degis­mat björguðu manns­lífum - Vísir
Breska ríkisútvarpið greinir frá því að þeir Michal Pędziwiatr og Dr Mateusz Wierdak hafi verið að snæða hádegismat með fjölskyldum sínum í miðborg bo...
Bókaspjall: Lögreglumaður í sálarkreppu
📅 08.11.2026 👁️ 2
Bókaspjall: Lögreglumaður í sálarkreppu
Yndi er af haganlega gerðri sögufléttu og ráðgáta með óvæntum en rökréttum endi er listasmíði sem hefur gildi í sjálfri sér. Þetta hefur verið eitt he...
Verðbólgan hækkar leiguna en bítur í hagnaðinn
📅 08.11.2026 👁️ 2
Verðbólgan hækkar leiguna en bítur í hagnaðinn
Verðbólgan hækkar leiguna en bítur í hagnaðinn Rekstur þriggja stærstu fast­eigna­fé­lag­anna í Kaup­höll­inni hefur skilað auknum hagn­aði það sem af...
Sveitarfélög keppast við að gagnrýna Loftbrú þvert á flokka
📅 08.11.2026 👁️ 2
Sveitarfélög keppast við að gagnrýna Loftbrú þvert á flokka
Það er útlit fyrir að flokkslínur nái ekki utan um breytingar á Loftbrú ef marka má andstöðu sveitarfélaga á landsbyggðinni. Viðreisn fékk 10 fulltrúa...
Neyðarástand á Kanaríeyjum vegna mikils fjölda farandfólks – yfir 3.300 komið til El Hierro á einni viku
📅 08.11.2026 👁️ 1
Neyðarástand á Kanaríeyjum vegna mikils fjölda farandfólks – yfir 3.300 komið til El Hierro á einni viku
Neyðarástand á Kanaríeyjum vegna mikils fjölda farandfólks – yfir 3.300 komið til El Hierro á einni viku Fréttin8. nóvember 2026Erlent, Hælisleitendur...
Kæmi ekki á ó­vart ef ráð­herra segði af sér - Vísir
📅 08.11.2026 👁️ 1
Kæmi ekki á ó­vart ef ráð­herra segði af sér - Vísir
Málefni Landsvirkjunar hafa verið til umfjöllunar að undanförnu eftir að Hörður Arnarson tilkynnti að hann ætlaði að hætta sem forstjóri. Sagði hann m...
Allt á út­opnu á árs­há­tíð verj­enda - Vísir
📅 08.11.2026 👁️ 2
Allt á út­opnu á árs­há­tíð verj­enda - Vísir
Þetta var meðal þess sem var til umfjöllunar í nýjasta þætti Hvað er að frétta? Smáhrifavaldar halda áfram að koma á óvart en andlitshulurnar sem má s...
Bíll fór í Kleifá á Snæfellsnesi
📅 08.11.2026 👁️ 2
Bíll fór í Kleifá á Snæfellsnesi
Björgunarsveitir hafa verið kallaðar út vegna þess að bíll fór í á á Snæfellsnesi. Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur einnig verið kölluð út að beiðni Lö...
Segir að þetta bíði Russell Brand í fangelsi – „Verður með skotmark á sér“
📅 08.11.2026 👁️ 1
Segir að þetta bíði Russell Brand í fangelsi – „Verður með skotmark á sér“
Mark Williams-Thomas, rannsóknarblaðamaður og kvikmyndagerðarmaður, segir að ekki bíði Russell Brand gott í fangelsi. Hann verði með skotmark á sér al...
Byrjaði að fróa sér í 36 þúsund feta hæð
📅 08.11.2026 👁️ 1
Byrjaði að fróa sér í 36 þúsund feta hæð
Maður var handtekinn á flugvellinum í Chicago eftir að hafa fróað sér í sæti sínu í miðju flugi. Konan sem tilkynnti atvikið varð mjög hrædd.Miðillinn...
Um 34% bera lítið traust til stjórnar Landsvirkjunar
📅 08.11.2026 👁️ 2
Um 34% bera lítið traust til stjórnar Landsvirkjunar
Rúmlega þriðjungur þjóðarinnar, eða um 34%, ber mjög lítið eða fremur lítið traust til stjórnar Landsvirkjunar. Þetta kemur fram í könnun Maskínu sem ...
King leads solemn Remembrance service at Cenotaph
📅 08.11.2026 👁️ 2
King leads solemn Remembrance service at Cenotaph
Wreaths are laid as 10,000 armed forces veterans, including 12 from World War Two, pay tribute in central London.
King leads solemn Remembrance Sunday service at Cenotaph
📅 08.11.2026 👁️ 2
King leads solemn Remembrance Sunday service at Cenotaph
Wreaths are laid as 10,000 armed forces veterans, including 12 from World War Two, pay tribute in central London.
Minnst 33 sagðir fallnir í á­rásum Sáda - Vísir
📅 08.11.2026 👁️ 2
Minnst 33 sagðir fallnir í á­rásum Sáda - Vísir
39 til viðbótar særðust í árásunum sem breska ríkisútvarpið fjallar um. Sjónvarpsstöðin Al Masirah, sem er rekin af Hútum, hefur birt myndskeið þar se...
Netanyahu missir meirihlutann – helsti keppinautur hans fær stjórnarmyndunarumboð í Ísrael
📅 08.11.2026 👁️ 1
Netanyahu missir meirihlutann – helsti keppinautur hans fær stjórnarmyndunarumboð í Ísrael
Netanyahu missir meirihlutann – helsti keppinautur hans fær stjórnarmyndunarumboð í Ísrael Fréttin8. nóvember 2026Erlent, KosningarLeave a Comment Isa...
Hrunamenn komnir yfir þúsund íbúa markið
📅 08.11.2026 👁️ 2
Hrunamenn komnir yfir þúsund íbúa markið
Íbúar Hrunamannahrepps eru nú 1.018, en voru 982 í desember 2025. Þeim hefur því fjölgað um 36, eða um 3,7% á árinu sem er að líða. Aldís Hafsteinsdót...
Stærsta kjarnorkuver Evrópu missir rafmagn á ný – neyðarrafstöðvar halda kælikerfum gangandi
📅 08.11.2026 👁️ 1
Stærsta kjarnorkuver Evrópu missir rafmagn á ný – neyðarrafstöðvar halda kælikerfum gangandi
Stærsta kjarnorkuver Evrópu missir rafmagn á ný – neyðarrafstöðvar halda kælikerfum gangandi Fréttin8. nóvember 2026Erlent, OrkumálLeave a Comment Zap...
Múslimsk borgarstjórn bannaði regnbogafána – bandarískur áfrýjunardómstóll staðfesti ákvörðunina
📅 08.11.2026 👁️ 2
Múslimsk borgarstjórn bannaði regnbogafána – bandarískur áfrýjunardómstóll staðfesti ákvörðunina
Múslimsk borgarstjórn bannaði regnbogafána – bandarískur áfrýjunardómstóll staðfesti ákvörðunina Fréttin8. nóvember 2026Erlent, Hinsegin málefni, Stjó...
Áherslan á framtíð og uppbyggingu Vinstri grænna
📅 08.11.2026 👁️ 2
Áherslan á framtíð og uppbyggingu Vinstri grænna
Flokksráð Vinstri grænna fundar i dag um framtíð og uppbyggingu hreyfingarinnar. Flokksráðið fundar tvisvar á ári og hefur æðsta vald í málefnum flokk...
Skotárás í Kraká rannsökuð sem hryðjuverk
📅 08.11.2026 👁️ 1
Skotárás í Kraká rannsökuð sem hryðjuverk
Ríkissaksóknari Póllands tilkynnti í morgun að skotárás í Kraká í gær væri rannsökuð sem hryðjuverk. Í tilkynningu hans segir að árás sem þessi, morð ...
UPDATE: Cabildo suspends all organised events indoors and outdoors in Gran Canaria
📅 08.11.2026 👁️ 1
UPDATE: Cabildo suspends all organised events indoors and outdoors in Gran Canaria
The Gran Canaria Cabildo has ordered the suspension of all organised public and private events from 12 noon today, Sunday 8th November, as Storm Bruna...
Royals and veterans reflect at poignant Remembrance ceremony
📅 08.11.2026 👁️ 3
Royals and veterans reflect at poignant Remembrance ceremony
King Charles has led the annual Remembrance Sunday commemorations, laying a wreath at the solemn ceremony held at the Cenotaph.
Lokuðu fjórum herbergjum á gistiheimili vegna veggjalúsar
📅 08.11.2026 👁️ 2
Lokuðu fjórum herbergjum á gistiheimili vegna veggjalúsar
Heilbrigðiseftirliti Suðurlands barst ábending nýverið vegna mögulegrar veggjalúsar á gistiheimili.Starfsmenn eftirlitsins fóru á staðinn og smit fann...
Deilur um pólitískar skoðanir meints árásarmanns í Kraká – spurningar vakna um horfinn Facebook reikning
📅 08.11.2026 👁️ 2
Deilur um pólitískar skoðanir meints árásarmanns í Kraká – spurningar vakna um horfinn Facebook reikning
Deilur um pólitískar skoðanir meints árásarmanns í Kraká – spurningar vakna um horfinn Facebook reikning Fréttin8. nóvember 2026ErlentLeave a Comment ...
Viðsnúningur með stuðningi Orkuveitunnar
📅 08.11.2026 👁️ 2
Viðsnúningur með stuðningi Orkuveitunnar
Viðsnúningur með stuðningi Orkuveitunnar Gert er ráð fyrir auknum arði frá Orku­veit­unni í fjár­hags­á­ætlun Reykja­vík­ur­borgar fyrir næsta ár. Tre...
Spurt á förnum vegi: Ætlar þú á jólatónleika í ár?
📅 08.11.2026 👁️ 3
Spurt á förnum vegi: Ætlar þú á jólatónleika í ár?
DV fór á stúfana fyrr í vikunni og spurði gesti og gangandi hvort þau hyggðust fara á jólatónleika í ár.Það er alltaf vinsælt að skella sér á tónleika...
Bíll fór í Klefá á Snæfellsnesi
📅 08.11.2026 👁️ 2
Bíll fór í Klefá á Snæfellsnesi
Björgunarsveitir hafa verið kallaðar út vegna þess að bíll fór í á á Snæfellsnesi. Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur einnig verið kölluð út að beiðni Lö...
Safna fyrir Pálínu sem var sakfelld fyrir meiðyrði gegn Ingó Veðurguð – „Þetta mál snýst ekki bara um Pálínu“
📅 08.11.2026 👁️ 2
Safna fyrir Pálínu sem var sakfelld fyrir meiðyrði gegn Ingó Veðurguð – „Þetta mál snýst ekki bara um Pálínu“
Söfnun er hafin fyrir málskostnaði fyrir Pálínu Helgu Þórarinsdóttur sem var sakfelld fyrir meiðyrði gegn Ingólfi Þórarinssyni, títt nefndum Ingó Veðu...
Formaður Høyre vill bækurnar aftur í norska skóla: „Við hefðum átt að staldra fyrr við“
📅 08.11.2026 👁️ 2
Formaður Høyre vill bækurnar aftur í norska skóla: „Við hefðum átt að staldra fyrr við“
Ine Eriksen Søreide, formaður norska Hægriflokksins Høyre, viðurkennir að stafrænvæðing skóla hafi gengið of hratt og verið of gagnrýnislaus. Hún vill...
Al­var­legt bíl­slys á Snæ­fells­nesi og ráð­herra ræðir inn­viða­gjaldið - Vísir
📅 08.11.2026 👁️ 1
Al­var­legt bíl­slys á Snæ­fells­nesi og ráð­herra ræðir inn­viða­gjaldið - Vísir
Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar en Hanna Katrín Friðriksson var gestur Páls Magnússonar á Sprengisandi í morgun þar sem hún ræddi ...
Endur­skoða gjaldtökuna ef ferða­mönnum fækkar - Vísir
📅 08.11.2026 👁️ 2
Endur­skoða gjaldtökuna ef ferða­mönnum fækkar - Vísir
Ríkisstjórnin hyggst hefja gjaldtökuna á þremur fjölsóttum stöðum í Bláskógabyggð og verður gjaldið 4.500 krónur á háannatíma en 3.000 krónur utan han...
Abuse in media industry probably still happening, Lisa Nandy says
📅 08.11.2026 👁️ 2
Abuse in media industry probably still happening, Lisa Nandy says
Lisa Nandy told Laura Kuenssberg that 'many people' in the media industry had opened up to her.
'Time is up': Nandy warns media industry to take abuse seriously in wake of Brand case
📅 08.11.2026 👁️ 1
'Time is up': Nandy warns media industry to take abuse seriously in wake of Brand case
Lisa Nandy tells the BBC "many people" in the media industry have come forward to her.
Framsókn segir heimilin borga fyrir hallalaus fjárlög ríkisstjórnarinnar
📅 08.11.2026 👁️ 3
Framsókn segir heimilin borga fyrir hallalaus fjárlög ríkisstjórnarinnar
Framsókn segir heimilin borga fyrir hallalaus fjárlög ríkisstjórnarinnar Fréttin8. nóvember 2026Innlent, StjórnmálLeave a Comment Lilja Dögg Alfreðsdó...
Kennari kærður til lögreglu fyrir ofbeldi – kallar eftir skýrari reglum um samskipti foreldra við kennara
📅 08.11.2026 👁️ 2
Kennari kærður til lögreglu fyrir ofbeldi – kallar eftir skýrari reglum um samskipti foreldra við kennara
Kennari kærður til lögreglu fyrir ofbeldi – kallar eftir skýrari reglum um samskipti foreldra við kennara Fréttin8. nóvember 2026Erlent, Helga Dögg Sv...
Leó páfi XIV hvetur til friðar og samstöðu – tugþúsundir fögnuðu honum í Úrúgvæ
📅 08.11.2026 👁️ 2
Leó páfi XIV hvetur til friðar og samstöðu – tugþúsundir fögnuðu honum í Úrúgvæ
Leó páfi XIV hvetur til friðar og samstöðu – tugþúsundir fögnuðu honum í Úrúgvæ Fréttin8. nóvember 2026Erlent, TrúmálLeave a Comment Leó páfi XIV hefu...
Kristnir frambjóðendur Demókrata vinna sögulega sigra – trúin fær aukið vægi í bandarískum stjórnmálum
📅 08.11.2026 👁️ 2
Kristnir frambjóðendur Demókrata vinna sögulega sigra – trúin fær aukið vægi í bandarískum stjórnmálum
Kristnir frambjóðendur Demókrata vinna sögulega sigra – trúin fær aukið vægi í bandarískum stjórnmálum Fréttin8. nóvember 2026Erlent, StjórnmálLeave a...
Tveir í bíl sem hafnaði í Kleifá
📅 08.11.2026 👁️ 2
Tveir í bíl sem hafnaði í Kleifá
Björgunarsveitir og viðbragðsaðilar eru á vettvangi alvarlegs slyss á sunnanverðu Snæfellsnesi. Bifreið fór þar út í á.Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur...
Íran tekur þrjá mótmælendur af lífi – sakaðir um tengsl við Bandaríkin og Ísrael
📅 08.11.2026 👁️ 3
Íran tekur þrjá mótmælendur af lífi – sakaðir um tengsl við Bandaríkin og Ísrael
Íran tekur þrjá mótmælendur af lífi – sakaðir um tengsl við Bandaríkin og Ísrael Fréttin8. nóvember 2026InnlendarLeave a Comment Hassan Divband, Hamid...
Davíðstíminn: Gott framan af hjá Davíð en ferillinn endaði illa
📅 08.11.2026 👁️ 2
Davíðstíminn: Gott framan af hjá Davíð en ferillinn endaði illa
Í upphafi forsætisráðherraferils Davíðs Oddssonar urðu miklar umbætur og framfarir hér á landi. Má þar nefna upplýsingalög og stjórnsýslulög, auk þess...
Björgunar­sveitir kallaðar út vegna bíls í á - Vísir
📅 08.11.2026 👁️ 2
Björgunar­sveitir kallaðar út vegna bíls í á - Vísir
Björgunarsveitir og lögregla voru kölluð út í morgun vegna bíls sem fór út í á á Snæfellsnesi. Viðbragsaðilar eru á vettvangi.
Björgunar­sveitir og þyrla í út­kall vegna bíls í á - Vísir
📅 08.11.2026 👁️ 2
Björgunar­sveitir og þyrla í út­kall vegna bíls í á - Vísir
Þetta staðfestir Jón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúi Landsbjargar í samtali við Vísi. Jónas Hallgrímur Ottósson yfirlögregluþjónn á Vesturlandi seg...
Hönnun nýs þyngdarstjórnunarlyfs byggir á rannsóknum á erfðaefni Íslendinga
📅 08.11.2026 👁️ 3
Hönnun nýs þyngdarstjórnunarlyfs byggir á rannsóknum á erfðaefni Íslendinga
Þróun nýs megrunarlyfs bandaríska lyfjafyrirtækisins Amgen byggir á rannsóknum vísindamanna deCode á erfðaefni nærri tvö hundruð þúsund Íslendinga. Bl...
Þróun nýs þyngdarstjórnunarlyfs byggir á rannsóknum á erfðaefni Íslendinga

Vinted and eBay could be included in under-16 social media ban, minister says
📅 08.11.2026 👁️ 2
Vinted and eBay could be included in under-16 social media ban, minister says
The culture secretary confirms reports they could be in the list of platforms set to be banned next March.